Á daginn bíð ég eftir stjörnunum.
Á nóttunni tel ég þær.
Ég kom hingað ungur maður
í leit að syndinni.
Nú heillar hún mig ekki lengur.
Giovanni Morano
Nú geri ég mér ekki alveg grein fyrir því hver höfundur þessa ágæta ljóðs er nákvæmlega. Eitt veit ég og það er að Ólafur Jóhann Ólafsson er snillingur. Ég elska bækurnar hans. Núna er ég að lesa Játning. Mig grunar að ljóðið sé eftir hann sjálfan en í bókinni lætur hann persónu í bókinni eftir höfundarréttinn.
Vikan var alls konar. Er alltaf jafn heilluð af áramótunum og elska þessa núllstillingu. Nýtt ártal. Nýtt upphaf.Orð ársins hjá mér sparnaður. Fyrstu daga ársins er ég búin að skrá alla neyzlu niður og svo það hvað kemur inn hjá mér.
Uhumm, ég er í sjokki.
Annað háleitt markmið er að spara 1.000 kr á dag sem safnast þá saman í 366.000 kr.
Þar sem er hlaupár.
Hápunktur vikunnar var í gær þegar elskulegur eiginmaður minn skutlaði mér í og úr yoga þar sem það var glerhált úti. Yogatíminn var æði líka.
Lágpunktur vikunnar var líka í gær þegar runnu á mig tvær grímur þegar ég var að skrá í neyzluskjalið.
Já hérna hér.
No comments:
Post a Comment