Friday, July 31, 2009

Er rangt að elska þögnina?

(Skrifað seint um kvöld) Ég elska hvernig mér líður núna. Blokkin er loksins þögnuð. Umferðin er nær engin. Allt er að róast. Man, hvað ég elska þögnina. Mér finnst margir aðrir leita að glaumnum og gefa lítið fyrir þögnina. Þetta á ég erfitt með að skilja. Ég spái því að þegar ég verð eldri og börnin flogin úr hreiðrinu á ég heima í húsi langt frá öðrum húsum. Til að forðast lætin. Ég þrái þögnina. Hún nærir mig. Þetta minnir mig smá á atriði úr Friends þar sem Monica og Rachel eru að kíta eitthvað og önnur hvor segir við hina: "each day you are becoming more and more like your mother!" Sko, ég er farin að finna fyrir genum ömmu minnar í mér.. hehe. Og genum móður minnar. En mér finnst það allt í lagi. Ég er fullkomlega sátt. Ætla samt að passa mig rosalega vel að fara ekki að eldast um aldur fram. Hef hugsað mér að ota priki í minn innri rokkara. Fast. Ætlar hann bara að sofa þetta af sér eða... Anyways, just a thought

Wednesday, July 29, 2009

Hot yoga class

Loksins fór ég í Hot yoga tíma í World Class Laugum. Hafði einu sinni áður gert strangheiðarlega tilraun til að fara og var búin að gera ítarlega áætlun og eftirfylgni til að komast í það skipti (oft mál að fá pössun á meðan) en þá var fullt í tímann.

Komst að því í gær að maður verður eiginlega að mæta 20 min. fyrir tímann og taka frá dýnu ef maður ætlar að fá pláss í tímanum, svo vinsæll er þessi tími. Enda var ég næstum uppí rassinum á gæjanum við hliðina á mér. P.s. þetta er pottþétt góður tími fyrir einmana fólk, maður kemst allaveganna í mjög náið samneyti við fólkið við hliðina á sér!

Það var samt ekki fyrr en í morgun þegar ég vaknaði að ég áttaði mig á því hvað þetta var góður tími í gær. Ég svaf eins og steinn og þegar ég vaknaði leið mér eins og nýútsprungnu blómi. Það er eitthvað við hitann í tímanum. Maður svitnar mikið og líkaminn mýkist að maður kemst dýpra í stöðurnar. Þetta er eiginlega bara algert detox, maður svitnar út alls konar eiturefnum og mér líður hreinlega eins og frumurnar í mér hafi endurnýjast.

Sem sagt: thumbs up! Big time

Tuesday, July 28, 2009

Summer of 2009

Þetta sumar er dáldið svona öðruvísi finnst mér. Sem er kannski bara allt í lagi.

Sumarið 2008 var líka svo viðburðaríkt og efnismikið að það hreinlega tilheyrir að hafa eitt svona rólegt sumar. Sumarið 2008 var líka svo "2007" og þetta sumar er náttla bara svo "2009". Það er verið að gera við blokkina mína og útgjöld því tengt hafa sett strik í peningamálin, já og svo kreppan smá líka.

Ég fór þó til Flatey og ætli það megi ekki teljast hápunktur sumarsins þetta sumarið fyrir mig, já og Snæfellsjökulsferðin með Beggu. Síðan erum við búin að fara svona smá ferðir út á land um helgar.. Upp á Esjuna með strákana og Botnsdalinn og svona..

Eins og alltaf er ég frekar sátt við að vera bara heima eða gera eitthvað sérlega rólegt um verslunarmannahelgina (næsta helgi). Ég fæ þvílíka unun af því að kósa mig upp í sófa og horfa í fréttunum á fólk í ruglinu á hinum ýmsu tjaldstæðum landsins. Ég er alltaf jafn glimrandi fegin að vera ekki ein af þeim, hahaha. Ég kemst bara í ágætis skap við tilhugsunina!

Annars verðum við að fara nota barnahaldarann sem Svanur keypti meira svo hann svari kostnaði. Förum að öllum líkindum í ágúst í e-a göngutúra.

