Wednesday, June 25, 2008

Sunshine and happiness

Þvílík endemis snilld að vera í fæðingarorlofi núna. Sól og sumar. Æði spæði. Er þó nokkuð ánægð með okkur Siggú fyrir að hafa farið á þetta ræðunámskeið. Maður er nú alltaf sterkari en maður heldur.

Ég hafði bara svo skelfilega slæma reynslu af sjálfri mér upp í púlti. Man sérstaklega eftir einu skipti í stjórnmálafræðinni í leiðtogakúrs. Þar var mér hent upp í púlt alveg óundirbúnni fyrir framan allt kúl liðið sem var að læra með mér á þessum tíma. Ég fraus og kom varla upp orði. Þetta var eflaust með verstu augnablikum lífs míns, ég man mig langaði hreinlega bara til hverfa af yfirborði jarðar þetta var svo hræðilegt.

EN, það er einfaldlega kominn tími til að let buy gones be buy gones, sætta sig við orðinn hlut og reyna aftur.

P.s. Mig langar mest í heimi að fara á Hótel Búðir og vera þar í viku eða svo. Ekki með börn. Allaveganna ekki með börn allan tímann. Æ, ég gæti nú aldrei farið frá Mánaskini svona ungum en þið vitið hvað ég meina..

Monday, June 23, 2008

Fuck, shit, rape.

Af hverju? Wwwhhhhyyyy!!!!???

Ég er að fara á ræðunámskeið í kvöld. Var ferlega galvösk þegar við Siggú skráðum okkur en núna langar mig bara til að vera innan þægindarammans míns og alls ekki fara heldur horfa á sjónvarpið í kvöld.

Æi.

Annars fórum norður um helgina að sýna tengdó Mánaskin. Við gistum tvær nætur í Staðarskála. Máni fann aldeilis á sér að hann var ekki heima hjá sér og var frekar órólegur, sérstaklega á næturnar. Gærdagurinn var því ekkert sérlega yndislegur þar sem ég var gjörsamlega ósofinn. Mér finnst það vera óþægilegast í heimi því þá er maður svo sjúskaður og ringlaður og er svo innilega ekki 100% lifandi. En fékk nú smá svefn í nótt svo að maður er allur að koma til. Annars erum við alveg á því að hann hafi líka verið svona óvær af því ég borðaði eitthvað sem fór einstaklega illa í hann. Hann prumpaði alveg heilmikið! Laukur er núna út.

Í ferðinni komst ég loksins í smá fjallaloft. Það var algjörlega æðislegt. Get ekki beðið eftir að komast í almennilegar fjallgöngur! Spurning hvort maður nái því í sumar..

Annars er alltaf jafn ljúft að fara norður á Ljótunnarstaði í Hrútafirði. Í sveitinni er allt svo afslappað og gott. Máni fékk fullt af pökkum og svo var tekið fullt af myndum af Emilíu Sól og Mána og Óla, börnunum okkar Svans. Nú liggur í loftinu að fara með tríóið í alls herjarinnar ferðalag austur í ágúst. Guð gefi að það verði auðveld og afslöppuð ferð..

Gangi mér vel í kvöld. Verð að sigrast á óttanum. Ég er sterk og get talað fyrir framan fólk og haldið ræðu... Jú víst.

Er það ekki?

Friday, June 20, 2008

Confessions of a desperate housewife

Oh.

Var að drífa mig í morgun að gera101 hlut heima þegar ég ákvað að skella á mig smá brúnkukremi. Smá brúnkukrem varð allt of mikið í flítinum og núna er ég yellow-ish í framan.

Frábært.

Þetta toppar nú samt ekki þegar ég fór kasólétt í ljós og brann á bumbunni.. O nei..

Mental note: nota minna brúnkukrem og aldrei, aldrei setja það á á morgnana heldur kvöldið áður.

Wednesday, June 18, 2008

Mánaskin

Jæja, hérna eru fleiri myndir af Mánanum okkar:)




















Máni að skoða bangsann sinn




















Máni með Óla stóra bróður
















Mánaskin
















Þeir bræðurnir eru orðnir miklir mátar















My boys, my everything

Monday, June 16, 2008

Location, location, location

Er mikið að spá í flutningsmálum þessa dagana.

Ætlunin er að flytja í stærra, betra og hljóðeinangraðra húsnæði. Okkur tókst það næstum því í vetur (munaði svooo mjóu) en núna langar mig að reyna aftur. Það er fullt af "þrándum" í götunni þó. Það er ekki ennþá til eignaskiptasamningur fyrir blokkina mína sem er dáldið svona mikilvægt að sé til staðar þegar maður hefur í hyggju að selja. Blokkin liggur undir viðgerðum og það er dáldið svona ósexy að selja íbúð í blokk sem á eftir að gera við. Það flækir málin.

Svo veit ég ekkert hvenær þessi eignaskiptasamningur verður tilbúinn. Hann er búinn að vera á leiðinni að vera tilbúinn í marga mánuði núna.. Ég veit heldur ekki hvenær viðgerðirnar á blokkinni eiga að vera.

Pirrandi því ég er orðin svo æst í að flytja. Skynsemin segir samt að það sé best að bíða þangað til eignaskiptasamningurinn sé kominn og viðgerðirnar séu búnar en ég nenni því ekki. Er óþolinmóð..

Já, og svo þarf náttúrulega að FINNA aðra íbúð sem hentar. Það spila svo margir þættir inn í. Staðsetningin skiptir mjög miklu máli. Mér finndist mjög leiðinlegt að flytja úr Hlíðunum, eiginlega alveg rosalega leiðinlegt. Það er svo stórt skref að flytja í annað hverfi. Mér finnst það allaveganna, held að Svani sé slétt sama. Svo má enginn vera fyrir ofan mig. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Staðsetningin er samt líka númer eitt, tvö og þrjú. Hhmm... Já, og svo verður hún auðvitað að vera "hin rétta íbúð". Æ, þetta eru svo margir hlutir sem skipta máli...

Jæja, búin að spill my guts out í dag. Næsta færsla inniheldur myndir af Mána sem svaf í alla nótt:) hence me happy

Friday, June 6, 2008

Sex and the City


Við stelpurnar fórum í bíó í gærkvöldi.

Sex and the City að sjálfsögðu. Það var þvílík stemmning í bíó og salurinn fullur af Sex and the City gellum. Held ég hafi séð einn strák. Myndin er æðisleg, þ.e.a.s. allaveganna fyrir hlé (fór heim.. gat ekki verið lengur í burtu frá strákunum mínum - smá hormónakast..).

Ég ELSKA Samanthu Jones. Þvílíkur og annar eins snillingur! Maður bara elskar að heyra hana segja "the F-word" og hlusta á hana klæmast aðeins. Hún er svo skemmtileg.

Ég var nú alls ekki sátt við Miröndu. Ojojoj. Bara orðin þvílíkt bitur, stressuð og leiðinleg.. Ákvað strax að ég ætla alls ekki að vera svona þegar ég verð stór. Kemur ekki til greina..

Gott að Charlotte er hamingjusöm, ætla rétt að vona að hún haldist þannig eftir hlé! Hún trúði alltaf á ástina, og fann hana svo. Hún á svo aldeilis skilið að vera hamingjusöm. (Ok, er kannski búin að horfa aðeins of mikið á þættina en ég er með seríuna í láni hjá Beggu og er komin ansi langt í að horfa á alla þættina. Aftur.)

Carrie Bradshaw er náttúrulega flottust og mest fabulous. Þvílíkt hvað hún er mikil gella og komin líka á þennan aldur! Vá. Ákvað strax að svona ætla ég að vera þegar ég er orðin stór. Ok, mínus sum alfittin sem hún er í og mínus allir þessir rándýru skó... Anyways, verandi nýbúin að eiga barn og þar af leiðandi ein stór hormónabomba þá bara meikaði ég ekki að horfa á hana svona niðurbrotna eins og hún var á tímabili fyrir hlé. Ég tók þetta bara þvílíkt inn á mig..

Svo ég fór heim í hléinu. Sá fyrir að myndin myndi verða löng og bara gat ekki verið ekki heima lengur. Svo vildu brjóstin á mér fá Mána á sig og mitt æðra sjálf vildi hitta Óla áður en hann færi í pabbahelgi.

Oh, well. Eitt er ljóst - ég verð að sjá það sem gerist eftir hlé. Gott að eiga eitthvað eftir..

Ást og kossar.

Monday, June 2, 2008

Máni

Við erum búin að nefna hann Mána
















Ég lofa að þetta er ekki orðið að einhverju barnabloggi en maður bara verður að montast aðeins af nýja meðlimnum í fjölskyldunni:) Hér eru aðeins fleiri myndir:
















Við fórum með hann í 5 daga skoðunina í dag og fengum staðfestingu á því sem við vissum: þetta er fullkomið barn. Ekkert vesen. En það kom enn betur í ljós í skoðuninni að Máni býr yfir hæfileika. Hann pissar ótrúlega kröftuglega! Um leið og læknirinn kom að skoða hann pissaði hann á hann og mig (upp í mig og BEINT framan í mig). Hann lét ekki kyrrt við sitja og pissaði yfir vegginn yfir á næsta skiptiborð og úðaði líka á gólfið og smá á gallann sinn en auðvitað ekki mikið þar sem hann hefur líklegast fundið á sér að hann þyrfti nú á honum að halda til að fara aftur heim;)

















Lífið er ást og hamingja:)