Tuesday, July 30, 2019

Forever young...

... I want to be forever young!

Örvæntingarfulla húsmóðirin okkar er í öngum sínum. Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað? (Jóhann Jónsson, ljóðið Söknuður)

Er ég í alvörunni á .... fimmtugsaldri???!!!

Slöpp húð, þurr húð, krakkar og unglingar út um allt.

Omg.

Nei, nei, nei.

Vil vera forever young bara, takk kærlega fyrir.

Aftur á móti fylgir því ákveðin vellíðan og öryggi að vera "komin á þennan aldur." Ákveðið óöryggi er farið. Bullshit stuðullinn hefur lækkað (hækkað?) og maður er hættur að tíhí-a yfir myndarlegum karlmönnum.

Hef ákveðið að taka málið föstum tökum. Búin að panta botox og fitusog, strekkingu og ... súrefnismeðferð.

Eða nei.

Læt kannski bara duga að ímynda mér að ég sé aðeins yngri en ég er.

Ekki séns að ég vaki lengur en til 23:00 samt.


Tuesday, July 23, 2019

Pearl jam

Næsti diskur til að ákveða hvort ég ætti að henda eða varðveita var Pearl jam.

Þetta er svona safndiskur sem bróðir vinkonu minnar skrifaði handa mér árið 2003 (ó ljúfu háskólaár..) sem gerir þetta enn verðmætara. Einhver tók sér tíma til að skrifa disk fyrir mig og handa mér. Erfiðara að henda.

Allavega, það kom að svona ákeðnum punkti í gær eins og svo oft áður inn á heimilinu (allir heima) að ég bara varð að komast út.

Setti Pearl jam safndiskinn í og omg.

Ekki séns að ég hendi þessum demanti. Góðar minningar eingöngu. Aðallega tengdar öðrum gimsteini, æskuvinkonu.

Good vibes only.

Söng hástöfum með og komst við á einum tímapunkti.

Vá, hvað þeir eru góðir.

Varðveiti þennan. Ekki spurning.

Monday, July 22, 2019

The pattern

Í örvæntingarfullri viðleitni örvæntingarfullu húsmóðurinnar okkar til að færa athyglina, ljósið, frá kynþokkafullum 25 ára karlmönnum berum að ofan í BDSM keðjum að ... einhverju öðru... fann hún með hjálp Channing Tatum (af öllum) lausn. 

Channing Tatum. Af öllum. Skrýtið hvernig hann er allt í einu orðin smá, bara smá, gamall. Outdated. Allavegana! Er með hann á Snapchat eða var það Instagram live.. allavegana hann fór að tala mjög alvarlega hvað væri í gangi með forrit eða app sem hann var að prufa, The Pattern, sem virtist vita alltaf hvað væri í gangi með hann. Tilfinningalega séð. 

Hann fór að lýsa því að þetta sé svona app þar sem maður skráir sig inn, gefur upp fæðingardag og nákvæma tímasetningu á fæðingu manns og voila, forritið veit bara skuggalega mikið hvað einmitt er í gangi með mann. Þetta er allt saman með tilliti til staðsetningu plánetanna og stjarnanna eða eitthvað álíka.

Ég auðvitað varð að prufa. 

Skuggalegt. Í gær í kringum kvöldmatarleitið leið mér mjög skringilega. Sinnið mitt var út um allt og ég upplifði mikið innra ójafnvægi. Tékkaði á appinu og voila. 

Mood: instability extreme.


Þarna er manni ráðlagt samkvæmt því andlega jafnvægi (stability) sem maður er í hvenær maður eigi (ekki) að taka stórar ákvarðanir eða hvort best sé að bíða með allt slíkt til annars dags þar sem maður er ekki í nægilega góðu jafnvægi.

Allavegana, tengi sterkt við þetta og finnst þetta frekar awesome. Finnst allt svona mega spennandi.

Langar líka að læra um drekaorku.

Sunday, July 14, 2019

Kvíðlaus friður.


Loksins, loksins hitti ég Tinnu mína.

Það er sagt að maður eigi að vera í kringum fólk sem skilur mann eftir með góða tilfinningu. Það er í sannleika sagt ekki það algengt að hitta fólk sem skilur mann eftir með þessa yndislegu heilandi tilfinningu. Tinna er ein af þessu fólki. 

Fullkomlega laus við tilgerð og samfélagsmiðla. Hún er ekki á Facebook. Hvað þá Instagram. No make up, no filter. Ekkert feik. 

Elska. Svona. Fólk. 

Miðað við alla sem ég umgengst þá er það svo mikill ferskur andblær að vera í kringum mannveru sem tekur ekki upp símann til að taka mynd af sér eða öðrum eða aðstæðum. Þvílíkur friður. Kvíðlaus friður. Enginn að spá í story eða lookinu. 

Það er náttúrulega engin mynd af þessari bæjarferð af því að við nutum þess að skilja bara (helv..) símann eftir í vasanum. 

Tinna mín, ég elska að vera í kringum þig. Takk fyrir þig. 

Takk fyrir mig.


Friday, July 12, 2019

Yin og Yang

Yin og Yang er komið úr kínverskri heimspeki. Yin er nærandi grunnorkan, þróun inn á við, fær allt til að falla í ró á meðan yang er þróun útávið og fær allt til að hreyfa sig. Þetta er sem sagt lögmálið um póla - að allt finnist aðeins vegna andstæðu sinnar. Yin og Yang eru háð hvert öðru, annað er inní hinu og öfugt og annað getur ekki verið til án hins - það er ein heild (tekið beint upp úr kennslubókinni í kinesiologi.)

Ég tengi þetta við að vera annaðhvort extrovert eða introvert og finnst athyglisvert að þessar andstæður laðast oft að hvor annari, í formi para eða vinskapar. Þá er annar aðilinn mikið "út", elskar að hitta annað fólk og nærist þannig orkulega séð á meðan hinn aðilinn er frekar "inn", er meira inn í sig og finnst annað fólk, sérstaklega margmenni, taka frá sér orku. Það er þó alltaf smá yin orka í yanginu og yang orka í yininu.

Er með endæmum þakklát fyrir að eiginmaður minn er extrovert. Verandi sífellt meiri introvert er ég komin með sífellt meira óþol fyrir margmenni og samkomum og slíku. Gott dæmi um það er þegar eitthvað er í gangi með börnin, það þarf að halda afmæli eða eitthvað svoleiðis og mig langar bara að hlaupa í hina áttina, þá er gott að Svani finnst svona félagslegar aðstæður vel þolanlegar og hann hefur jafnvel gaman af því að tala við hina foreldrana. Þið vitið mingla. Hann til dæmis bjargaði algerlega n1 mótinu á Akureyri um daginn. Ég er bara engin manneskja í svona læti lengur. Fékk að njóta þess að vera frekar í fellihýsinu í hugleiðslu og yoga og að taka til á meðan hann sinnti félagslegu hliðinni. Var reyndar það "heppin" að vera með afsökun þar sem ég var með svæsna augnsýkingu svo ég hafði góða afsökun fyrir að vera óafskipt nálægt læknum á tjaldstæðinu.

Anyhows, ætla að setja þann ásetning út í cosmos-ið að vera meira út. Minna inn.

Inn, inn, ÚT. Inn, ÚT, ÚT.

 











Tuesday, July 9, 2019

Yes!

Var með þrjá kúnna í dag.

Allir þrír (allar þrjár) lýstu því yfir að þær ætli klárlega að koma aftur.

Ein þeirra sagði að ég væri klárlega á réttri hillu í lífinu og að ég væri með einstaklega mjúkar og góðar hendur.

Ja man.

Monday, July 8, 2019

Fílalag

Þetta er nýja feel good - ið mitt. 

Að vera að taka til heima með Fílalag podcast í eyrunum. 

Þarna kryfja þeir Bergur Ebbi og Snorri hverja 90's drulluna (þeir tala svona) af annarri og ég er að tengja svo mikið við tónlistina sem þeir eru að taka fyrir að það hálfa væri nóg.

Þeir tóku til dæmis fyrir Parklife með Blur í þætti um daginn. Það kom mér svo á óvart hvað þeir vissu mikið um blur og ég hafði svo gaman af því hvernig þeir tala og hvernig þeir náðu stemmningunni bæði í laginu og Blur og líka bara svona 90's yfir höfuð. 

Eins og í gær, þá var ég að hlusta á þá kryfja lag með Jamiroquai og töluðu um að menn á þessu tímabili hvort sem þeir voru rokkarar eða popparar hefðu klæðst svona mussum. Oh, ég man svo eftir þessu. Jet black Joe tímabilið. Svo mikil nostalgía.

Allavegana, elska hvernig ég fæ hláturskast upp úr þurru þegar ég er að hlusta á þá bara af því að þeir eru svo rosalega fyndnir. Svo mikið feel good í þeim.

Oh, elska Fílalag. Elska að taka til. Ein. 

Me time, par excellelance.