Er búin að vera með Jet black joe safndisk í spilaranum í bílnum í marga mánuði núna. Tveir diskar. Föst á þessu lagi, nr 15 á öðrum hvorum þeirra. Þetta lag er meistaraverk. Hálf ærist í hvert skipti sem ég hlusta á það og fer í KAP/tantra hristing.
Annars hefur vikan verið blóðug og dramatísk. Búin að vera á blæðingum í 10 daga núna og frekar mjög miklum í nokkra daga núna.
Varð hvumsa þegar ég hitti meðferðaraðilann sem er með rými við hliðina á því sem ég leigi á Suðurlandsbrautinni í gær.
Rólegur eins og ávallt og með smá bros á vör sagði hann mér að í annað skiptið hefði hann tekið eftir því að hurðin að rýminu okkar væri galopin - og ólæst.
Við erum fjögur sem erum að leigja rýmið saman þannig að einhver hinna þriggja er að fara og gleyma að loka hurðinni - já og læsa.
Það sem kom mér mest á óvart við þessar fréttir var hvað ég tók þeim vel. Var og er bara full aðdáunar að geta verið svona slakur (eða slök) með þessa blessuðu hurð.
Sjálf athuga ég óeðlilega oft hvort að hún sé læst. Hef oft komið aftur til að tékka hvort hún sé ekki örugglega læst.
Þetta er hápunktur OCDsins.
Allavega, er líka með svona slitrur úr degi fyrir ykkur:
Sat í sólbaði úti á svölum í gær þegar nágranninn fyrir ofan byrjar allt í einu að dusta af mottu af miklum krafti. Svalirnar mínar fylltust af ryki og ryk sáldraðist yfir drykkinn minn. Frekar kómískt. Varð hugsað til fjölbýlishússins sem ég bjó í í Bogahlíðinni. Í sameigninni voru gamlar húsreglur frá sjöunni sem kváðu meðal annars á um það að einungis mætti dusta af á svölunum á miðvikudögum á einhverjum ákveðnum tíma!
Gat ekki annað en brosað. Þessi regla hefur verið skrifuð af vönduðu fólki.
Tók upp á því að drekka kaffi aftur fyrir stuttu síðan.
Einn til þrír sopar þegar ég er nývöknuð duga mér og er bara eiginlega of mikið.
Taugakerfið (og hjartað) tekur kipp og fer á yfirsnúning sem endist út daginn. Fæ hugmynd sem ég elti, á leiðinni fæ ég aðra hugmynd sem ég verð að gera strax annars gleymi ég henni o.s.frv.
Ligg svo úrvinda í lok dags, alveg búin á því. Næ samt að nudda vel.
Úff!
Það er bara eitthvað við þetta samt. Lyktin af kaffinu á morgnana.. fyrsti svarti sopinn.. Mmmm.. og svo kick startið. Gott þegar maður er að fara æfa líka.
Hvað ætli valdi því að sumir séu með utanáliggjandi taugakerfi? Eða viðkvæmt og næmt taugakerfi öllu heldur..
Pistill vikunnar er Bridget Jones diary style. Hann er blanda af íslensku og ensku og í staðinn fyrir að telja upp alcohol units og cigarettes og kaloríur heimfæri ég hann að mér; örvæntingarfullu húsmóðurinni. Gjörið svo vel:
Túr = 0
Number of Grace and Frankie episodes watched this week = 10 sirka
Líður eins og ég sé 79 ára svo þessir þættir hitta beint í mark.
Libido = 10%
Energy = 40%
Faðmlög á Mama í morgun í drum circle = 3 ❤️
Feeling of being lost in this world = 50%
Einhyrningur og geimvera = 100%
Verkefni vikunnar = ná í úlpuna hennar Emilíu úr viðgerð á saumastofu í Hamraborg.
Það er rosalegt hvað ég set mikla pressu á mig með þessi blessuðu verkefni vikunnar. Brunaði á saumastofuna í gær af því að mig langaði til drulla þessu pent af en kom að læstum dyrum. Fór aftur í dag (eftir nokkur símtöl við mann sem svaraði í símann) og var sagt að ég þyrfti að drífa mig, það væri einhver að bíða eftir mér. Dreif mig svo mikið að afgreiðslumiðinn flaug undir bílinn þegar ég lagði honum. Lagðist takk fyrir kylliflöt á jörðina og náði í miðann sem var undir miðjum bílnum. Þið skiljið hvað ég meina með pressuna sem ég set á mig með vikulegu verkefnin?
Verkefni mánaðarins = Tryggingar fyrir reksturinn. Er dáldið týnd með þetta. Tekjurnar eru ekki svo mikið meiri en útgjöldin svo málið er niðurdrepandi.
Finn að mig langar og vantar eitthvað verkefni með nuddinu. Einhverja aukavinnu sem hentar mér.
Cacao lausir dagar í vikunni = 0
Eins mikið og cacaoið hjálpar mér mikið þá finn ég að ég þarf frí frá því.
Markmið vikunnar er Cacaolaus dagur. Verandi fíkill þar sem þetta er EINA fíknin sem ég á eftir er þetta töluverð áskorun...
Gangi mér vel. Takk fyrir.
Namaste.
P.s. er í góðum málum hvað alheimsorkuna varðar. Þegar ég hef litið á klukkuna í dag hefur hún verið 09:09, 11:11, 13:13 og 14:14, 15:15 og 16:16. Whoop whoop!!
Finn ekki uppáhalds senuna mína sem lætur mig alltaf hlægja svo þessi verður að duga:
P.p.s. uppáhalds senan mín er í síðustu myndinni: Bridget Jones baby þar sem hún reynir að kynna næsta mann fyrir mr. Darcy. Nafnið hans er á nafnspjaldinu og eru svona 50 stafir :D
Gleðilegt nýtt ár
-
Við tókum á móti nýja árinu í faðmi fjölskyldunnar í Flórída. Það var
yndislegt að heimsækja Öldu og Fred og Annettu. Þau tóku öll svo vel á
móti okkur o...