Í vikunni fjárfesti ég í heilsu minni og hamingju.
Það er búið að liggja á mér eins og mara að þurfa að brölta með nuddbekkinn á milli staða. Það var þannig sem ég fór í bakinu um daginn og finn að það er þessi hreyfing á spjaldbeinið sem fer með það.
Fjárfesti því í nuddbekk nr 2 á mánudaginn. Fann að þetta var svo innilega málið. Fyrir vikið þarf ég ekki að fara til osteopata, kíró og já þjást af því að ég, nuddarinn, get ekki gengið. Þjáningin var bara of mikil síðast. Núna sem sagt valhoppa ég á staðina mína, bara ég, ekki ég og heill nuddbekkur sem ég þarf að halda á. Bravó ég!
Fjárfesti líka í hugleiðslupúða sem ég keypti í Yogashala, þar sem aðstaðan mín er. Var búin að stelast til að prufa hann nokkrum sinnum og fann að þetta var líka málið fyrir bakið mitt. Sit oft þarna í hugleiðslustöðu. Þetta skiptir máli, að vera í góðri stöðu, líkamlega séð. Þetta tengist svo mikið hjá allavega mér, líkamleg og andleg líðan. Betra bak, betri ég :)
Þriðja fjárfestingin var núna rétt áðan þegar ég keypti nýjan blandara. Var í alvörunni farin að setja á mig stóru headphonin til að meika hávaðann í nutribulletinu á morgnana og biðja nágrannana afsökunar í hljóði allan tímann meðan lætin voru í gangi. Fékk svona alveg suð í eyrun í gærmorgun með stuði í.
Þessi vika er mjög óvanaleg af því að vanalega kaupi ég aldrei neitt nema mat. Allavega ekki mikið.
Er mjög glöð með þessar fjárfestingar af því að ég veit að þær voru nauðsynlegar.
Hlakka til að valhoppa í fyrirtækið á morgun sem ég er búin að vera að brölta með nuddbekkinn í.
Jeij ég.
P.s. er að binge horfa á Suits (frá byrjun) og skil ekki hvað ég sá við Harvey. Er ekkert skotin í honum lengur. Ekkert. Mike Ross aftur á móti... hot hot hot!