Ég er alveg ferlega stolt af mér.
Fyrsti dagurinn með aðstöðu búinn og ég er alsæl.
Hef á tilfinningunni samt að mér líði ekki eins eftir nokkur ár en hey,
am happy:)
Tuesday, March 26, 2019
Friday, March 22, 2019
Þakklát
Í dag er ég þakklát fyrir að þurfa ekki að hafa áhyggjur. Í stóra samhenginu.
Það er hluti af nuddnáminu að fara og nudda á landspítalanum. Í dag var það hlutverk mitt að gefa sjúklingum svæðameðferð (reflexology) en þá eru fæturnir nuddaðir. Mér skildist að það væri ekkert svo mikið eftir hjá þessum tveim sem ég var með. Eitthvað svoleiðis.
Ég fylltist allt í einu gríðarlegu þakklæti fyrir heilsu mína og allsnægtir. Það sem ég hafði áhyggjur af þennan daginn var að komast ekki í spinning nógu tímanlega í hádeginu. Thats it. Mínar einu áhyggjur þannig lagað.
Svo gat ég bara skottast í burtu þegar ég var búin. Náði auðvitað spinning tímanum og hef það svo gott. Líður vel.
Til hvers að hafa áhyggjur svona yfir höfuð ef líf manns er ekki í hættu? Er það ekki frekar þannig að heilsan er frekar í hættu ef maður hefur áhyggjur?
Þannig að ég ætla að vera ligeglad alveg þangað til að ég hef fullgilda ástæðu til að vera það ekki.
Þið megið alveg minna mig á þetta ef ég gleymi þessu;)
Adios amigos.

Wednesday, March 20, 2019
Smells like my spirit
Ég finn lyktina. Finn lyktina af frelsinu eins og það sé bara rétt handan við hornið. Frelsið, vinur minn.
Í dag leyfði ég Guðrúnu Höllu sem er nýorðin sex ára að labba sjálfri til vinkonu sinnar sem á heima rétt hjá, í næstu götu. Hún fór á milli garðanna baka til en alls ekki yfir götu. Vinkonan á heima akkúrat í gönguleiðinni sem við löbbum alltaf heim úr leikskólanum og leikskólinn er bara rétt hjá.
Svo í stað þess að þurfa að fara með hana sjálf þá fór hún bara sjálf skottan og hringdi svo hlæjandi frá vinkonunni hæstánægð með sig.
Litla skellibjallan.

Subscribe to:
Posts (Atom)