Var það illa haldin í vikunni að mig langaði til að tala við Guð.
Ekkert í sambandi við frið á jörð eða neitt svoleiðis. Ætli manneskjan sé ekki sjálfsmiðaðri en svo.
Húsmóðirin fór í ófrjósemisaðgerð fyrir 8 árum. Ætla ekki að eignast fleiri börn í þessu lífi. Man svo vel núna af hverju ég fékk mér lykkjuna. Út af hamfara blæðingum.
Sem sagt eftir að lykkjan var tekin þá eru hamfara blæðingarnar byrjaðar aftur. Þurfti að hafa mig alla við að ná í vinnuna á réttum tíma á mánudaginn vegna túrtappatengdra mála.
Svo ég spyr Guð. Af hverju? AF HVERJU?!
P.s Af hverju yfir höfuð óþarfa þjáningar?
P.p.s. og svo er það fyrirtíðaspennan..
No comments:
Post a Comment