Er mikið að spá í flutningsmálum þessa dagana.
Ætlunin er að flytja í stærra, betra og hljóðeinangraðra húsnæði. Okkur tókst það næstum því í vetur (munaði svooo mjóu) en núna langar mig að reyna aftur. Það er fullt af "þrándum" í götunni þó. Það er ekki ennþá til eignaskiptasamningur fyrir blokkina mína sem er dáldið svona mikilvægt að sé til staðar þegar maður hefur í hyggju að selja. Blokkin liggur undir viðgerðum og það er dáldið svona ósexy að selja íbúð í blokk sem á eftir að gera við. Það flækir málin.
Svo veit ég ekkert hvenær þessi eignaskiptasamningur verður tilbúinn. Hann er búinn að vera á leiðinni að vera tilbúinn í marga mánuði núna.. Ég veit heldur ekki hvenær viðgerðirnar á blokkinni eiga að vera.
Pirrandi því ég er orðin svo æst í að flytja. Skynsemin segir samt að það sé best að bíða þangað til eignaskiptasamningurinn sé kominn og viðgerðirnar séu búnar en ég nenni því ekki. Er óþolinmóð..
Já, og svo þarf náttúrulega að FINNA aðra íbúð sem hentar. Það spila svo margir þættir inn í. Staðsetningin skiptir mjög miklu máli. Mér finndist mjög leiðinlegt að flytja úr Hlíðunum, eiginlega alveg rosalega leiðinlegt. Það er svo stórt skref að flytja í annað hverfi. Mér finnst það allaveganna, held að Svani sé slétt sama. Svo má enginn vera fyrir ofan mig. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Staðsetningin er samt líka númer eitt, tvö og þrjú. Hhmm... Já, og svo verður hún auðvitað að vera "hin rétta íbúð". Æ, þetta eru svo margir hlutir sem skipta máli...
Jæja, búin að spill my guts out í dag. Næsta færsla inniheldur myndir af Mána sem svaf í alla nótt:) hence me happy
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment