Friday, October 8, 2021

Alone time

Fyrir nokkrum árum fór ég á retreat. Meistari Arnór var með það og það var rétt hjá Grímsnesi. Einhvers konar sumarbústaða himnaríki. Nokkrir bústaðir og svo samkomustaður í miðjunni sirka.

Himintunglin og englarnir röðuðu því þannig upp að ég fékk að vera ein í bústað.

Mér hefur aldrei liðið eins vel.

Ég man að mitt í minni rosalegustu andlegri raðfullnægingu ever kirjaði ég "takk fyrir, takk fyrir, takk fyrir" viðstöðulaust. Það var ekki ég heldur mitt æðra sjálf. 

Mín innri vera þurfti þessa stuttu einveru og mín innri vera þarf svona lagað aftur.

Þessi vika er búin að vera þannig. Borgin virkar kæfandi á mig, er með hugann í víðáttu náttúrunnar og vil hvergi annars staðar vera. Lífsins álag er misjafnt en þessa viku hefur kvíðadýrið verið að búa sér bústað hið innra.

Hljóp ansi hart á hamstrahjólinu í dag til að særa það út. Finn að það virkaði. Nýjasti hausverkurinn var sem sagt að klambra fjölskyldunni minni saman í sólarlandaferð. Hausverkur að vera með svona marga einstaklinga á sínum snærum. 

Réðst á málið í morgun og talaði við strákamann hjá Úrval útsýn. Kláraði málið og gekk frá. Borguðum staðfestingargjald og allt.

Fann að dýrið særðist út.

Lífið mitt er búið að vera þannig að undanförnu að eitt tekur við af öðru. Bilaður kjálki sem snarþagnaði þegar höndin bilaði sem snarþagnaði þegar bíllinn bilaði sem lagaðist þegar flókna fjölskyldan ætlar saman í frí.

Finn að núna kemur næði. 

Var freistað að koma með á námskeið sem endar á retreat-i í Birkihofi. Eins og við manninn mælt byrjar það akkúrat þegar ég ætlaði með Óla mínum á improv og endar einmitt þegar við ætluðum loksins, loksins á Kardimommubæinn. Er búin að breyta miðanum þrisvar, eða allavega tvisvar. (Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er lúxusvandamál.)

Þrái mosa, móa, tærar ár og fossa og berg og víðáttu og Þingvelli. 

Ætla í viðhorfsbreytingu. Það skiptir öllu máli hvernig ég lít á hlutina.

P.s. fór í foreldraviðtal með Stefán i morgun. Er svo endalaust stolt af honum. Það er alltaf allt gott með hann á þessum fundum og kennarinn hefur bara ekkert nema gott að segja um fermingarbarnið 

Sérstakt að við erum bara að fara með eitt barn út. Hin teljast öll vera fullorðnir einstaklingar. 

Omg.

Konan á snyrtistofunni sagði samt við mig áðan að vegna þess hvað ég væri ung og blabla.. heyrði ekki hvað hún sagði svo enda skiptir það ekki máli. Hún sagði að ég væri ung:)

No comments: