Thursday, November 26, 2015

26/11 2015

Stirð og stíf og þver.

Ég tel góðan kost að gera sér grein fyrir eigin ókostum.

Ég skildi því vinnufélaga minn fullkomlega þegar hann sagði "You're .... " og svona rétt varla yppti öxlunum og gretti sig ekki einu sinni en ég vissi nákvæmlega hvað hann var að tala um. Við töluðum mikið um lífið og tilveruna og ég einhvern veginn vissi alveg hvað hann var að meina enda vorum við farin að þekkjast ansi vel þarna.

Á seinni árum, eftir að ég hætti að drekka, er ég dáldið leiðinleg. Ég á mína góðu daga þar sem ég er fyndin og skemmtileg en ég er óttalegur (get it;)) öryggisfíkill og vanasjúklingur.

Ég reyni ósjálfrátt að gera rútínu úr öllu og ef eitthvað er ekki alveg ákveðið heldur bara einhvern veginn þá líður mér ekkert sérstaklega vel með það. Ég vil vita hvað er að fara gerast. Allir mínir dagar eru rútínulagaðir. Ég geri þetta kl. þetta og þetta kl. þetta og ef því fer eitthvað að seinka þá ruglast allt prógramið og það er ekki gott. Á þriðjudögum fer ég í freestyle step til Önnu Siggu í World Class. Á laugardögum fer ég í zumba. Á sunnudögum fer ég í Ashtanga yoga 1-2 í Yogashala. Þannig er það bara. Og ég er ekkert sveigjanleg með að missa af þessum tímum. Ég hef meira að segja látið færa til fundi í vinnunni vegna þessa.

Ætli ég sé ekki með stjórnunaráráttu á hæsta.

Allavegana, sakna þessa vinar míns smá. Við erum ekki lengur að vinna saman. Við áttum nokkrar góðar samræður.

Wednesday, November 25, 2015

25/11 2015

Jæja.

Nú var kátt í kotinu.

Fékk mömmu til að fá Guðrúnu Höllu í smá heimsókn svo ég átti sjónvarpið alveg fyrir mig. Svo gott að fá aðeins frið.

Allavegana. Perrinn ég leigði í snatri Magic Mike XXL eða hvað hún heitir og horfði á hana. Var búin að bíða eftir að fá að vera ein heima til þess að geta horft á þessa mynd í friði en af því að það var ekki að fara gerast þá bað ég mömmu um þetta.

Myndin var nú samt bara svona la la. Ekkert rosa djúsí söguþráður. Dáldið svona þunn mynd. Svo er ég ekki eins ofboðslega skotin í Channing Tatum eins og ég hélt sem er rosalega skrýtið af því að ég var svo hrifin af honum.

Fékk ekki alveg eins mikið út úr þessu og þegar ég leigði 50 shades of Grey.

Það var rosalegt.

24/11 2015

Merkilegt.

Eftir að ég byrjaði að nota kaldpressaða kókosolíu til að taka make up-ið af mér á kvöldin líður mér ekki bara betur í húðinni - þetta er náttúrulega 100% lífrænt - heldur svíður mig núna undan venjulega make up removerinum, þeim sem maður kaupir í Bónus.

Mér finnst þetta alveg þvílík uppgötvun því ég hef alltaf bara keypt svona Nivea make up remover og notað hann. Þegar maður kíkir á innihaldslýsinguna eru náttúrulega bara fullt af alls konar efnum sem mig nú svíður undan! Kemísk efni. Hvað var ég að spá? Af hverju fattaði ég þetta ekki fyrr??

Mig sveið ekki undan þessu fyrr en eftir að ég byrjaði að nota lífrænu kókosolíuna.

Mikið ofboðslega ætla ég að halda áfram á þessari línu. Núna ætla ég að hætta að lita á mér hárið...
ég hef nú sagt það áður en núna ætla ég.

Jú víst!

Monday, November 23, 2015

23/11 2015

Prinsessan á bauninni. Það er ég.

Veit ekki alveg af hverju ég er svona viðkvæm fyrir öllu. Ég er til dæmis alveg ofboðslega viðkvæm fyrir sterkum ljósum. Í morgun kom forstjórinn inn og kveikti á sterku ljósunum. Þá fer ég að verða óróleg, líður ekki svo vel og finn fyrir streitu. Vildi að ég væri ekki svona. Þetta hefur reyndar skánað....

Svo var fundur í vinnunni í fundarherberginu og ljósin voru kveikt allan tímann. Þá fer ég að finna fyrir hausverk og líður bara ekki nógu vel. Vanalega stend ég upp og fæ að slökkva ljósin en af virðingu við nýja yfirmanninn minn sem ég veit að vill hafa ljósin kveikt gerði ég það ekki. Horfði bara frekar niður á borðið og alls ekki upp. Oh, vildi að ég væri ekki svona...

Þetta var líka svona í afmælinu um helgina. Þá voru sterk nakin ljós og það hafði áhrif á mig. ... Ég á eina vinkonu sem ég fer stundum til og ég finn fyrir þessu heima hjá henni. Þar eru sterk ljós og þá þarf ég að passa mig hvar ég sit.....

Svo eru það auðvitað hljóðin í blessuðu kælipressunni sem heyrast extra hátt þessa dagana. Það heyrir þetta varla nokkur annar og þetta fer ekki í taugarnar á nokkrum öðrum manni. Eftir vinnu í dag fór ég að lesa upp í rúmi með eyrnatappana kirfilega staðsetta lengst inn í eyrum. Heyrði í pressunni allan tímann en ákvað að þrauka þetta.

Af hverju er ég svona mikil prinsessa?

Það var huggun harmi gegn að heyra Steinda lýsa sínu OCD-i í þætti sem var á stöð 2 núna áðan og hér eitthvað.. Fellum grímuna. Mér fannst frábært að heyra lýsingarnar hans af því hvernig hann þarf að taka í hurðarhúninn nokkrum sinnum og hvernig hann er í sambandi við eldavélina sína... Með nýja spanhelluborðinu er þetta reyndar ekkert vesen lengur en hurðarhúnninn er sama vandamálið..

Gott að vita að maður er allavegana ekki einn. Góður þáttur. Mjög góður þáttur.

Sunday, November 22, 2015

22/11 2015

stundum er það þannig að viðburðir raðast svona á dagana, dag eftir dag.

Núna var það laufabrauðsgerð hjá frænkunum. Þetta er stundum svona hálfundarlegt af því að maður þekkir sumar af þessum skáfrænkum ekki mikið og hittir þær bara einu sinni á ári af þessu tilefni. En þetta er alltaf á sama tíma að ári svo að það er allt í lagi.

Núna var þetta hjá einni skáfrænkunni í Lindasmára og í flottri íbúð sem ég gæti nú alveg hugsað mér að eiga í heima í.. Er orðin rosalega þreytt á þessu blokkarlífi. Núna get ég ekki lesið inn í svefnherbergi út af helvítis kælipressunni niðrí kjallara beint undir svefnherberginu. Ætli það séu ekki svona mikil læti í helvítinu núna af því að ég slekk á henni á nóttunni.

Helvítis fokking fokk. Mig langar í einbýlishús. Myndi samt kannski sætta mig við raðhús.

21/11 2015

Þrítugsafmæli hjá Heiðu frænku.

Það er bara stórafmæli dag eftir dag..

Það var auðvitað fínt í flottri veislu í sal slökkviliðsins út á Tunguhálsi og gaman að rabba við gott fólk.

Fór í zumba um morguninn. Það var æði:)

20/11 2015

Áttræðisafmæli hjá Binnu frænku í Sóltúni.

Ágætis veisla og gaman að hitta alla.

Eins og Dóra (hóra) landkönnuður segir, eða réttara sagt kortið í þáttunum: "ég er kort, ég er kort, ég er kort, ég er kort. Ég er kort!"

Kom nefnilega í veisluna með rauðar rósir og kort í búntinum. Fann svo ekki kortið fyrr en við vorum að fara. Þá hafði það verið eftir í bílnum.... Náði nú að skila því á réttan stað við mikinn fögnuð viðstaddra... snillingur...

19/11 2015

Vinni vinni vinni vinn.

Yoga í hádeginu hjá Ingibjörgu í Yogashala. Æðislegur tími og kíró.

Góður dagur.

Saturday, November 21, 2015

18/11 2015

Jæja,

næsti diskur "made me feel old." Það var Nirvana diskurinn Incesticide. 

Gamla er nú eitthvað að eldast og vill ekki hafa svona læti. Sá líka heimildamyndina um Kurt Cobein í sumar og allt þetta heroín heillaði mig alls ekki. Þvílíkt rugl sem þetta fólk hefur verið í..

Hef nú alltaf fílað Nirvana og bara allt frá þeim en mér er eitthvað að förlast.

Sé nú fyrir mér sketch úr Friends þar sem Rachel segir við Monicu: "you are becoming more and more like your mother." Boom.


17/11 2015

Jæja.

Næsti diskur í röðinni var diskur með Smashing Pumpkins. Þá var nú gaman hjá kellu í bílnum. Það voru sérstaklega tvö lög sem mér finnst mjög góð og setti á fb í tilefni af því. Pössuðu einhvernveginn alveg við skapið sem ég var í og bara Mmmmm.. góð lög.

Var svo reyndar með diskinn í bílnum alveg í rúma viku og var búin að skrifa hjá mér hvaða lög mig langaði til að setja á ipodinn en... svo ákvað ég að gera það ekki. Jú, gaman að rifja Smashing Pumpkins fílinginn upp en ekki alveg ipod worthy.

Það voru sérstaklega lögin Bullet with butterfly wings og Today sem mér fannst best á þessum tiltekna diski sem hefur verið skrifaður fyrir mig.

Ég á reyndar fullt af svona diskum sem einhverjir hafa "skrifað" fyrir mig. Þetta var gert í gamla daga kids.. Man ekki hver hefur skrifað þennan tiltekna disk. Best að vera ekkert að rifja það upp, er þetta ekki kolólöglegt að skrifa svona diska?

Wednesday, November 18, 2015

16/11 2015

Snilld! Snilld! Snilld!

Er búin að leysa málið með hvernig ég eyði mínum eftirmiðdögum eftir vinnu þegar ég bugast yfir að rífast við Guðrúnu Höllu um hvor okkar fær að horfa á sjónvarpið. Hún er svo ansi sannfærandi í sínum rökum og beinskeytt að ég er búin að enda síðastliðna eftirmiðdaga, sigruð, inn í herbergi með ipadinn að horfa á Sarpinn sem er jú fínn til síns brúks en ... stundum þarf maður bara eitthvað meira en RÚV. Það er bara þannig.

Fattaði eftir að vinkona mín benti mér á það að ég hlyti að geta horfa á stöð 2 sem við erum áskrifendur að í ipadinum. Heyrðu, kemur í ljós að það er hægt með OZ appinu! Er sem sagt komin með það og get nú horft á sjónvarpið í míns eigin friði í ipadinum "mínum."

Það var svo gaman þegar ég fattaði þetta að ég fór andartak aftur í barndóm vegna einskærs spennings. Ji, hvað það var gaman að fatta þetta. Ég var að horfa á Réttur í Guðs friði núna áðan en ég var trufluð af börnunum svona sirka 10 sinnum á sunnudagskvöldið þegar þátturinn var sýndur í sjónvarpinu.

Tók eftir að Magic Mike XXL eða hvað sem hún heitir er komin á leiguna. Ætli ég geti horft á hana í ipadinum?! OMG!

Gaman, lifandi, ung (jú víst.)


15/11 2015

Ég átti svo gott foreldraviðtal við hana nöfnu mína sem er deildarstjórinn á deildinni hennar Guðrúnar Höllu í Björtuhlíð efri; á Furuhlíð.

Hún hrósaði barninu í hástert og lét mig vita að ég væri með afar frábæran einstakling í höndunum og meinti þá dóttur mína. Hún er víst með afbragði listhneigð, Svava sagðist aldrei áður hafa séð þetta gamalt barn gera svona fínt í höndunum eins og þegar GH leirar.

Mikið var ég stolt sem móðir að heyra af öllu þessu góða. Við vorum alveg sammála hversu einstök og sérstök hún Guðrún Halla er.

Það kom líka til tals að af sirka 10 stelpum á deildinni þá væru 5 þeirra hættar með bleiu. GH er ekki ein þeirra og ég fylltist metnaði að venja hana af bleiu. Hún er því farin að vera bleiulaus hérna heima svona af og til. Það kom í bakið á mér áðan þegar hún gerði upp á sitt bak. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt.

Svava endaði viðtalið með því að segja að þessi stelpa (GH) ætti eftir að verða eitthvað þegar hún yrði stór og að hana hlakkaði til að fylgjast með henni þegar hún vex úr grasi.

Mikið sem hún er flott þessi elska

þarna er hún reyndar bara rúmlega eins árs en þetta er svo flott mynd af henni finnst mér að hún fær að vera hér sem mynd af henni við þetta tilefni.



14/11 2015

þetta var erfiður dagur, Stefánslega séð.

Almættið gaf fallegan og bjartan dag. Dásamleg birta. Tilvalinn dagur til að taka jólakortamyndina.  Var meira að segja búin að tala fyrirfram við pabba hans Óla um að fá hann lánaðan að þessu tilefni. Við förum niðrað Skarfaklett, held ég að það heiti, þar sem ferjan fer yfir til Viðey.

Allir krakkarnir hressir og til í þetta, ekki að spyrja að Óla og Emilíu, alltaf til, en hann Stefán Máni........ hann vildi bara ekkert fara út úr húsi og sérstaklega ekki í einhverja myndatöku. Oh, hann getur verið svo erfiður. Bara virkilega erfitt barn á tímum.

Hann fleygði sér í jörðina og fékkst ekki til að gera eitt eða neitt og var bara með stæla.

Þar sem ég er kjarnakona sem fæ yfirleitt það sem ég vil þá náði ég þessu;

þarna eru þau öll fín nema Stefán er eitthvað asnalegur. 

P.s. hvernig foreldrar mínir lifðu mig af sem ungling skil ég engan veginn. Fyrirgefið, mamma og pabbi. Ég var margfalt fífl. Það er ekki fyrr en núna þegar börnin manns láta svona sem ég skil til fulls hversu erfitt það er að vera með erfitt barn.

Sunday, November 15, 2015

13/11 2015

Princess diary, volume I:

Fór í dekur í dag. Fannst ég þurfa að gera eitthvað fyrir sjálfan mig, var með ljótuna. Allavegana, fer í augnmeðferð á ónefnda snyrtistofu hér í bæ. Borga alveg 9.900 kr fyrir þetta 40 mín. dekur. Þetta var rosa gott og þægilegt. Gott að slaka á eftir strembinn dag í vinnunni.

Allavegana, svo er þetta alveg að vera búið. Ég ligg þarna og hún er að strjúka dæmið af þegar ... RING RING RING. Gsm sími hringir á hæstu stillingu beint upp við mig. Hún svarar. Þá er þetta barnung dóttir hennar með eitthvað bla bla bla.... allavegana. Snyrtifræðingurinn talar við hana og er með símann í annarri hendinni og réttir spegilinn upp að mér til að sjá árangurinn með hinni og heldur áfram að tala!

Sæll, mér fannst þetta eitthvað svo óviðeigandi.

Kveðja, ein hneyksluð prinsessa.

12/11 2015

Vinni vinni vinni vinni vinn

Saturday, November 14, 2015

11/11 2015

Viðburðaríkur dagur.

Ég var stressuð fyrir húsfundinn um kvöldið. Maður er náttúrulega með vesen fyrir fullt af fólki með því að geta ekki sofið við mótorhljóð. Þannig að hádegisfyrirlesturinn sem var í boði í vinnunni var svo viðeigandi og kærkominn. Ásdís Olsen kom og hélt fyrirlestur um Mindfulness á vinnustaðnum og var svo með hugleiðsluæfingu líka. Þetta bjargaði deginum. Alveg og alla leið. Takk vinnan og takk Ásdís:)

Bekkjarkvöldið hjá Stefáni gekk rosalega vel. Strákurinn stóð sig svo vel að við brostum hringinn ég, mamma og Svanur og Óli. Stefán hafði beðið um að fá að vera sögumaður í leikritinu og svo stóð hann sig svona líka vel. Las hægt og skýrt og rólega og allt. Þetta var bara frábært:) Eins og gengur og gerist þegar 7 ára börn eru að sýna leikrit var þetta allt saman rosa krúttlegt og allir svo lukkulegir með þetta. Lengdin á leikritinu var líka fín, ekki of langt. Rosalega vel heppnað.

Svo kom blessaður húsfundurinn. Hann styrkir allavegana þrána eftir einbýlishúsinu/raðhúsinu þar sem maður þarf ekki að biðja fólk vinsamlegast hvort maður geti fengið að sofa í friði. Súrt að þurfa að horfa upp á nágranna sinn gefa skít í svefnleysið hjá manni. Bara virkilega óþolandi og erfitt. Það sýndu þessu flestir eða eiginlega allir skilning en svo var einn sem er okkar megin og hefur verið svona kunningi okkar sem sýndi þessu engan skilning. Missti allt álit á manninum í kjölfarið. Allt.

Allavegana, mig langar ekkert sérstaklega til að búa í þessari blokk lengur. Langar að flytja. En þar sem maður er búin að panta flug til Bali og borga og á svo eftir að borga nokkur hundruð þúsund í viðbót fyrir þá ferð þá sé ég það ekki alveg vera að fara gerast á næstunni. Mér skilst að sprauturnar sem ég þarf að fá áður en ég fer kosti líka á milli 50-100 þúsund.

Svo er líka spurning um að "fórna sér" og flytja inn í stofu til að lúffa fyrir nágrönnunum. Hvað ætli kosti að gera millivegg?

10/11 2015

Dóttir mín er svo mikil dúlla.

Guðrún Halla talar ekki mjög skýrt, hún er 2ja ára, en hún notar h-hljóðið fyrir flesta stafi sem hún getur ekki sagt núna. Þannig er djús "hús" og Latibær "Habæ" o.s.fr...

Hún krúttaði yfir sig núna um daginn þegar hún vildi fá að "hofa Hóru." Hún var mjög einbeitt og alvarleg þegar hún sagði skýrt "Ég vil hofa HÓRU!!"

Og þannig er Dóra landkönnuður komin enn og aftur inn í líf mitt með sitt "Taska, taska" lag og "Ég er kort" lagið sem er þannig að maður segir "Ég er kort" svona 50 sinnum í röð. Hjálpi mér allir heilagir.

Úff. Væri svo til í húsmæðraorlof. Bara heima hjá mér þannig að ég myndi taka til í friði og fá að vera án barna í ótilgreindan tíma. Það er draumurinn.

En þangað til... þá er það Dóra "Hóra" á replay daginn út og daginn inn.

Monday, November 9, 2015

9/11 2015

Eftir lítinn sem engan svefn vegna helvítis kælipressunar í rúminu mínu í ytra og innra barnaherbergjunum mannaði ég mig upp á hringdi í konu sem býr í hinum stigaganginum og notar kæliherbergið sitt mikið og fékk leyfi hennar vegna til að slökkva á þessu dæmi fyrir nóttina.

Af hverju á ég ekki bara heima í einbýlishúsi??!! Það væri langbest fyrir alla.

Var næstum búin að slasa mig í nótt. Skreið hálfsofandi í efri kojuna í innra barnaherbergi þar sem Emilía sefur. Heyrði ennþá í helvítinu og vildi loka hurðinni sem var opin í myrkrinu. Hefði alveg getað dottið niður úr kojunni og lent illa á meðan ég var að reyna að ná í hurðina.

Af hverju í andskotanum er ég láta bjóða mér upp á þetta? #fml

8/11 2015

Svo skrýtið hvernig allt raðast stundum á sama daginn.

Núna er allt - ALLT - að fara gerast á miðvikudaginn 11/11. Það er spes hádegismatur og fyrirlestur í vinnunni og svo er fundur.

Stefán Máni er sögumaður í leikritinu í sínum bekk en það er einmitt bekkjarkvöld þennan dag.

Tengdapabbi verður 75 ára þennan dag.

Síðast en ekki síst þá er húsfundur vegna kælipressunnar.

Það er nú ansi sterkt að hafa uppáskrifað frá Heilbrigðiseftirlitinu að þessum látum verði að linna. Og það 15. nóvember. Sé fyrir endann á þessari martröð.

7/11 2015

Orðin guðhrædd og meyr í öllu þessu svefnleysi.

Verð ég í alvörunni stödd einhvers staðar á miðbaug jarðar á 3ja ára afmæli uppáhalds dóttur minnar? Í alvörunni? Hún elskar afmæli og ef einhver á afmæli þá finnst henni að hún eigi sjálf afmæli. Hún sýndi mér í fyrsta skiptið hvað hún er gömul með puttunum í dag.

Þær sögðu mér í leikskólanum að eitt barnanna á deildinni hefði átt afmæli um daginn og að hún hafi sungið afmælissönginn hæst allra. Bara mjög hátt. Litla skinnið mitt.

Omg.

Saturday, November 7, 2015

6/1 2015

Svo þreytt þennan dag vegna kælipressutengdrar svefnlausrar nóttu. Núna þarf að ég lifa við þetta helvíti í viku í viðbót. Við færðum rúmið mitt inn í herbergið hans Óla en hann svaf í kojunni.

Það heyrist líka í helvítis fokking mótornum inn í því herbergi.

Fuck My Life.

5/1 2015

Vinni vinni vinni vinni vinn.

Eigandi bílastæðis í Grjótaþorpinu kenndi mér lexíu þegar ég fékk stæðið hans lánað í smá stund með því að leggja fyrir aftan mig svo ég komst ekki í burtu. Mér til varnar þá var stæðið ekki merkt. Lét mig dúsa þarna í hálftíma.

4/1 2015

Það er búið að kalla til húsfundar í næstu viku vegna kælipressunnar. Ég er svo fegin að þetta er bráðum að verða búið. Get ekki lýst því. Er farin að poppa svefnpillur til að geta sofið.

3/1 2015

Ég er búin að fá heilbrigðiseftirlitið hingað sem sendi húsfélaginu bréf. Þau hafa til 15. nóvember til að útrýma þessu hljóði.

Köld eru kvennaráð.

2/1 2015

Þessi dagur var hræðilegur. Alger martröð. Kælipressan vakti mig svona sirka 5 sinnum um nóttina. Þetta er svo súrrealískt að lifa við vélarhljóð í svefnherberginu.

1/1 2015

Hvaða, hvaða...

svo var nú bara indælt að hitta þau. Kærleikurinn flæðir.

There's a limit to that love though.