Thursday, February 25, 2021

Jörð skelfur.

Veröldin hætti að vera stöðug í gær. Mega óþægilegt. 

Tengi mikið við fólk sem er með sjúklega flughræðslu. Leið þannig í gær. Eins og allt væri að hrynja hreinlega og var barasta ekki viss um hvort að húsin myndu halda. Slíkur var hrisstingurinn..

Er samt mjög stolt af mér. Var sem sagt nýkomin inn í bygginguna þar sem ég nudda einu sinni í mánuði og sat pissandi á klósetti á 3ju hæð þegar seinni skjálftinn reið yfir. 

Allt hrisstist (hann var vel rúmlega 5 á richter) og ég hélt mér í vaskinn. Þetta var alveg þannig..

Þegar ég hitti fólkið sögðu þau mér að það væri von á fleiri og stærri skjálftum og það væri búið að lýsa yfir hættustigi !

!

Varð hugsað til stelpunnar minnar (7 ára) og nuddaði svo fólkið. Bjóst við næsta skjálfta allan tímann en nuddaði bara nokkuð vel. Er 95% viss um að nuddþegarnir hafi ekki skynjað hræðslu mína og ótta.

Hot damn.

Ætli þetta fari ekki rakleiðis í reynslubankann.

Wednesday, February 17, 2021

Kæra dagbók

Í dag er ég lítil.

Vaknaði slöpp eftir að hafa verið með stigvaxandi blöðrubólgu í nokkra daga.

Ég er ekki vön að vera veik og varð allri lokið þegar ég sá að ég var með 37,8 stiga hita. Finnst það alveg fullt. 

Í fyrsta skipti á ferlinum hringdi ég mig inn veika. Ég átti að vera að nudda í fyrirtæki í dag. Gerði það samt ekki fyrr en í fulla hnefana. Var komin með allt út í bíl, nýbúin að sjá 37,8 gráðurnar og fann að þetta var bara ekki að fara gerast. 

Langaði mest til að fara að skæla og hringja í mömmu. Sem ég og gerði. 

Elsku mamma, hvar væri ég án þín?

Það koma svona dagar þar sem allt gengur á afturfótunum. Kona frá stéttarfélaginu hringdi og sagði að bústaðurinn sem við pöntuðum hafi bilað. Bíllinn er bilaður og svo bilast maður sjálfur. 

Mon dieu.

P.s. sem betur fer gerast svona gloríur ekki oft og ég er ansi snögg að koma mér aftur á réttan kjöl.

P.p.s Rétti kjölur, here I come!



Wednesday, February 10, 2021

Crown

Við Svanur erum komin á kaf í hámglápi. Fundum þáttaseríuna Crown á netflix og tökum nú oftast einn þátt á dag á virkum kvöldum.

Mér finnst voða gaman að vera komin á kaf í svona. Bæði er þetta okkar samverustund, við erum í svona hjónastellingum á meðan við horfum og mér finnst þetta mjög áhugaverðir þættir af því að þeir eru byggðir á sönnum atburðum. Þetta er um Elísabetu Bretadrottningu og alla söguna í kringum konungsveldið.

Sit allavega einbeitt og nýt hverrar mínútu, missi ekki fókus (Svanur dottar stundum, sérstaklega yfir þættinum í gær þegar föðurbróðir Elísabetar lést en hann var í exile í Frakklandi af því að hann sveikst undan skildu sinni og sagði upp sem konungur eftir aðeins 10 mánuði.)

Allavega. Það er ekki oft sem undirrituð missir hökuna niðrá bringu en það gerðist þegar ég horfði á þátt nr 20 eða eitthvað eða kannski var það bara eftir fyrstu seríuna..

Við settumst sem sagt niður; okkar stund okkar staður og ýttum á play og ...

Það var búið að skipta út öllum leikurunum! 

Ég sem var komin svo vel inn í hvaða andlit væri hver svo bara .. ekki minnst á það einu orði .. bara aðrir leikarar og eldri í öllum hlutverkum!!

Svanur sagði að þarna væri drottningin orðin fertug og komin á þann aldur að það þurfti að skipta ungu konunni út (!)

Hann fékk 'a slap in the head' fyrir þetta comment.

Ó, já.




Wednesday, February 3, 2021

Lukkunar pamfíll

Mikið ofboðslega er ég þakklát. 

Fyrir lífið mitt eins og það er núna. 

Ég er að gera það sem ég vil vera að gera í lífinu og er að kynnast öðrum ljósverum sem eru á svipaðri tíðni og ég og ég tengi við.

Tek því ekki sem gefnu og finn fyrir þakklæti frá dýpstu sálarrótum.

Að ráða sínum eigin tíma sjálfur og hvað maður gerir í lífinu er mikil blessun. 

Namaste.