Wednesday, February 17, 2021

Kæra dagbók

Í dag er ég lítil.

Vaknaði slöpp eftir að hafa verið með stigvaxandi blöðrubólgu í nokkra daga.

Ég er ekki vön að vera veik og varð allri lokið þegar ég sá að ég var með 37,8 stiga hita. Finnst það alveg fullt. 

Í fyrsta skipti á ferlinum hringdi ég mig inn veika. Ég átti að vera að nudda í fyrirtæki í dag. Gerði það samt ekki fyrr en í fulla hnefana. Var komin með allt út í bíl, nýbúin að sjá 37,8 gráðurnar og fann að þetta var bara ekki að fara gerast. 

Langaði mest til að fara að skæla og hringja í mömmu. Sem ég og gerði. 

Elsku mamma, hvar væri ég án þín?

Það koma svona dagar þar sem allt gengur á afturfótunum. Kona frá stéttarfélaginu hringdi og sagði að bústaðurinn sem við pöntuðum hafi bilað. Bíllinn er bilaður og svo bilast maður sjálfur. 

Mon dieu.

P.s. sem betur fer gerast svona gloríur ekki oft og ég er ansi snögg að koma mér aftur á réttan kjöl.

P.p.s Rétti kjölur, here I come!



No comments: