Friday, June 6, 2008

Sex and the City


Við stelpurnar fórum í bíó í gærkvöldi.

Sex and the City að sjálfsögðu. Það var þvílík stemmning í bíó og salurinn fullur af Sex and the City gellum. Held ég hafi séð einn strák. Myndin er æðisleg, þ.e.a.s. allaveganna fyrir hlé (fór heim.. gat ekki verið lengur í burtu frá strákunum mínum - smá hormónakast..).

Ég ELSKA Samanthu Jones. Þvílíkur og annar eins snillingur! Maður bara elskar að heyra hana segja "the F-word" og hlusta á hana klæmast aðeins. Hún er svo skemmtileg.

Ég var nú alls ekki sátt við Miröndu. Ojojoj. Bara orðin þvílíkt bitur, stressuð og leiðinleg.. Ákvað strax að ég ætla alls ekki að vera svona þegar ég verð stór. Kemur ekki til greina..

Gott að Charlotte er hamingjusöm, ætla rétt að vona að hún haldist þannig eftir hlé! Hún trúði alltaf á ástina, og fann hana svo. Hún á svo aldeilis skilið að vera hamingjusöm. (Ok, er kannski búin að horfa aðeins of mikið á þættina en ég er með seríuna í láni hjá Beggu og er komin ansi langt í að horfa á alla þættina. Aftur.)

Carrie Bradshaw er náttúrulega flottust og mest fabulous. Þvílíkt hvað hún er mikil gella og komin líka á þennan aldur! Vá. Ákvað strax að svona ætla ég að vera þegar ég er orðin stór. Ok, mínus sum alfittin sem hún er í og mínus allir þessir rándýru skó... Anyways, verandi nýbúin að eiga barn og þar af leiðandi ein stór hormónabomba þá bara meikaði ég ekki að horfa á hana svona niðurbrotna eins og hún var á tímabili fyrir hlé. Ég tók þetta bara þvílíkt inn á mig..

Svo ég fór heim í hléinu. Sá fyrir að myndin myndi verða löng og bara gat ekki verið ekki heima lengur. Svo vildu brjóstin á mér fá Mána á sig og mitt æðra sjálf vildi hitta Óla áður en hann færi í pabbahelgi.

Oh, well. Eitt er ljóst - ég verð að sjá það sem gerist eftir hlé. Gott að eiga eitthvað eftir..

Ást og kossar.

No comments: