Viðburðaríkur dagur.
Ég var stressuð fyrir húsfundinn um kvöldið. Maður er náttúrulega með vesen fyrir fullt af fólki með því að geta ekki sofið við mótorhljóð. Þannig að hádegisfyrirlesturinn sem var í boði í vinnunni var svo viðeigandi og kærkominn. Ásdís Olsen kom og hélt fyrirlestur um Mindfulness á vinnustaðnum og var svo með hugleiðsluæfingu líka. Þetta bjargaði deginum. Alveg og alla leið. Takk vinnan og takk Ásdís:)
Bekkjarkvöldið hjá Stefáni gekk rosalega vel. Strákurinn stóð sig svo vel að við brostum hringinn ég, mamma og Svanur og Óli. Stefán hafði beðið um að fá að vera sögumaður í leikritinu og svo stóð hann sig svona líka vel. Las hægt og skýrt og rólega og allt. Þetta var bara frábært:) Eins og gengur og gerist þegar 7 ára börn eru að sýna leikrit var þetta allt saman rosa krúttlegt og allir svo lukkulegir með þetta. Lengdin á leikritinu var líka fín, ekki of langt. Rosalega vel heppnað.
Svo kom blessaður húsfundurinn. Hann styrkir allavegana þrána eftir einbýlishúsinu/raðhúsinu þar sem maður þarf ekki að biðja fólk vinsamlegast hvort maður geti fengið að sofa í friði. Súrt að þurfa að horfa upp á nágranna sinn gefa skít í svefnleysið hjá manni. Bara virkilega óþolandi og erfitt. Það sýndu þessu flestir eða eiginlega allir skilning en svo var einn sem er okkar megin og hefur verið svona kunningi okkar sem sýndi þessu engan skilning. Missti allt álit á manninum í kjölfarið. Allt.
Allavegana, mig langar ekkert sérstaklega til að búa í þessari blokk lengur. Langar að flytja. En þar sem maður er búin að panta flug til Bali og borga og á svo eftir að borga nokkur hundruð þúsund í viðbót fyrir þá ferð þá sé ég það ekki alveg vera að fara gerast á næstunni. Mér skilst að sprauturnar sem ég þarf að fá áður en ég fer kosti líka á milli 50-100 þúsund.
Svo er líka spurning um að "fórna sér" og flytja inn í stofu til að lúffa fyrir nágrönnunum. Hvað ætli kosti að gera millivegg?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment