Friday, June 3, 2022

Wardrope malfunction

Flestar konur elska að versla föt.

Ekki ég.

Fyrir mér er þetta frekar kvíðvænleg stund og alls ekki minn tebolli.

Er búin að koma samt upp kerfi í regluverki hugans þar sem ég kaupi eina flík í mánuði. Skrái þetta svo samviskulega í Samsung notes.

Það er ekki bara það að ég virðist hafa tapað almennri tískuvitund heldur líka að mér líður það illa í oflýstri kapítalískri orku fataverslana að ég spring á limminu ef meira en korter er liðið af þessari þjáningu.

Það var þannig sem það gerðist að ég keypti of stóran gallajakka þar sem axlarsaumarnir hanga langt niður á upphandlegg. Flík maímánaðar.
Mér til varnar þá voru allir gallajakkarnir í mjög skrýtnum stærðum. Mátaði alveg nokkra.

Það var líka þannig sem það gerðist að ég keypti fjórar flíkur í Gyllta kettinum en er núna búin að gefa tvær þeirra áfram til Rauða krossins.

Úff.

Sko, mér myndi kannski líða betur í verslunum ef lýsingin væri dimm og það væri almennt mun meiri kósý stemmning.

Hef oft hugsað að ef ég myndi vinna í lottóinu myndi ég ráða persónulegan stílista sem myndi versla fyrir mig og fara í búðirnar.

Það er pottþétt fullt af stelpum sem fíla að versla og fá borgað fyrir að versla. Já og þær myndu vita hvað ætti að kaupa líka;)

Í öðrum fréttum er OCD mitt í fullum blóma. Þegar ég ætlaði að læsa aðstöðunni í gær eftir vinnu var akkúrat kona á vappi á ganginum. Get ekki gert þessa læsingar seremóníu fyrir framan fólk. Það var samt svo augljóst að ég var að fara verandi í yfirhöfninni og með allt dótið.. úr varð að ég sneri við á leiðinni heim til að læsa. Auðvitað var læst en engu að síður þurfti ég að tékka á því og telja upp á 21 á meðan. Þegar ég var að fara að heiman í morgun var nágranninn akkúrat að fara út á sama tíma og svipað gerðist.

Now theres a confession from a desperate housewife. 

Húúhaa:) crazy girl. 


No comments: