Í eilífri leit minni að heilun gerði ég tvennt í dag.
Verkirnir sem ég var að vona að myndu hverfa við bless-bless-lykkja aðferðina eru komnir aftur. Miklir stöðugir verkir í dag og eru búnir að vera alla vikuna í rauninni. Hringdi því og pantaði tíma hjá þvagfæraskurðlækni. Fékk reyndar ekki tíma fyrr en í lok september en hey, það er eitthvað allavega.
Hef verið að veigra mér við að panta tíma hjá þessari tegund af lækni af því að það hljómar bara ekki spennandi. Sé fyrir mér einhverjar þræðingar í gegnum þvagrásina, ekki eitthvað sem maður er spenntur fyrir að gera.
Eftir að hafa horft á áhugaverða heimildamynd á Netflix sem heitir How to change your mind og er um hugvíkkandi efni er ég orðin opin með að prufa sveppi í lækningarskyni. Apparantly geta þeir aðstoðað og jafnvel læknað geðsjúkdóma á borð við OCD. Veit um marga sem eru að microdosa og fara í "ferðalög." Ólíklegasta fólk hreinlega.
Er orðin dáldið þreytt á að vilja endilega telja upp á 21 þegar ég er að læsa aðstöðunni.
Ég meina.. úff!
P.s. þetta er ekki þvagfærasýking. Keypti prufu í dag í apótekinu. Er orðin það desperate að komast að því af hverju þessir verkir stafa að ég keypti líka prufukassann sem var við hliðina á þvagfærasýkingar prufukassanum.
Er sem sagt ekki með klamydíu :D fékk augngotur frá öllum þremur afgreiðslukonunum á bakvið afgreiðslukassann! Í örvæntingu minni googlaði ég einkenni klamydíu og hey, er oft að fá augnsýkingar sem er eitt einkennið. Það var þarna góður klukkutími sem ég var að pæla hvort við Svanur værum búin að vera með þetta í öll þessi ár... en nei..
Ráðgátan heldur áfram.
Geri fastlega ráð fyrir að röntgenmyndirnar hafi komið vel út fyrst enginn hefur haft samband.
Var það illa haldin í vikunni að mig langaði til að tala við Guð.
Ekkert í sambandi við frið á jörð eða neitt svoleiðis. Ætli manneskjan sé ekki sjálfsmiðaðri en svo.
Húsmóðirin fór í ófrjósemisaðgerð fyrir 8 árum. Ætla ekki að eignast fleiri börn í þessu lífi. Man svo vel núna af hverju ég fékk mér lykkjuna. Út af hamfara blæðingum.
Sem sagt eftir að lykkjan var tekin þá eru hamfara blæðingarnar byrjaðar aftur. Þurfti að hafa mig alla við að ná í vinnuna á réttum tíma á mánudaginn vegna túrtappatengdra mála.
Meiðslin fóru fram á hvíld og frí frá vinnunni sem var ágætt því til heimalandsins kom óvæntur glaðningur frá Svíþjóð.
Gaman að bestu vinkonur vikunnar heita báðar Sunneva.
Fór í dásamlega bæjarferð með Sunnevu frá Svíþjóð á góðviðrisdegi.
Lán í óláni að hún komi einmitt þegar ég er í fríi í vinnunni.
Helgin er óráðin sem ég kann nú ekkert sérstaklega vel við. Líður alltaf betur þegar ég veit nákvæmlega hvað er að fara gerast.
Ólíkt mörgum er ég ekki spontanious týpan.
Namaste.
P.s. ég hlakka til haustsins. Sem er skrýtið af því að það er sumar og bongó. Finnst bara allt og allir vera út um allt. Kann svo vel við regluverk haustsins.
P.p.s hef ákveðið að fara ekki meira á tjaldsvæði á árinu. Svo ekki minn tebolli!
Gleðilegt nýtt ár
-
Við tókum á móti nýja árinu í faðmi fjölskyldunnar í Flórída. Það var
yndislegt að heimsækja Öldu og Fred og Annettu. Þau tóku öll svo vel á
móti okkur o...