Anyways, ákvað að taka mér tíma til að blogga smá og taka mér smá frí frá Facebook. Annars er það af mér að frétta að ég er í ATVINNULEIT. En það eru náttla ekki nýjar fréttir, pha..

Adios amigos!

Sunday, July 19, 2009

Evrópusambandið

Var að vafra á netinu og sá flott quote sem á vel við um aðildarviðræður Íslands að ESB, held að það sé frá hinu mikla þjóðernissinnaða skáldi Jónasi frá Hriflu:

"Hjartað segir nei en heilinn segir já"

Mér finnst þetta eiga einstaklega vel við.





Monday, July 6, 2009

Beverly Hills 90210

Þegar ég var á gelgjunni ELSKAÐI ég Beverly Hills 90210. Hva, ég geri það meira að segja ennþá.

Það er bara eitthvað. Þegar ég horfi á þessa þætti þá bara sogast ég inn í þennan Beverly Hills 90210 heim. Það eru allir svo sætir og fullkomnir eitthvað og allt er svo nice and dandy. En það kemur auðvitað upp einhver klemma í hverjum þætti.. ji, hvað ég elska(ði) þessa þætti!

Fyrir rosalega mörgum árum síðan þegar þættirnir komu fyrst var ég hrifin af leikaranum sem lék Brandon (held hann heiti Jason Priestley), svo var ég skotin í David. Oh, David... ;) Bíddu, jú, ég man meira að segja hvað sá leikari heitir: Brian Austin Green. Mig minnir að ég hafi líka verið skotin smá í þeim sem lék Dylan, eða nei..

Ég á nokkra Beverly Hills 90210 þætti á videospólu og fæst ekki til að henda þeim. Það tekur mig sáran þegar fólk dissar þessa þætti. Oftast eru þetta karlmenn, en ég held að þættirnir höfði miklu meira til stelpna en stráka. (Það er allt svo fullkomið þarna!)

It's a girl thing.

Evrópusambandið

Ég skipti um skoðun nánast daglega hvort Ísland eigi að sækjast eftir Evrópusambandsaðild. Það fer eiginlega bara eftir því í hvaða félagsskap ég er.

Ég var í mat hjá ma+pa í gær þar sem allir eru á móti aðild og ég kóaði með og sagði actually "hverjum er ekki sama?" þegar var verið að tala illa um aðild og meinti það líka.

Svo þurfti ekki annað en að hlusta á Evrópusinna í nokkrar mínútur og kviss, bamm, búmm. Ég er aftur hlynnt.

En þá verðum við að borga Icesave. Andskotinn hafi það.

Saturday, July 4, 2009

Þjónn!

Komdu sæll:)

Mig langar til að panta ævilanga hamingju, mitt eigið einbýlishús með garði og girðingu, fullkomið hjónaband, eilíft heilbrigði og eilífa lukku og hamingju fyrir börnin mín, skemmtilegt starf, nóg af ferðalögum, fleiri vini og gleðilega framtíð. Takk. (Þjónninn fær mitt allra sætasta bros)

Löng bið?

Thursday, July 2, 2009

Hangover

Hló næstum allan tímann. Nákvæmlega myndin sem ég var að leita að og fann. Ég actually réð ekki við tárin ég hló svo mikið á einum tímapunkti..

:)

Note to self: klósettið með fatlaða merkinu á er bara fyrir fatlað fólk. (Lenti í leiðinlegu atviki í hléinu..)

Hrunið

Hvernig datt fólki í hug að einkavæða bankanna?! Einkageirinn stjórnast af græðgi og markmiðið er hagnaður, sama hvað það kostar.

I don't get it.

Þetta var verk Framsóknarflokksins og Sjálfsstæðisflokksins og þessir flokkar ættu að fara í mjög langt frí. Mér finnst ferlega skrýtið að heyra Sigmund Davíð, formann Framsóknarflokksins, lýsa því yfir að núverandi stjórn sé líklegast versta stjórn sem setið hefur. Eh, hello! Hvernig væri að líta í eigin barm Sigmundur? (eða eigin flokk réttara sagt)

Reyndar finnst mér eina vitið þessa dagana vera í Birgittu, þingmanni Borgaraflokksins. Þarna er kona með fulle femm. Meira svona!