Friday, January 31, 2020

Öskurhlátur

Ég eyddi gærdeginum með Sunnevu minni hérna í Göteborg.

Hún vissi að ég elska skóga og náttúru þannig að við fórum og löbbuðum í skógi og náttúru og settumst svo á kaffihús þar.

Mikið sem það er gott að tala við vinkonu. 

Hún sýndi mér nýja einbýlishúsið sitt og ég hitti kærastann hennar. Svo fórum við út að borða og kjöftuðum um gamla tíma.

Á einhverjum tímapunkti í bílnum sagði hún mér dáldið sem mér fannst svo fyndið að ég öskurhló. Öskraði af hlátri, réð ekki við mig. Svo þegar hún hló, hló ég meira. Grét af hlátri.

Þessi Svíþjóðar ferð er bara akkúrat og nákvæmlega það sem ég þurfti. 

Next up: spa day með Sunnevu. Her treat.

Thursday, January 30, 2020

Me time

Er heldur betur búin að fá me time hérna í Svíþjóð. 

Það var nú reyndar pælingin. Þegar ég var hjá Arnóri á endurnæringarhelginni í Hraunborgum um daginn talaði hann um að sirka 95% hugsana okkar væru endurteknar. Maður sem sagt vaknar og sama spóla fer í gang og var daginn áður. Mér finnst þetta erfitt. Er að reyna að fá nýjar hugsanir. Nýjar pælingar. 

Framundan er dagur með Sunnevu. Hlakka til. 

Gærdagurinn var me time alla leið. Fann hot yoga stúdíó nálægt og svitnaði úr mér öllum áhyggjum.

Grandisimó!

Tuesday, January 28, 2020

Göteborg

Yes, yes, yes!!

Mér líst svo vel á Göteborg. Hér líður mér vel. Allt miklu minna í sniðum en í Stokkhólmi og ekki þessi stórborgabragur. Ekki eins mikil steypa. Og ég get opnað gluggann á hótelinu!

Og ég hitti loksins Sunnevu!! Mikið var það gott. Þessi elska kom að sækja mig á brautarstöðina. Hún kom mér á hótelið og við fórum út að borða saman. Hún borgaði meira að segja.

Við getum talað saman við Sunneva. Mikið sem það er gott. Það er svo nauðsynlegt fyrir sálina. 

Skrýtið hvað mér finnst sjaldgæft að tala bara svona. Það var ekki verið að hanga í símanum á meðan sem ég er mjög þakklát fyrir. Við vorum einmitt að tala um hvað síminn er að taka yfir öll samskipti.

Allavegana, next up; finna hot yoga í Göteborg.

Life is good.

Hatari

Loksins fór ég á tónleika með þeim. 

Skemmti mér rosalega vel. Leið ekki eins og álfi á hól. Var þarna með 21s árs emo stelpu (viðurkenni að ég googlaði emo bara til að vera viss;)) Við fundum hvor aðra á umræðuþræði hjá bandinu og vorum báðar einar í Stokkhólmi. Föðmuðumst fyrir og eftir tónleikana, sameinaðar í ást okkar á Hatara.

Í anda þeirra voru tónleikarnir haldnir í vöggu kapítalismans, í miðju sláturhúsahverfi. Labbaði þarna fyrr um daginn og leið hreint ekki vel. Gæti aldrei, aldrei unnið í sláturhúsi. Veit að allavegana annar söngvarinn er grænmetisæta og fíla að þeir velji þetta location. Slaktkyrkan. Þeir eru svo góðir í fallegum non violent aktivisma.

Er ekki alveg að skilja af hverju ég fíla þá svona mikið. Textarnir eru dimmir og umgjörðin myrk. Ætli það hafi ekki eitthvað með þeirra andkapitalíska viðhorf að gera.

Tala nú ekki um gaddana, keðjurnar og 25 ára karlmenn í latex og leðri.

Algerlega ómótstæðilegt.

Monday, January 27, 2020

Are you knowing what your wanting?

Yes! Nature.

Umkringd steypu í miðri stórborg er þetta svo kristaltært.

Þrái að komast í náttúruna, dreymi um að umvefja mig henni, njóta hennar, elska og virða.

Það er ekki einu sinni opnanlegur gluggi á hótelherberginu. Ég er furðulega róleg yfir þessu. Furðulega. Með því fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn í það var að reyna að opna gluggann. Eins og ég geri alls staðar. Hringdi niðrí reception og nei, nei. Það á bara ekkert að opna gluggann! (Scandinavian design...)

Hef ekki séð gróður eða plöntu síðan ég kom. Hef grun um að plantan sem ég er reyndar að horfa á núna í morgunverðarsalnum sé gervi.

Ok, verð að komast út:)

Have a nice day.

Sunday, January 26, 2020

Stockholm city

Ja hérna hér.

Stundum tek ég skrýtnar ákvarðanir og geri skrýtna hluti. 

Eins og núna. Svava, einhvers staðar í fortíðinni, ákvað að vera ein í nokkra daga í Stokkhólmi. Hugsunin var að komast í burtu. Vera ein. Kunnugleg hugsun.

Og núna er ég nákvæmlega það. Komin í burtu og algjörlega ein. 

Veit ekki alveg hvaða hugmyndir ég hafði um Stokkhólm en hér er vissulega engin náttúra. Ég er stödd, smack, í miðjunni á stórborg. Ekki minn tebolli ef ég á að vera alveg hreinskilin.

Það er rosalega gott að fá þessa fjarlægð. Þótt ég væri dauðþreytt í gær eftir ferðalagið gerði ég samt svona hugarkort af lífinu mínu og sá strax hvar þarf að breyta og bæta og hvar þarf að gera meira af og hvað þarf að gera minna af.

Ok. Skal bara trúa ykkur fyrir því. 

Þarf að leggja miklu meiri áherslu og rækt við börnin mín. Við þurfum að flytja. Ég þarf að drekka minna cacao. 

Ceremonial cacao er ekki eins og kaffi eða te. Það er dýpra en það. Þannig að ég fer bara dýpra inn í mig þegar ég þyrfti einmitt að komast meira út úr mér. Það hlýtur að vera einhver smá extrovert þarna einhvers staðar innra með mér sem þarf að komast út.

Allavegana, ætla að koma mér út. Er búin að hanga of mikið inni á hótelherbergi auðvitað...

Ást og kærleikur.


Thursday, January 23, 2020

Sæt orka.

Elska Storytell appið og er farin að nota það reglulega. 

Er bara nýlega byrjuð að nota það og er nú búin að hlusta á bókina hans Sölva Tryggvasonar og bókina um Björgvin landliðsmarkmann sem kom nýlega út. Held meira að segja að Sölvi sé eitthvað viðriðinn þá bók .. og núna síðast Eat, pray, love. Sem ég elska.

Langar að skrásetja hér hugleiðslu sem Ketut, tannlausi gamli heilarinn á Bali kenndi Liz (söguhetjunni.) 

Þetta er mjög einföld hugleiðsla og snýst um að hugleiða brosandi. Setja broskall á/í hjartað, lifrina og hin ýmsu líffæri.

Hann talaði um að þessi hugleiðsla gæfi af sér sæta orku og myndi gera Liz aðlaðandi í augum karlmanna.

Viti menn.. stuttu síðar lenti hún á séns með brasilísku sjarmatrölli sem hún endaði með að vera í sambandi við.

P.s. bókin var meira en 11 tíma löng og Helga Braga las hana sem gerði hana enn betri. 

Álfur. Hóll.

Er dáldið hrædd um að það verði ég á mánudagskvöldið. 

Á tónleikunum með Hatari í Stokkhólmi. 

Fíla þá alveg í botn en þetta er dáldið harkalegur stíll af tónlist. Hlustaði á lag með þeim á Spotify í gær og varð svo um og ó að ég fann í paniki næst fyrir neðan þá sirka í stafrófinu (smá skroll) Hatha yoga music. Skipti yfir í það og leið strax betur.

Fyndin. Það er ég.

Þeir eru allavega djöfull flottir.


Tuesday, January 21, 2020

Ánægð

Ég er svo ánægð.

Nýji vinnustaðurinn sem ég verð að nudda í á þriðjudögum er góður og það gengur vel.

Fyrstu skiptin er ég alltaf að átta mig á orkunni og hvað er í gangi. Vinnustaðir eru jú mismunandi eins og þeir eru margir. 

En svo gekk þetta svo vel og allir voru svo ánægðir. Einn maður sagði að ég stæði mig greinilega vel þar sem allir sem kæmu frá mér væru bara með stjörnur í augunum og fuglasöng í kring. Eða eitthvað svoleiðis..

Þannig að ég er alsæl. Þreytt en hamingjusöm.

Friday, January 17, 2020

Crazy Lacey

Datt þetta viðurnefni á sjálfa mig í gærkvöldi þegar ég rölti heim úr kvöldhugleiðslunni í skóginum sem er hérna rétt hjá heimilinu mínu. Fer þarna á kvöldin, stundum með ceremonial grade 100% cacao frá Gvatemala.

Mikið ofboðslega er ég orðin skrýtin. 

Sunneva mín fær enga rauðsvínsdrekkandi til-í-allt vinkonu til sín í heimsókn seinna í mánuðinum. Nei, bara hvar-er-næsta-yogashala og hvar-kemst-ég-í-náttúru vinkonu. Við sem héngum saman á kaffihúsum og goth kvöldum í gamla daga. 

Og ég sem fer á möntrukvöld og syng Hare Krishna hástöfum eins og ég sé að frelsast er að fara á Hatara tónleika.

Get ekki beðið. Ji, hvað ég hlakka til.

Sunday, January 12, 2020

Ég elska þig stormur!

Kæri janúar. Bring it on.

Þú sem ert svo myrkur og langdreginn. Þú með alla þína storma og lægðir. Þú með þitt fallega fulla tungl og birtu frá snjónum þegar lægir.

Í fyrsta skiptið í langan tíma er ég sátt í janúar. Oftast er þetta mánuðurinn sem þarf að lifa af (ásamt febrúar) en núna er ég ekki undir álagi frá öðrum, vinnu eða skóla og er orðin sátt í eigin skinni.

Var í æðislegu danspartýi í gær og húsmæðraorlof í Svíþjóð á næsta leiti.

Bjart framundan indeed.



Wednesday, January 8, 2020

2020

Já og gleðilegt nýtt ár!

Gleymdi alveg að hefja nýtt bloggár á áramótafærslu.

Eins og svo margir elska ég áramót. Nýtt ár, ný markmið og einhvern veginn hreint blað. Wipe the slate clean.

Í dag minnist ég þess hvað ég er komin langt. Er svo þakklát fyrir að hafa fylgt hjartanu og er loksins að gera það sem ég á að vera gera.

Í dag er óveður. Stormur. Ég er ekki föst einhvers staðar þar sem ég vil ekki vera. Í vinnu hjá öðrum eða öðrum óþægilegum aðstæðum þar sem ég hef ekki stjórn á rýminu eins og t.d. uppi í skóla þar sem skær ljósin og loftleysið fóru illa í mig.

Ég stjórna mér sjálf, mínum vinnutíma og hvað ég geri yfir höfuð. Það er enginn sem getur kallað mig inn á fund eða vakt í dag.  Það er mið vika, frídagur og ég er bara að fara í hot yoga í hádeginu.

Takk ég.

Ekkert að þakka ég. Elska þig. 

:)

Friday, January 3, 2020

The cosmos

Almættið heldur áfram að senda mér merki.

Í fyrsta nuddi dagsins var klukkan 12:12 þegar ég leit á hana og í öðru nuddinu 13:13.

Elska merkin frá alheimsorkunni. Ég er með henni líka.

All is well.

P.s. er að sjá nýtt með klukkuna en hún er oft núna t.d. 14:04, 16:06, 18:08 o.s.frv. sem er nýtt (og athyglisvert.)