Friday, July 31, 2009
Er rangt að elska þögnina?
(Skrifað seint um kvöld) Ég elska hvernig mér líður núna. Blokkin er loksins þögnuð. Umferðin er nær engin. Allt er að róast. Man, hvað ég elska þögnina.
Mér finnst margir aðrir leita að glaumnum og gefa lítið fyrir þögnina. Þetta á ég erfitt með að skilja. Ég spái því að þegar ég verð eldri og börnin flogin úr hreiðrinu á ég heima í húsi langt frá öðrum húsum. Til að forðast lætin.
Ég þrái þögnina. Hún nærir mig.
Þetta minnir mig smá á atriði úr Friends þar sem Monica og Rachel eru að kíta eitthvað og önnur hvor segir við hina: "each day you are becoming more and more like your mother!"
Sko, ég er farin að finna fyrir genum ömmu minnar í mér.. hehe. Og genum móður minnar. En mér finnst það allt í lagi. Ég er fullkomlega sátt.
Ætla samt að passa mig rosalega vel að fara ekki að eldast um aldur fram. Hef hugsað mér að ota priki í minn innri rokkara. Fast. Ætlar hann bara að sofa þetta af sér eða...
Anyways, just a thought
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment