Friday, January 31, 2025

Virk

 ... er orð ársins hjá mér. 

Er búin að vera frekar óvirk í lífinu. Fæ stundum hugsanir um að gera eitthvað eins og sjálfboðavinnu eða reyna að finna mér (annað) aukastarf en svo er oft eigið líf og umhirða íbúðarinnar nóg. Það er samt komið að þeim punkti að ég hef of mikinn frítíma og stefnan er tekin á Virk. Fara í Virk og reyna að mjaka mér eitthvað út í atvinnulífið. Það eru komin næstum 10 ár frá algeru burnouti en þegar kulnunin er í einkalífinu flækjast málin. 

Vikan var bara lala. Ef það er ekki blaðran þá er það legið. Í þessari viku voru það tveir dagar og tvær nætur þar sem ég þurfti að lyfja mig upp vegna verkja. Í þetta skiptið var það blaðran. Fór til þvagfæraskurðlæknis í síðustu viku sem sagði mér að hætta köldu böðunum og sjósundi því að kuldi væri ekki góður fyrir þvagblöðruna mína. Er komin, að hans ráði, á tveggja mánaða kúr þar sem ég tek trönuberjahylki og C vítamín saman kvölds og morgna. Sakna köldu baðanna.

Verkefni vikunnar var að kaupa flugmiða fyrir fjölskylduferðalag í ágúst. Við þurftum auðvitað að flækja málin og verðum nokkra daga í Kaupmannahöfn áður en við fljúgum til Florens.

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar ég var óvart búin að vera ein mánudaginn og þriðjudaginn og hitti loksins fólk á námskeiði. Stundum er það besta meðalið. Að vera í kringum fólk. Það kveikti líka aðeins á heilasellunum það sem var verið að fjalla um á þessu námskeiði sem er hjá Rikka (Ríkharður sem er með nálastungur.) Hann vinnur með nálastungur og orkubrautirnar (meridians) og er að kenna okkur hvernig við vinnum á mismundandi brautum eftir mismunandi manneskjum. Þó þær séu með verk á sama stað. Snýst um að lesa fólk. Spennandi.

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var að vinna og það voru iðnaðarmenn út um allt á hæðinni að skipta um klósett og vaska. Það voru engin læti í þeim fyrr en akkúrat og nákvæmlega þegar ég byrjaði mína meðferð á mínum kúnna. Þá byrjuðu þeir að bora í kór. Helvískir. Líka í seinni meðferðinni þennan dag. Verð að viðurkenna að það truflaði mig smá. Hef samt ekki nennu í að hafa samband við Eik og spyrja út í þetta. Líka af hverju reikningurinn var hærri en vanalega. Skrýtið, en ég bara hef ekki orku í það. Sem á bara við um heilmargt þessa dagana. Langar t.d. í pallatíma í World class. Mér finnst það bara alveg heilmikil fyrirhöfn að koma mér á staðinn....

Breytingaskeiðið cha, cha cha,

Namaste vinir.


Saturday, January 25, 2025

Óður til konu. Part II

 Að þessu sinni er konan sem á skilið óð Tinna vinkona. 

Konan er einfaldlega gull. Hverjum öðrum býður maður í matarboð og bara veit að það er fullkomlega í lagi að biðja hana um fullt af aðstoð við matseldina. Það er hún Tinna mín. Auðvitað kom hún með rauðvínsflösku og konfekt enda er konan gersemi. Hún hugsar alltaf um alla í kringum sig. Er á móti snjallsímum og keyrir yndislega hægt.

Þeim sem manni líður best með eiga skilið mestan tímann.

Vikan var æðisleg. Tók með betri ákvörðunum ársins og fór á dáleiðslunámskeið í Heiðmörk. Finn að ég hef losnað við eitthvað sem hefur íþyngt mér lengi. Er öll léttari og hef svifið um á bleiku skýju þessa daga eftir námskeiðið. Allt er létt og auðvelt og hlutirnir flæða áreynslulaust. 

Hápunktur vikunnar er öll sú vellíðan sem ég hef fundið eftir námskeiðið. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég fann að það var mér ofviða að elda ofan í 9 manns án hjálpar.

Markmið vikunnar var ekkert að þessu sinni. Ég hafði bara nóg að gera og mátti ekki við meiru. Er komin á þann aldur að ég man ekki einu sinni hvað það var en eitthvað var það (hehe.)

Þrátt fyrir að hinn ytri heimur virðist vera kominn í hræðilegar ógöngur er svo margt gott fólk þarna úti sem vill vel. Hinn innri heimur virðist vera í góðu standi.

Namaste.

 

 

Friday, January 17, 2025

Im back baby

Gladdist mjög í vikunni þegar ég fékk beiðni, reyndar frá kollega, um að koma aftur á uppáhalds vinnustaðinn minn að nudda. 

 

Gamanið kárnaði í gærkvöldi þegar ég fattaði í miðjum yogatíma að það væri líklegast enginn nuddbekkur í rýminu. Hafði samband við partnerinn minn og jú, það er tilfellið. Þarf því að standa í reddingum á mánudaginn en ég er búin að ákveða að það komi hjálp úr öllum áttum og að þetta verði ekkert mál.

Vikan var alls konar, ég er svo guðs lifandi fegin að ég er komin með þetta gigg á mánudaginn því að mig vantar eitthvað inn í lífið mitt! Hlakka til að vera meira í kringum fólk því ég finn að það er það sem ég þarf.

Hápunktur vikunnar voru hrósin frá nuddþegum þrátt fyrir að það hafi verið að iðnaðarmenn að bora á Suðurlandsbrautinni. 

Lágpunktur vikunnar var í gærkvöldi þegar ég fékk slæmar fréttir. Bömmer og grátur. 

Verkefni vikunnar var að vinna í fyrirlestrinum fyrir Mími. Átti að vera með kúrs fyrir starfsmenn leikskóla um líkamsbeitingu en honum hefur verið frestað. 

Markmið vikunnar var virkni og ég hef nú verið það að einhverju leyti. Er nú að fara á þorrablót á morgun með vinum og í lunch með vinkonu á eftir svo það er nú eitthvað. 

Namaste vinir.

Friday, January 10, 2025

Amma Svava

Nú er ég ekki bara að líkjast móður minni meira og meira á hverjum degi heldur er ég orðin að ömmu minni.

Emilía okkar kom með kærastann sinn í vikunni til að kynna hann fyrir gamla settinu. Það var nú ágætlega taugastrekkjandi þar sem drengurinn, já eða maðurinn, er 27 ára en hún bara 19 ára. Maður var kannski með einhverja fyrirframgefna fordóma en okkur leist bara vel á gripinn. 

Eftir matinn settumst við í sófann og hann var með vatnsglas sem hann setti auðvitað á sófaborðið. Nýja sófaborðið. Rauk til og náði í glasamottu. Auðvitað. Áttaði mig svo á því að amma mín gerði alltaf slíkt hið sama, ekki bara þegar ég var að kynna Svan fyrir henni heldur alltaf. Nafna amma mín Svava.

Líður líka eins og sé gömul. Alla vega eldri en í gær og eldri en í fyrradag.

Vikan var alls konar. Á miðvikudeginum leið mér eins og súperkonu. Hafði óvart sofið mjög vel. Í gær leið mér hræðilega. Hafði óvart sofið mjög illa. En þetta er lífið; rússibanareið. Verð sífellt vör við það að ég væri ekkert hæf í fulla vinnu. Horfi á fólk sem gerir þetta á hverjum virkum degi; fer í vinnuna og er 08-16. Skil ekkert. Ég er þjáð a.m.k. einu sinnu í viku. Ræð ekkert við það. Í vikunni var það túrverkur sem hélt vöku fyrir mér mestalla nóttina. Átti í stökustu vandræðum með allt daginn eftir vegna þessa. Hefði engan veginn verið hæf í vinnu. Þetta kemur allt í einu bara. 

Verkefni vikunnar var nú samt sem áður að hafa ferilskrá og kynningarbréf klárt. Líka að kaupa bekkjarmyndina frá Hlíðaskóla frá því að Stefán útskrifaðist í fyrra. Voða skrýtið að hún eigi að kosta 9.590 kr samt. Finnst það fulldýrt og er að fatta að það verkefni er ófrágengið. Veigra mér alltaf að hringja í fyrirtæki.

Hápunktur vikunnar var á miðvikudaginn þegar mér fannst ég hafa sigrað heiminn. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar allt var erfitt. Stórfurðulegur dagur. Það hafa ekki það margir samband við mig daglega en í gær hafði ég varla undan að svara vinkonum. Veisla samt.

Namaste.

Friday, January 3, 2025

Gleðilegt nýtt ár...

... kæru lesendur.

Janúar 2025 er mættur með fullt af snjó og frosti. Manni bara fallast næstum hendur. Sit hérna með stíflað nef og hugsa um sólina. Guði sé lof fyrir næsespray.

Það er á svona dögum sem ég er glöð að vera ekki í fastri vinnu. Er bara kvefuð í dag. 

Janúar lítur rólega út sem betur fer. Það er mín skoðun að á myrkustu vikum vetrar eigum við bara að leggjast undir feld og segja hvort öðru sögur. Eitthvað svoleiðis. Orkan mín býður ekki upp á mikið meir allavega. Meira að segja húsverkin eru mér ofviða þessa dagana. 

Það er skítamix í kvöld. Farið á pöbbinn. Bara veit ekki hvort ég sé í stuði til að fara. Slen í mér. Skítamix er sem sagt samfélag þeirra sem að skíta, samanber að tweeta á samskiptaforritinu bluesky. 

Auðvitað er ég ástar- hatursamskiptum við rauðvín. Eða bara áfengi yfir höfuð. Það bara fer yfir höfuð ekki vel í mig. Hefur aldrei gert. Sem var nú ástæðan fyrir því að ég var edrú í 16 ár. 

Hef pistil vikunnar ekki lengri í bili. Er ekki komin í vinnudampinn eftir að hafa verið í fríi frá 15.des.

Já og Tene var æði.

Namaste.