Friday, August 20, 2021

Eins og að koma heim


Ég fór á háandlegan viðburð í Hörpunni í gær. 

Enn og aftur sannast máltækið: hamingjan hefst þegar væntingum líkur.

Allavega, Nicolai Engelbrecht og Sara Odds stóðu fyrir þessu og voru með heilan her af heilurum og gong spilurum með sér. Heiðrún María og Júlía Óttars skinu skært líka. Svo skært. Vá.

Allavega, hef stundað breathwork í mörg ár núna en þetta var magnaðasta breathwork æfing sem ég hef nokkurn tíma gert. Svona hópæfing magnar líka allt upp auðvitað. 

Við erum að tala um að þeir sem höfðu reynslu af breathwork var leiðbeint að vera á fjórum fótum. Það var ykkar kona...

Vá, sem sagt magnað. Fór út í geim og aftur heim. Andinn kom yfir mig og vá.

Svo braust hátíðin út í dans þar sem dj Margeir naut sín og já ég dansaði svo mikið að ég svitnaði í öll fötin mín.

Þekkti svo marga þarna, liggur við annan hvern mann. Margir yogakennarar og meðferðar aðilar þarna.

Felt like home. 

Fór bara ein. Finnst það bara gott, er farin að gera þetta og það er orðið frekar normið frekar en að hafa fyrir því að finna einhvern með. 

No comments: