Friday, January 29, 2016

Útkoman

Jæja,

græjaði myndir í myndarammann og fékk bæði litaðar og svart/hvítar myndir. Svona er útkoman þegar myndirnar eru svart/hvítar:)


Er þó nokkuð ánægð með þetta þar sem þessi veggur hefur svart/hvítt þema. Get svo poppað þetta upp seinna með að skipta yfir í lituðu myndirnar sem eru nú bara á bakvið hinar í römmunum sko;)

Mig langar í svona stóra plöntu sem er á gólfinu en mér gafst nú ekki tími í vikunni til að græja það svo að ég lét mér nægja að fara í blómabúðina í Austurveri og kaupa ástareld. Náði að poppa stofuna aðeins upp með þessu..

Svo gerði ég nú smá klúður er ég hrædd um. Fékk svona errr.. veggskreytingar í jólagjöf frá bróður mínum og konunni hans sem var að gefa okkur jólagjöf í fyrsta skiptið (hún hefur líklegast valið þetta.) Setti þetta upp eftir bestu getu á þennan vegg á milli hurðanna

... en þetta nýtur sín best hjá ljósi og varpar þá svona fallegum skuggum á vegginn. Kunnum ekki við að setja þetta beint fyrir ofan ljósin inn í stofu, fannst það ekki passa svo að þetta er bara svona þarna og engin ljós.. Oh well..

Allavegana, það er alltaf það góða við að halda svona afmæli að þá tekur maður aðeins til hjá sér og núna gerði ég nú alveg eitthvað fyrir stofuna.

Bara þónokkuð ánægð með mig og árangurinn:)

Monday, January 25, 2016

afmæli

Þar sem Óli minn varð 14 ára á dögunum ákvað ég að bjóða fjölskyldunni í kaffi næstu helgi.

Mín innri húsmóðir hefur lifnað við og mig langar til að lappa aðeins upp á heimilið fyrir boðið. Til dæmis setja myndir af fjölskyldunni inn í þennan myndaramma sem hefur bara verið með myndunum sem fylgdu með af því að þær eru flottar....


Svo langar mig til að kaupa plöntur og gera eitthvað meira nice fyrir heimilið:)

Bókatíðindi

Einmitt.

Sko. Kláraði þessa blessuðu bók Sogið eftir hana Yrsu.

Verð bara að segja að ég er ekki ánægð. Veit ekki hvort það er af því að ég er að lesa þessa bók í janúar þegar er hvað dimmast og kaldast en mér fannst þessi bók bara ógeðfelld. Hræðileg morð og hræðilegt barnaníð. Ég er bara ekki að kaupa að þetta plott myndi nokkurn tíma gerast á Íslandi. Þetta er allt of ógeðfellt til þess. Ég meina, afskornar hendur og fætur sem hafa verið söguð af með vélsög eða keðjusög? Þetta hefur aldrei gerst!

Æ, þetta var of ótrúverðugur skáldskápur fyrir minn smekk. Það eina sem ég hafði áhuga á var ástarlífið hans Huldars. Það var nú líkt mér.

En jú, ok, þetta var kannski gott plott en alltof ótrúverðugt og ógeðfellt allt saman.

Næst ætla ég að lesa bók um sumar og blóm held ég bara. Það var meira að segja einn laugardagsmorgun sem ég bara treysti mér ekki í að lesa þessa bók. Það er bara þannig.

Það er voða ólíkt mér að vera með svona neikvæðni en þetta er bara svona...

Saturday, January 23, 2016

Kona verður að kellingu

Ég veit það. Hef fundið fyrir þessu í lengri tíma núna. Þetta er búið.

Ég er orðin að kellingu.

Get þess vegna tekið djammfötin út úr fataskápnum og gefið þau til Rauða krossins. Það eru líklegast yngri rokkgyðjur sem geta tekið við keflinu. Korselettan og rokkpilsin, þessi sem ég fór alltaf í á rokktónleika, eiga eiginlega skilið að fá að lifa með einhverri hressari píu. Þessi pía (ég) hef ekki farið út með stelpunum á rokktónleika í mörg herrans ár og þó nokkur ár liðin síðan ég var grúppía hjá Brain Police. Svo er ég heldur ekki þessi hressa týpa.

Þetta skip er siglt. Mín innri rokkgyðja er í dauðadái og djammarinn í mér dauður.

Kona er orðin að kellingu.

Finn það bara. Drukkið fólk fer í taugarnar á mér. Hef engan áhuga á að vera í kringum það. Myndi borga fyrir að fá frekar að vera heima. Ég er líka orðin þessi týpa sem myndi tala í umvöndunartón við mér yngri píur eða gæja.

Er hætt að lita á mér hárið og hef aldrei notað minna make-up. Þetta er einfaldlega búið. Ég er komin yfir á næsta stig. Mér líður auðvitað langbest á þessu stigi núna svo að þetta er ekki vond þróun og ekki svo mikill harmleikur. Þetta eru bara svona ákveðin kaflaskipti í lífinu. Get ekki haldið mér vakandi lengur en til miðnættis, tops. Er farin að vakna fáránlega snemma á morgnana um helgar. Það er bara skrýtið. Og mér finnst það æði sem er kannski skrýtnara. Þetta eru góðu friðsælu stundirnar sem ég á ein og er þá að lesa eða vinna í tölvunni. Mmmmmm...

Tími samt ekki að gefa rokkfötin. Þetta eru mín rokkföt.

Rock out.

When Stella got her groove back

Þetta er held ég titill á bíómynd. Man allavegana eftir að hafa heyrt þennan frábæra titil og elskað hann. Það er eitthvað svo mikill fílingur í því að finna grúvið sitt aftur.

When Svava got her groove back. Þetta er að fara gerast. Árið 2016 verður ár uppbyggingar á sál og líkama. Borða lifrarpylsu og blóðmör út í eitt til að ná járninu upp aftur og fer m.a. á þetta Empower women retreat á Bali til að byggja upp andann.

"Upp, upp mín sál og allt mitt geð!"

Mikið væri asskoti skruggusmart að vita hver sagði þetta svo ég gæti quote-að þetta almennilega..


Wednesday, January 20, 2016

bad hair day

gleymdi því nú reyndar ekki alveg þegar ég ákvað að vera umhverfisvæn og hippaleg og hætta að lita á mér hárið hvað þetta er erfitt að vera með langa músalitaða rót. Þetta er bara ágætlega töff tímabil verð ég að segja..

En, ég ætla að þrauka þetta, vera hippi og umhverfisvæn, og hætta þessu peningaplokki og veseni. Djöfull erfitt samt.

Monday, January 18, 2016

Asnaleg færð

Þessi janúarfærð er eitthvað svo asnaleg, þið vitið svona klaki og vesen, að það er hvorki eiginlega hægt að ná í Guðrúnu Höllu á snjóþotu eða kerru í leikskólann að heiman. Það er eiginlega ómögulegt að nota bæði á þessum klaka:/ Leiðinlegt að þurfa að fara á bílnum..

En talandi um Guðrúnu Höllu þá féll ég aftur fyrir henni (geri það nú á hverjum degi) í gær þegar við vorum í sundi. Hún fór svona án gríns 60 ferðir í smábarnarennibrautinni í heita pottinum og alveg: "MAMMA!! ÉG ER HÉR!!" þegar hún var uppi skælbrosandi og veifandi áður en hún renndi sér niiður og fór svo aðra ferð og skellihló og var svo æðisleg.

Það er nú reyndar annað mál að þegar við vorum komin upp úr og erum að borða ísinn frammi kláraðist hún alveg og tapaði sér yfir ísnál sem var ekki alveg í laginu eins og hún hafði væntingar um. Hún öskraði alveg rosalega...


Saturday, January 16, 2016

Sogið

Ég er eitthvað svona frekar ósátt við þessa bók sem ég er að lesa sem er skrýtið og leiðinlegt af því að venjulega elska ég að lesa.

Ég upplifi hana svo drungalega og ofbeldisfulla að ég hreinlega meikaði ekki að lesa hana síðustu helgi. Lýsingar á skelfilegu barnaníði og morðlýsingar er bara eitthvað sem ég er ekki að meika akkúrat núna:/

Ég er einmitt nýbúin að lesa Horfðu á mig held ég að það hafi örugglega verið og fannst hún bara mjög góð. En þessa bók er ég ekki alveg að meika. Kannski er það bara ég. Eitthvað viðkvæm:/

Og núna er ég búin að hefja þrjár málsgreinar á "Ég" sem er svo bannað í textagerð. Ég veit það.


Zumba

Ohhh, hvað mig langaði mikið í Zumba í morgun. Er ekkert búin að fara á árinu:/

Vaknaði með lögin í hausnum og sporin líka en.... ég er bara of slöpp :(

Þetta er samt allt að koma. Vonandi kemst ég næsta laugardag:)

Voða out of my element að vera ekki 100% og komast ekki í Zumba.


shitturinn titturinn

Jæja.

Er í svo miklum komplex hvað ég á að gera við líf mitt vinnulega séð að það hálfa væri nóg. Allar sjálfshjálparbækurnar segja að maður eigi að vinna við það sem maður hefur gaman af að gera/elskar. Ég sé mig einhvern veginn fyrir mér í meðferðarherbergi svona eins og þegar maður fer í nudd að gefa einhvers konar heilandi meðferð. Veit ekki alveg hvað það er en ég held að ég geti ímyndað mér sjálfa mig sem einhvers konar svona heilandi meðhöndlara... hvað ég á svo að gera við þessa sýn veit ég ekki.... 

Er búin að skoða heilunarskóla hérna heima en no offens þetta virkar svo kúkú eitthvað... Var að skoða Snyrtiskólann af því að mér datt í hug að fara þangað en nei, það kostar á aðra milljón og ég get bara ekki farið að eyða meiri pening í nám.. Námið þar er eitt ár en æ, dí.... Skoðaði líka Nuddskólann en einmitt, frekar langt nám og dýrt.. Og maður þarf eiginlega bara fastar tekjur. Það er bara þannig....

Af hverju er lífið svona flókið?

Tuesday, January 12, 2016

Bali

Núna er ég farin að telja niður í Bali ferðina.

Er búin að vera í einhvers konar tilvistarkreppu á þessum fyrstu dögum á nýju ári. Heilsan er ekki búin að vera góð því miður og konan stendur á krossgötum. Hvað skal gera? Whats my passion? Og hvernig á ég að fara að því að vinna við það??

Ó, þú tilvistarangist.

Þegar manni líður svona er svo gott að eiga svona ferð í pokahorninu. Ég er að fara til Bali! Einmitt til að pæla í þessum hlutum. Oh, hvað ég er farin að telja niður!

P.s. bólusetja eða ekki bólusetja? Kíróinn minn er á þeirri skoðun að ég eigi ekki að gera það. Er ringluð.


Wednesday, January 6, 2016

31/12 2015

Á gamlárskvöld er hið árlega fjölskylduboð hjá ma + pa. Mikið er nú alltaf gott að hitta fjölskylduna. Ég er svo heppin með frænkur hérna megin. Allt í svo goody feeling.

Ég lenti í því hinum megin að ein frænkan gerði stólpagrín að mér fyrir að það leið yfir mig í sumar: "Enginn nema þú!"og hló svo eins og ég væri algert járnbrautaslys. Ekki svo mikið goody feeling þar.

Allavegana, þetta var fínt gamlárskvöld. Við vorum frekar fá í þetta skiptið en gaman engu að síður. Við rétt svo töpuðum í Trivial Pursuit, munaði ekki miklu. Mjög svo hefðbundið. Gat hlegið að skaupinu sem var auðvitað frábært og passaði svo Guðrúnu Höllu á meðan pabbi hennar skaut upp nokkrum 10.000 köllum...

Eins og áður gat ég ekki haldið mér vakandi mikið lengur svo við vorum komin heim kannski um kl. 01:30....

Partýdýrið mikla.....

Var yfir mig spennt að Patrick J Adams úr Suits væri hérna með kærustunni sinni og fylgdist grimmt með þeim á Instragram og hafði gaman af.

Núna er þessu ári sem ég blogga á hverjum degi lokið. Þetta var fínt ár. Fór tvisvar til Tenerife og naut sólarinnar. Eignaðist nýja vini og hvaðeina. Reyndar leið líka yfir mig tvisvar en ég kýs að líta á það á sem jákvæðastan máta þar sem það lét mig sjá hvað ég var rosalega lág í járni. Gott líka að fá skýringuna á þessari þreytu alltaf hreint. Vann mig upp um rúmlega 21 stig í hemóglúbíni á 4 eða 5 mánuðum.

Allavegana, takk fyrir lesturinn á árinu elskurnar. Blogga ekki á hverjum degi á nýju ári...



30/12 2015

Það kom að því að örvæntingafulla húsmóðirin okkar fann sig knúna til að hringja sjálfa sig inn veika í vinnuna þennan dag.

Þetta er ekki eitthvað sem ég stunda svo þegar það gerist þá er maður í alvörunni veikur:/ Orkan alveg í núlli....

29/12 2015

Ohhh, hvað það getur verið erfitt allt þetta myrkur hérna á veturnar.....

28/12 2015

tough day at the office. Enough said.

Tuesday, January 5, 2016

27/12 2015

Þennan dag gerðum við fjölskyldan okkur glaðan dag og skelltum okkur í sund.

Það kom svo í ljós að það hafði svona fjórðungi Reykjavíkurbúa og Kópavogsbúa dottið það sama í hug.

Það var samt bara allt í lagi og við skemmtum okkur vel. Litla krúttið krúttaði næstum yfir sig. Frúin náði að synda og fá nudd í pottinum, kallinn hitti annan gröfukall eða eitthvern álíka í pottinum og gat skrafað við hann og krakkarnir komust í rennibrautirnar.

Það er ekkert allt of oft sem við gerum svona lagað núna þannig að þetta var fínt.

Góður dagur:)