Tuesday, December 29, 2020

Fullt tungl, glitský og fjórir svanir

Gærdagurinn var pretty amazing.

Er ekki viss hvort það hafi actually verið fullt tungl en mér fannst það allavegana. 

Það voru himnesk glitský á himninum sem gerðu mig orðlausa. Þau voru svo falleg. Skilaboð að ofan;)

Já, svo þegar ég fór að taka öndunaræfingu a ströndinni (í desember) þá sá ég fyrst fjóra svani og svo fjóra ehemm.. aðra fugla.

Skilaboðin skýr, takk 🙏

Note to self: það er stundum of kalt til að vera berfættur..

Tók bara Instagram story af þessum glitskýjum, myndi annars klárlega setja mynd inn.

Og fulla tunglið, man ó man.


Saturday, December 26, 2020

Jólin

Það er margt að elska við jólin.

Samverustundir, jólalegt veður, gjafir og síðast en ekki síst kyrrðin.

Það jafnast fátt á við það að vakna á jóladag og það er kyrrð. Allir sofandi og meira að segja Miklabrautin er það kyrrlát að ég þarf ekki að nota noice canceling nýju headphone-in mín sem ég fékk í afmælisgjöf frá fjölskyldunni. 

Svona var þetta í gær jóladag og í dag annan í jólum. 

Guðdómlegt!


Wednesday, December 23, 2020

Bekkurinn

Er ekki mikið fyrir veraldlega hluti en... 

Mikið ofboðslega þykir mér vænt um nuddbekkinn minn. 

Fór að hugsa í gær um minningarnar sem við höfum upplifað saman. 

Öll dásamlegu samtölin sem ég hef átt við manneskjur sem liggja á honum, allar yndislegu þagnirnar, allar manneskjurnar sem hafa hvílst á honum og slakað á. Hef átt mjög áhugaverðar samræður við fólk sem liggur á þessum bekk. Trúnaðarsamtöl. Eintöl. Einkasamtöl. Einstaka tár. Þykir svo gott þegar fólk treystir mér fyrir því sem það er að díla við. 

Manneskjur að hvílast, heilast, einstaka vellíðunarstunur (þykir svo vænt um þær.) 

Manneskjurnar mínar í djúpslökun. Finn fyrir endalausri ást þegar ég hugsa um það. Stundir þar sem mér hefur liðið eins og millistykki fyrir uppsprettuna. Stundir þar sem gleði og hlátur hefur verið ríkjandi, já og fliss. 

Einkunnarorð bekksins eru virðing og traust. Allar stundir með bekknum eru heilagar og fara ekki lengra. Allt sem á honum gerist er trúnaðarmál. 

Á margar minningar um ferðalögin á milli fyrirtækja í alls konar veðrum með bekkinn, heimanudd, óléttunudd, heilunarnudd.

Nudd þar sem ég hef náð að breyta líðan fólks til hins betra.

Elska þennan bekk.



Tuesday, December 8, 2020

Alkemistinn

Átti afmæli í fyrradag:

Það er afmælisdagurinn minn. Stærsta gjöfin er alger sátt. 

Finn fyrir djúpstæðu þakklæti fyrir manninn minn og börnin mín. 

Langar ekki að vera neins staðar annars staðar. Ekki með neinum öðrum einhvers staðar annars staðar. 

Allt er eins og það á að vera. 

Mér líður dáldið eins og alkemistanum sem leitaði og leitaði yfir fjöll og firnindi en áttaði sig svo á því að fjársjóðurinn var heima allan tímann. 

Þakklát. Sátt.


Tuesday, December 1, 2020

Ef bara...

 ... ég gæti farið í nudd til sjálfrar mín.

Bæði myndi ég vita allt um þarfir nuddþegans; áherslusvæði og nákvæma staðsetningu triggerpunkta OG...

... ég myndi finna hvernig það er að fara í nudd til mín.

Er sumt sem ég geri eitthvað off? Hvað er on? 

Er búin að hugsa þetta alveg nokkrum sinnum þegar mér er illt einhvers staðar.