Friday, April 29, 2022

Twitter

"Twitter er ekki ánægt" segi ég við Svan þegar eitthvað hefur gerst í þjóðfélaginu. 

Hvað ég er að gera á Twitter veit ég ekki. Það er í raun alveg úr karakter. 

Enduruppgötvaði Twitter fyrir nokkrum mánuðum og fannst þetta voða sniðugt. 

Set bara inn jákvæðar færslur og hrósa öðrum. Finn samt að ég á ekki heima í þessum afkima alnetsins.

Stundum póstar fólk þarna inn og talar um Twitter sem "forritið" sem er kannski smá biturt.

Þetta eru háskólaárin all over again þegar ég fann mig ekki með vinsæla fólkinu og þau ekki með mér. Ég átti samt tvær góðar vinkonur í stjórnmálafræðinni og við skemmtum okkur konunglega, bara við þrjár.

Á síðustu árum hef ég sett fókus á hjartastöðina og misst þar af leiðandi dáldið áhuga á stjórnmála umræðunni (en verð samt alveg pirruð yfir spillingunni.) Hárbeitt, stundum óvægin, beinskeitt og gagnrýnin stjórnmálaumræðan á Twitter missir því dáldið marks hjá mér.

Samt kíki ég á þetta nokkrum sinnum á dag þar sem þetta er í símarúntinum mínum (Facebook, Instagram, gmail, sms, internet explorer fyrir fréttir), Twitter, Wassup og tiktok. 

Já, ég er alltof mikið í símanum mínum.

Allavega, ég held líka, að flestallir sem ég followa sé extrovertar og ég er jú viðkvæmur introvert. 

Ég er samt með nokkra uppáhalds sem ég fylgi og brosa oftast út í annað yfir tístunum þeirra.

Ég er bara með 8 fylgjendur eða eitthvað og ef ég set eitthvað inn er það alltaf sami eini vinur minn sem lækar. 

Jú og Óli minn. 

That's it. Thats the blog of the week.


Friday, April 22, 2022

Já elskan

Loksins fann ég podcast. 

Vantaði eitthvað að hlusta á og boom, fundið!

Þetta byrjaði þannig að ég fann podcast sem heitir Poppsálin og hlustaði á þátt sem var tekin upp í MH og fjallaði um það þegar konur fæða allt í einu börn en vissu ekki að þær væru óléttar. Þetta syndrome heitir eitthvað því þetta hefur stundum gerst. Þarna var fjallað um mál Katie nokkurrar sem býr á Englandi minnir mig.

Allavega, konan með Poppsálina benti á þetta podcast: Já elskan þar sem tvær ungar konur kafa ofan í skrýtin mál. Í podcastinu Já elskan er ég til dæmis búin að hlusta á athyglisverðan þátt um þegar öldruð kona fór í mál við McDonald's vegna þess að hún skaðbrenndist á alltof heitu kaffinu þeirra.


Þátturinn um vísindakirkjuna var líka afar athyglisverður og svo hlustaði ég á þátt um stórfurðulegan sértrúarsöfnuð á Indlandi sem heitir Aghori Sadhuser og stundar meðal annars mannaát og kynlíf með líkum. Það var held ég skrýtnasti þátturinn sem ég hef hlustað á með þeim stöllum hingað til. 

Allavega, það sem ég elska mest við þetta podcast er samspil stelpnana sem eru með það. Held að þær heiti Kristjana og Ingibjörg. Ég skynja hvað þær eru nánar og góðar vinkonur. Sá mynd af þeim á Instagram síðunni þeirra og er ekki með á hreinu hvor er hver. Elska hvað sameiginlegur áhugi þeirra á þessum skrýtnu málefnum er tær.

Sakna þess að hafa þétt net af konum í kringum mig. Vildi að ég ætti svona góða vinkonu. Já, eða systur.

Ég á eina svona nörda vinkonu sem væri vís til að grafa í einhver svona skrýtin málefni. Var að hafa samband við hana.

Við ætlum að hittast í næstu viku:)


Friday, April 15, 2022

Árstíðaskipti

Mikið sem er gaman þegar vorið kemur og er við það að svipta hulunni af sumrinu.

Ferming Stefáns er afstaðin og gekk vel. Núna sveima páskar yfir vötnum en ég var ekki alveg búin að átta mig á öllum þessum rauðu dögum og er hálf áttavillt á dögunum. Var að vinna í gær (skírdag) og á morgun (laugardag.)

Byrjaði að hlusta á næsta geisladisk og þessi er sko keeper:

Oh hvað það fylgir mikil saga þessum disk og nostalgía. Minningar úr níunni einhvern veginn en samt engin ákveðin. Ég var ein í þessu blur æði mínu og tók auðvitað blur framyfir Oasis alla daga þó ég hafi nú alveg hlustað á þá líka. Ég átti líka blur videospólur og var sannfærð um að Damon Albarn væri sálufélagi minn.

Þegar hann fór að koma til Íslands fannst mér eins og ég hafi secretað hann hingað.

Innri baráttan er að mér er boðið í dans partý á sumardaginn fyrsta. Málið er að þetta er um kvöldið og ég þarf að vakna snemma daginn eftir. Reynsla mín af danspartýum er að ég er lengi að ná mér niður eftir þau, það er nú talað um trylltan dans í þessu tilviki.. sko viðburðurinn endar á slökun en halló, þetta er þá búið 23:30!

Tregi minn fellst í því hvort að ég sé svona gömul að ég meiki þetta ekki. Af því að auðvitað vil ég vera ung.



Tuesday, April 5, 2022

Upgrades

Jæja.

Eitthvað er maður að ... þroskast.

Næsti geisladiskur í röðinni var þessi;



Margt má segja um Eminem. Oft hefur mér þótt hann góður, geggjaður jafnvel, syng með og alles.

En eitthvað fór textinn þveröfugt ofan í mig núna. Hann rappar um að nauðga 15 ára stúlku, um hversu dópaður hann sé og vopn og svo framvegis. Blondes, forty's and bitches.

Þessi diskur fer rakleiðis í ruslið.

Buygones.