Friday, January 26, 2024

bowen

Ég verð að segja að ég er frekar mikið stolt af mér.

Helgarnámskeið frá kl 09-17 þrjá daga í röð er mikið fyrir manneskju eins og mig. Get ekki alveg útskýrt af hverju en það er bara mikið.

Stóð mig eins og hetja. Var meira að segja hressi nemandinn eða þannig sem spyr spurninga. 

Þetta var þriðja stigið og það skrýtnasta að mínu mati. Við vorum auðvitað búnar að læra grunninn en núna var það brjóst, þind, grind og rófa. Svoleiðis. Já og kjálki. 

Þegar ég fæddi Stefán fyrir 15 árum gerðist eitthvað. Rófubeinið brotnaði og meðgangan var þannig að ég var í sjúkraþjálfun. Það gerðist eitthvað við grindina. Þó ekki gliðnun. 

Allavegana, við vorum að vinna með nokkuð öfluga punkta og ég byrjaði til dæmis á blæðingum sem átti ekki að gerast. Við erum auðvitað að æfa okkur á hvor annarri. Já, svo var ýtt á "kúkatakkann.."

Í æfingarferlinu á aðgerð rófu gerðist eitthvað. Eins og rófan hafi færst af rétta staðnum sínum. Er búin að labba eins og mörgæs í vikunni. Var sérstaklega slæm á miðvikudaginn. Held að ég sé að verða betri en skokk er allavega ekki eitthvað sem ég sé fyrir mér að geta á næstunni. 

Sá mann skokka í gær og ég var bara "vá, amazing."

Það lítur allt út fyrir að ég verði orðin Bowen tæknir í lok mars.

Húha!

P.s. bowen er bandvefslosunartækni og sérstök meðferðaraðferð. 

Namaste.

Thursday, January 18, 2024

RUV

Hætta ber leik þegar hæst stendur.

Ég ber mikla virðingu fyrir RUV. Er búin að vera verktaki þar í sirka fjögur ár núna og er farin að þykja vænt um staðinn og fólkið.

Tengiliðurinn minn er æði og þetta er búið að vera mikið ævintýri. Var meira að segja að nudda þar sem allt gerist þarsíðustu jól. Það var gaman. 

Núna eru breytingar í siktinu hjá mér og hendurnar mínar biðja um minna álag. Ég ætla að svara kallinu og er held ég þegar búin að redda manneskju til að leysa mig af. 

Verð meira í aðstöðunni. Mýkri nálgun.

En mikið á ég eftir að sakna RUV. 

Kannski fæ ég að koma aftur seinna.

Luv.

Namaste. 




Friday, January 12, 2024

Það er kominn..

.. 12. janúar og húsfrúin hefur ekki hitt vinkonur sínar á nýja árinu. 

Úr því rætist í dag og ég get ekki beðið. Er nú ekkert sérstaklega hrifin af því að fara í sjósund í janúar en hér er ég, farandi í sjósund í janúar, til að hitta vinkonur mínar. 

Æskuvinkonur úr Hvassó. Mmmm.

Ég komst loksins út á land síðustu helgi sem var æði. Það er smá heillandi að keyra úti á landi á veturnar þegar veðrið er til friðs í dag eða svo og færðin viðráðanleg. Suðurlandið var það heillin og vá hvað við náðum fallegum degi á laugardaginn.

Vikan var alls konar að venju. Hæðir, lægðir.

Hápunktur vikunnar verður á eftir þegar ég hitti vinkonur mínar. 

Lágpunktur vikunnar var í gær þegar það rann allt í einu upp fyrir mér að eftir þarnæstu mánaðarmót verð ég næstum því ein í aðstöðunni. Smá svona leiga og svona sem þarf að huga að.

Namaste.

Friday, January 5, 2024

Syndin

 Á daginn bíð ég eftir stjörnunum.

Á nóttunni tel ég þær.

Ég kom hingað ungur maður

í leit að syndinni.

Nú heillar hún mig ekki lengur.

Giovanni Morano

Nú geri ég mér ekki alveg grein fyrir því hver höfundur þessa ágæta ljóðs er nákvæmlega. Eitt veit ég og það er að Ólafur Jóhann Ólafsson er snillingur. Ég elska bækurnar hans. Núna er ég að lesa Játning. Mig grunar að ljóðið sé eftir hann sjálfan en í bókinni lætur hann persónu í bókinni eftir höfundarréttinn.

Vikan var alls konar. Er alltaf jafn heilluð af áramótunum og elska þessa núllstillingu. Nýtt ártal. Nýtt upphaf. 

Orð ársins hjá mér sparnaður. Fyrstu daga ársins er ég búin að skrá alla neyzlu niður og svo það hvað kemur inn hjá mér. 

Uhumm, ég er í sjokki.

Annað háleitt markmið er að spara 1.000 kr á dag sem safnast þá saman í 366.000 kr.

Þar sem er hlaupár.

Hápunktur vikunnar var í gær þegar elskulegur eiginmaður minn skutlaði mér í og úr yoga þar sem það var glerhált úti. Yogatíminn var æði líka. 

Lágpunktur vikunnar var líka í gær þegar runnu á mig tvær grímur þegar ég var að skrá í neyzluskjalið. 

Já hérna hér.