Friday, October 29, 2021

Nærandi

Átti svo góðan og nærandi gærdag.

Hitti góða vinkonu fyrir vinnu. Veðrið var gott svo við fórum í Öskjuhlíðina. Þetta var svona crispy haustveður. Mosinn var rakur. Komum okkur fyrir á góðum stað og áttum svo gott samtal. Drukkum cacao og gerðum öndunaræfingu. 

Fékk svo gullið faðmlag í lokin. Langt og nærandi. Svo gott. 

Í vinnunni kom meðal annars tengiliðurinn minn í nudd og við áttum líka gott samtal. Mikið hlegið. 

Um kvöldið fór ég svo í afmæli til vinkonu minnar. Hún hélt það í Álftaneslaug og við áttum gott samflot öll saman. Heiti potturinn var einstaklega notalegur á eftir og þar hitti ég kunningja minn og fékk aftur einstaklega langt og gott faðmlag. 

Svo var hópknús í lokin. Þvílík himnasending. 

Afmælisbarnið hafði orð á því fyrir flotið að hún hefði tekið eftir því, eftir á, þegar hún var búin að bjóða í afmælið að hún boðsgestirnir vinni allir með ljósið. 

Mér fannst það fallegt. 

Snortin. Þakklát. 


Friday, October 22, 2021

Stynjandi

Fékk hinn fullkomna kúnna í vikunni.

Vildi að fleiri myndu láta í sér heyra. Þá nudda ég miklu betur og næ að njóta vinnunnar betur.

Þessi elska stundi svo fullkomlega. Af því að það var svo gott að leggjast á heitan bekkinn; svona ánægju stuna og svo af því að nuddið var kærkomið en líka af því að bakið var svo nuddþurfandi.

Svo svona stunur af því að þetta tók líka á á köflum. 

Þetta eru uppáhalds kúnnarnir mínir. Líka andlegir vinir sem koma og treysta mér fyrir sér og ferðast svo í eitthvert út í geim á meðan ég held rýminu. 

Svo gott. Allt svo gott.

Friday, October 15, 2021

If you tempt me, my tank is on empty...

 ... no patience is in me and if you offend me...

Eminem er, já eða var allavega, með þetta.

Þessi vika er búin að vera eins og þetta lag eftir hann. Hún byrjaði svakalega vel. Mjög lítið að gera í aðstöðunni sem mér finnst stundum nice. Svo kom miðvikudagurinn og þá skall á mig andleg þoka og þreyta eins og þúsund tonn. Allt erfitt.

Las á hærri vitund hópnum á Facebook að margir væru að finna það sama. 5 plánetur væru í retrogate og þar á meðal Mars!

Ok, get ekki útskýrt það nánar, er ekki svo mikið inní gangi himintunglanna, en ég var allavega ekki ein með þessa líðan.

Það var dáldið bagalegt að líða svona akkúrat þegar konuhringurinn minn í Móum var að byrja. Fyrsta kvöldið. 

Er að sjá að í andlega heiminum eru men's circles og womans circles. Allavega, við komum allar með einn hlut til að setja á okkar sameiginlega altari. Ég kom með kristal frá ömmu Svövu.

Í gær tók svo í beinu framhaldi einhver tryllingur við. Grunar sterklega fyrirtíðaspennu um þessar geðsveiflur og vil skella skuldinni á það. Varð ofboðslega pirruð þegar þegar ég kom heim úr vinnunni. Það var allt að. Hurðahúnninn á hurðinni að baðherberginu var bilaður, vatn kom út frá þvottavélinni sem var stopp í miðju prógrammi af því einhver mannbjáni (hér eruð þið að fá smjörþefinn af því hvernig mér leið eftir vinnu í gær) hafði tekið vatnið af allri blokkinni án þess að láta neinn vita. Ég fann að ég þurfti einhvern æsing og hringdi í númerið á viðgerðarbílnum sem var lagt fyrir utan. ... Setti líka nokkur vel valin, já eða ekki, orð inn á Facebook grúppuna um vatnsleysið (ég meina, það var ekki hægt að sturta niður eða neitt. Bara ekkert vatn. Fyrirvaralaust. Ekkert.)

Setti svo headphonin á mig og tók tryllings dans til að losa smá orku og svo kom vatnið á.

Ég var aðallega svona pirruð af því að það var tveggja klukkutíma (!) foreldrafundur í gærkvöldi sem ég hafði bara enga orku, nennu eða rými til að fara á. Það var allt í gangi heima. Lét mig samt hafa það.

Allavega, finn ennþá mikla vanlíðan í hálsi og öxlum. Eins gott að ég er að fara í nudd í dag. 

Að vakna og heyra þennan öskrandi umferðarnið alla morgna er farið að segja til sín aftur. Hann er ærandi. 

Að búa alveg við Miklubraut er fáránlegt. 

Friday, October 8, 2021

Alone time

Fyrir nokkrum árum fór ég á retreat. Meistari Arnór var með það og það var rétt hjá Grímsnesi. Einhvers konar sumarbústaða himnaríki. Nokkrir bústaðir og svo samkomustaður í miðjunni sirka.

Himintunglin og englarnir röðuðu því þannig upp að ég fékk að vera ein í bústað.

Mér hefur aldrei liðið eins vel.

Ég man að mitt í minni rosalegustu andlegri raðfullnægingu ever kirjaði ég "takk fyrir, takk fyrir, takk fyrir" viðstöðulaust. Það var ekki ég heldur mitt æðra sjálf. 

Mín innri vera þurfti þessa stuttu einveru og mín innri vera þarf svona lagað aftur.

Þessi vika er búin að vera þannig. Borgin virkar kæfandi á mig, er með hugann í víðáttu náttúrunnar og vil hvergi annars staðar vera. Lífsins álag er misjafnt en þessa viku hefur kvíðadýrið verið að búa sér bústað hið innra.

Hljóp ansi hart á hamstrahjólinu í dag til að særa það út. Finn að það virkaði. Nýjasti hausverkurinn var sem sagt að klambra fjölskyldunni minni saman í sólarlandaferð. Hausverkur að vera með svona marga einstaklinga á sínum snærum. 

Réðst á málið í morgun og talaði við strákamann hjá Úrval útsýn. Kláraði málið og gekk frá. Borguðum staðfestingargjald og allt.

Fann að dýrið særðist út.

Lífið mitt er búið að vera þannig að undanförnu að eitt tekur við af öðru. Bilaður kjálki sem snarþagnaði þegar höndin bilaði sem snarþagnaði þegar bíllinn bilaði sem lagaðist þegar flókna fjölskyldan ætlar saman í frí.

Finn að núna kemur næði. 

Var freistað að koma með á námskeið sem endar á retreat-i í Birkihofi. Eins og við manninn mælt byrjar það akkúrat þegar ég ætlaði með Óla mínum á improv og endar einmitt þegar við ætluðum loksins, loksins á Kardimommubæinn. Er búin að breyta miðanum þrisvar, eða allavega tvisvar. (Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er lúxusvandamál.)

Þrái mosa, móa, tærar ár og fossa og berg og víðáttu og Þingvelli. 

Ætla í viðhorfsbreytingu. Það skiptir öllu máli hvernig ég lít á hlutina.

P.s. fór í foreldraviðtal með Stefán i morgun. Er svo endalaust stolt af honum. Það er alltaf allt gott með hann á þessum fundum og kennarinn hefur bara ekkert nema gott að segja um fermingarbarnið 

Sérstakt að við erum bara að fara með eitt barn út. Hin teljast öll vera fullorðnir einstaklingar. 

Omg.

Konan á snyrtistofunni sagði samt við mig áðan að vegna þess hvað ég væri ung og blabla.. heyrði ekki hvað hún sagði svo enda skiptir það ekki máli. Hún sagði að ég væri ung:)

Friday, October 1, 2021

Can I get some O2 in here?!

Pistill vikunnar verður í hápunkti vikunnar og lágpunkti vikunnar.

Ég er svo heppin af mér dettur strax í hug fjórir hápunktar en bara einn lágpunktur. 

Tek fyrst tvo hápunkta, svo lágpunktinn og svo hina tvo hápunktana. Eins konar samloka.

Hápunktur vikunnar nr 1:

Til mín kom yndisleg kona í nudd. Við tengdum mikið og áttum í sálarsamræðum. Elska þegar ég næ svona sterkum tengslum við aðra manneskju. Hún sagðist vera "honored to be in my presence" og að hún hélt fyrst að ég væri miklu yngri en ég actually er. Hún fékk innilegt faðmlag.


Hápunktur vikunnar nr 2:

Í hádeginu á miðvikudaginn fór ég í hádegistíma til Láru í Móum. Þekkti marga og átti dásamlega stund með yndislegu cacaoi. Sungum saman möntrur fullum hálsi. Leið dásamlega.

Lágpunktur vikunnar kemur rakleiðis eftir hápunkti vikunnar því dásamlegu hádegisstundinni fór ég að vinna í skrifstofunuddinu. Þessir miðvikudagar sko.. rýmið sem ég var að vinna í var svo loftlaust eitthvað að mér leið illa allan tímann. Fannst ég bara ekki getað andað. Var heldur ekki í stuði. Langar alltaf beint niðrað sjó eftir þessi skrifstofunudd á miðvikudögum í ferskt loft.

Hápunktur vikunnar nr 3:

Fór í dásamlegt flot í gærkvöldi í Álftaneslaug til Olgu minnar. Það var einn maður sem var líka að nudda. Við vorum bara þrjú sem flutum og fengum því mikla athygli; mikla snertingu og mikið nudd. Dásamlegt rabb eftir flotið og það fyndna var að þegar ég hélt að maðurinn væri að nudda mig var það actually Olga. Þau setja sko yfir augun á manni svo maður sér ekki neitt.. (myndina fann ég á netinu..)



Hápunktur vikunnar nr 4:

Átti æðislegt hádegi á Mama með góðum vinum. Rölti svo um bæinn og útrétti. Sól og allt sko:)

Rosalega góð vika að baki.