Loksins fór ég í Hot yoga tíma í World Class Laugum. Hafði einu sinni áður gert strangheiðarlega tilraun til að fara og var búin að gera ítarlega áætlun og eftirfylgni til að komast í það skipti (oft mál að fá pössun á meðan) en þá var fullt í tímann.
Komst að því í gær að maður verður eiginlega að mæta 20 min. fyrir tímann og taka frá dýnu ef maður ætlar að fá pláss í tímanum, svo vinsæll er þessi tími. Enda var ég næstum uppí rassinum á gæjanum við hliðina á mér. P.s. þetta er pottþétt góður tími fyrir einmana fólk, maður kemst allaveganna í mjög náið samneyti við fólkið við hliðina á sér!
Það var samt ekki fyrr en í morgun þegar ég vaknaði að ég áttaði mig á því hvað þetta var góður tími í gær. Ég svaf eins og steinn og þegar ég vaknaði leið mér eins og nýútsprungnu blómi. Það er eitthvað við hitann í tímanum. Maður svitnar mikið og líkaminn mýkist að maður kemst dýpra í stöðurnar. Þetta er eiginlega bara algert detox, maður svitnar út alls konar eiturefnum og mér líður hreinlega eins og frumurnar í mér hafi endurnýjast.
Sem sagt: thumbs up! Big time
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment