Friday, June 24, 2022

Up and down

Þessi vika er búin að vera stórkostleg rússibanareið.

Allt er í senn æðislegt og um leið erfitt. 

Hápunktur vikunnar var klárlega sumarsólstöðu seremónía með mörgum konum í Mosfellssveit. Eftir árángursríka eldseremóníu var stokkið út í foss. Margar voru naktar en okkar kona var nú í sundbol. Þetta kvöld sofnaði ég skælbrosandi í botnlausri alsælu.

Lágpunktur vikunnar er að hendurnar mínar fóru að mótmæla vinnuálagi með því að vinstri hendin er óvinnufær. Hún svona eiginlega öskrar á hvíld með því að hanga köld og lömuð. Verð að hvíla aðeins tja eða læra nýjar vinnuaðferðir.

Biðjið fyrir mér. Já, eða sko allavega hendinni. 

Omg.

P.s. til marks um ótæmandi rómantíkina í hjónabandinu mínu steingleymdum við Svanur að við áttum brúðkaupsafmæli. Aftur! Erum bara ekki rómantísk. Fékk snap frá Ítalíu þar sem fjölskylda kærustu sonar míns var að skála fyrir okkur og fattaði þetta þá. Hahahaha!

Friday, June 17, 2022

Bugun

Lífið er allt breytt eftir skólaslitin hjá krökkunum. Núna eru þau heima og á námskeiðum og lífið er flóknara.

Rann í gegnum áhugaverða grein í vikunni sem fjallaði um þriðju vaktina og að hún sé ástæðan fyrir mörgum skilnuðum. Mér dettur í hug tveir ef ekki þrír skilnaðir í mínu nærumhverfi sem hafa beinlínis verið vegna þriðju vaktarinnar.

Skiljanlega. 

Hún er vel falin þreytan sem fylgir uppvaskinu, öllu uppvaskinu alltaf, þvottinum, öllum þvottinum alltaf, hvað er í matinn, alltaf, allt utanumhald yfir krakkana og þeirra líf og því að vera hausinn í allri skipulagningu alltaf og því að vera heima á úlfa tímanum þegar allt er í gangi. 

Merkilegt hvað sumir karlmenn (mér dettur í hug flestir sem ég veit um) eru ekkert að spá í hvað þetta getur verið yfirþyrmandi og hvað hún getur verið erfið þessi þriðja vakt.

Eina sem mig langar núna er að komast í burtu af heimilinu þó ekki væri nema í viku. 

Þrjár vikur í yoga retreati í Tælandi til dæmis gæti bjargað málunum. 

Hugsanlega. 

Friday, June 10, 2022

Kvennsi

Okkar kona situr skjálfandi á biðstofu. Vantaði tíma hjá kvensjúkdómalækni og hreinlega gafst upp á að fá tíma hjá kvenkyns kvennsa. Of löng bið. Er þess vegna að fara til karlkyns læknis.

Finnst þetta mega óþægilegt. Veit að mörgum konum líður eins. Hvað í fokkanum veit karlmaður um kvenkyns vesen þarna niðri?


Omg hvað þetta er óþægilegt. Líður alveg eins og þegar ég var tuttugu og eitthvað.. maður er dáldið berskjaldaður í svona skoðunum.

Hjálp. Er komin með mega hjartslátt..

Eftir tímann:

Þetta gekk auðvitað bara vel. Gott að fá karllæga nálgun á vandamálið sem er verkir sirka tvisvar í viku síðastliðin misseri. Föttuðum saman að verkirnir hófust einmitt eftir að ég fékk nýju lykkjuna. Tókum lykkjuna, já eða hann, og sjáum núna fram á bjarta framtíð.

Pistill þessi, sem hefur verið ofdeiling (over sharing) á kynheilbrigði húsmóðurinnar okkar, er hér með lokið. 

Friday, June 3, 2022

Wardrope malfunction

Flestar konur elska að versla föt.

Ekki ég.

Fyrir mér er þetta frekar kvíðvænleg stund og alls ekki minn tebolli.

Er búin að koma samt upp kerfi í regluverki hugans þar sem ég kaupi eina flík í mánuði. Skrái þetta svo samviskulega í Samsung notes.

Það er ekki bara það að ég virðist hafa tapað almennri tískuvitund heldur líka að mér líður það illa í oflýstri kapítalískri orku fataverslana að ég spring á limminu ef meira en korter er liðið af þessari þjáningu.

Það var þannig sem það gerðist að ég keypti of stóran gallajakka þar sem axlarsaumarnir hanga langt niður á upphandlegg. Flík maímánaðar.
Mér til varnar þá voru allir gallajakkarnir í mjög skrýtnum stærðum. Mátaði alveg nokkra.

Það var líka þannig sem það gerðist að ég keypti fjórar flíkur í Gyllta kettinum en er núna búin að gefa tvær þeirra áfram til Rauða krossins.

Úff.

Sko, mér myndi kannski líða betur í verslunum ef lýsingin væri dimm og það væri almennt mun meiri kósý stemmning.

Hef oft hugsað að ef ég myndi vinna í lottóinu myndi ég ráða persónulegan stílista sem myndi versla fyrir mig og fara í búðirnar.

Það er pottþétt fullt af stelpum sem fíla að versla og fá borgað fyrir að versla. Já og þær myndu vita hvað ætti að kaupa líka;)

Í öðrum fréttum er OCD mitt í fullum blóma. Þegar ég ætlaði að læsa aðstöðunni í gær eftir vinnu var akkúrat kona á vappi á ganginum. Get ekki gert þessa læsingar seremóníu fyrir framan fólk. Það var samt svo augljóst að ég var að fara verandi í yfirhöfninni og með allt dótið.. úr varð að ég sneri við á leiðinni heim til að læsa. Auðvitað var læst en engu að síður þurfti ég að tékka á því og telja upp á 21 á meðan. Þegar ég var að fara að heiman í morgun var nágranninn akkúrat að fara út á sama tíma og svipað gerðist.

Now theres a confession from a desperate housewife. 

Húúhaa:) crazy girl.