Wednesday, January 6, 2016

31/12 2015

Á gamlárskvöld er hið árlega fjölskylduboð hjá ma + pa. Mikið er nú alltaf gott að hitta fjölskylduna. Ég er svo heppin með frænkur hérna megin. Allt í svo goody feeling.

Ég lenti í því hinum megin að ein frænkan gerði stólpagrín að mér fyrir að það leið yfir mig í sumar: "Enginn nema þú!"og hló svo eins og ég væri algert járnbrautaslys. Ekki svo mikið goody feeling þar.

Allavegana, þetta var fínt gamlárskvöld. Við vorum frekar fá í þetta skiptið en gaman engu að síður. Við rétt svo töpuðum í Trivial Pursuit, munaði ekki miklu. Mjög svo hefðbundið. Gat hlegið að skaupinu sem var auðvitað frábært og passaði svo Guðrúnu Höllu á meðan pabbi hennar skaut upp nokkrum 10.000 köllum...

Eins og áður gat ég ekki haldið mér vakandi mikið lengur svo við vorum komin heim kannski um kl. 01:30....

Partýdýrið mikla.....

Var yfir mig spennt að Patrick J Adams úr Suits væri hérna með kærustunni sinni og fylgdist grimmt með þeim á Instragram og hafði gaman af.

Núna er þessu ári sem ég blogga á hverjum degi lokið. Þetta var fínt ár. Fór tvisvar til Tenerife og naut sólarinnar. Eignaðist nýja vini og hvaðeina. Reyndar leið líka yfir mig tvisvar en ég kýs að líta á það á sem jákvæðastan máta þar sem það lét mig sjá hvað ég var rosalega lág í járni. Gott líka að fá skýringuna á þessari þreytu alltaf hreint. Vann mig upp um rúmlega 21 stig í hemóglúbíni á 4 eða 5 mánuðum.

Allavegana, takk fyrir lesturinn á árinu elskurnar. Blogga ekki á hverjum degi á nýju ári...



1 comment:

Tinnsi said...

Gleðilegt ár vinkona! Vona að þú bloggir samt af og til á þessu nýja.