Ætli maður eldist ekki eins og aðrir.
46 ára maður lifandi, það er gamalt. En ætli maður fagni ekki minnkandi athygli og meiri sjálfsást eins og hver annar sem þroskast og fer annan hring í kringum sólina.
Er sátt við mitt líf þó það séu alveg vankantar á því svo sem. Ég er minn eigin herra sem er markmið sem ég setti mér fyrir nokkrum árum. Ég geri það sem ég vil þegar ég vil, sem er árangur í mínum heimi. Allt sem ég í rauninni vildi. En eins og við öll vitum þá eru hlutirnir ekki það einfaldir. Vil meiri félagsskap, meiri ást, meiri peninga, meira frelsi, meira sjálfstæði. Í rauninni vil ég vera á vinnustað þar sem ég er ekki með leiðinlegan yfirmann. Ég vil að vinnutíminn sé sveigjanlegur því að hitt hefur aldrei meikað sens fyrir mér. Eins lengi og fólk vinnur verkefnin ætti það ekki að skipta máli.
Það er allt á fullu spani núna. Desember er eiginlega farinn, sé varla framá að hafa tíma fyrir hitting ef einhver vildi nú hitta mig. Er að fara halda jólavöffluboð á morgun og koma öllum pökkum út áður en við fljúgum í burtu.
Eigum stefnumót við sólina.
No comments:
Post a Comment