Thursday, August 5, 2021

Paradís

Það er svo yndislegt þegar lífið kemur manni á óvart. 

Ég var ekkert búin að spá í hinu árlegu veiðiferð fjölskyldunnar. Var of upptekin við að vera í núinu.

Líka alveg nóg í gangi alltaf þó það sé ekkert svo merkilegt. 

Var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera á túninu hjá tengdapabba fyrir norðan. Man ekki eftir að hafa séð Hrútafjörðinn svona fallegan. 

Í beinu framhaldi var veiðiferðin á Snæfellsnesi með stórfjölskyldunni mín megin. Og vá!

Vorum á afskekktu hóteli, bara við fjölskyldan, nálægt Vegamótum. Féll í stafi, ekki bara yfir náttúrufegurðinni allt í kring, heldur líka hvað þetta var geggjað hótel. 

Mér líður svo vel þegar ég sef á stað þar sem er enginn fyrir ofan mig (eða neðan mig.) Hjólhýsið er þannig auðvitað og þetta hótel var þannig. Þægindin og glæsileikinn í fyrirrúmi og það var hægt að ganga út úr herberginu beint út í náttúruna. Vá.

Áttum yndislegar stundir í þessu fallega umhverfi. Ég veiði ekki og var að hippast meðan hinir voru að veiða. Fann hvernig ég er orðin sterkari í mér að vera eins og ég er.

Leið ekki eins mikið eins og geimveru og vanalega. Samt alveg fullt!

P.s. tók því miður ekki myndir svo mig vantar myndir til að setja með þessari færslu en við vorum einstaklega heppin með veður. Gerði hugleiðslu og yoga úti:)

No comments: