Monday, January 18, 2016

Asnaleg færð

Þessi janúarfærð er eitthvað svo asnaleg, þið vitið svona klaki og vesen, að það er hvorki eiginlega hægt að ná í Guðrúnu Höllu á snjóþotu eða kerru í leikskólann að heiman. Það er eiginlega ómögulegt að nota bæði á þessum klaka:/ Leiðinlegt að þurfa að fara á bílnum..

En talandi um Guðrúnu Höllu þá féll ég aftur fyrir henni (geri það nú á hverjum degi) í gær þegar við vorum í sundi. Hún fór svona án gríns 60 ferðir í smábarnarennibrautinni í heita pottinum og alveg: "MAMMA!! ÉG ER HÉR!!" þegar hún var uppi skælbrosandi og veifandi áður en hún renndi sér niiður og fór svo aðra ferð og skellihló og var svo æðisleg.

Það er nú reyndar annað mál að þegar við vorum komin upp úr og erum að borða ísinn frammi kláraðist hún alveg og tapaði sér yfir ísnál sem var ekki alveg í laginu eins og hún hafði væntingar um. Hún öskraði alveg rosalega...


No comments: