Ætli hver maður hafi ekki sitt eigið persónulega samband við kaffi?
Sá tiktok um daginn þar sem einhver sagði að ef kaffi yrði fjarlægt af jörðinni myndi efnahagurinn hrynja.
Eins og hver annar finnst mér sopinn góður. Bara þessi morgunbolli með morgunmatnum. Mmmm.. gott. En þegar fólk er eins og ég, með viðkvæmt taugakerfi og andstæðan við neuro typical þá getur sopinn góði komið í bakið á manni seinnipartinn með skemmtilegheitum eins og spennu, kvíða, óróleika í kerfinu og það er ekki gott. Það getur reyndar orðið mjög slæmt.
Skipti sem sagt yfir í decaf þessa viku þangað til í gær og vá, munurinn! Var suuuultuslök og kennslan í Mími kom mér ekkert í uppnám (vanalega er ég ein taugahrúga þegar ég er að kenna.) Fór svo bara í jólaboð eins og venjulegt fólk.
Allavegana, þessi póstur er áminning fyrir mig, eins konar note to self, að um leið og ég verð eitthvað stressuð, skiptu þá yfir í decaf elskan. Er líka komin með þetta eðal decaf frá Nespresso. Það er það gott að maður finnur varla muninn.
Dæmi um hvernig kaffi hefur áhrif á líkamsstarfsemina hjá mér þá var ég búin að vera með fjörfisk í neðra augnloki vinstra megin (alltaf allt vinstra megin) í sirka 10 daga en hann fór þegar ég skipti yfir í koffínlaust. Amazing ha?
Namaste