Eins og hver annar fábjáni saukst ég ofan í Kate Middleton kanínuholuna. If you know, you know.
Er farin að eyða of miklum tíma á tiktok.
Það er margt mjög sniðugt á tiktok. Þarna finn ég æfingar til að gera í ræktinni, alls konar sniðug heilsuráð og oft hressir þetta mig við. Skemmtilegir dansar og eitthvað glens og gaman.
En.
Þegar þetta mál með Kate Middleton kom upp - saukst ég inn. Samsæriskenningarsmiðir ýja að heimilisofbeldi, vinur hennar var myrtur, hlutirnir líta ekki út fyrir William.. Svo halda sumir því fram að þegar hún loksins birtist og sagðist vera með krabbamein að myndbandið sé búið til af gervigreind.
Eitthvað er rangt við þetta. Eitthvað er líka rangt við að ég sé að eyða öllum þessum tíma í símanum. Er farin að koma út í mínus við þessa iðju mína.
Allavegana. Vikan var bara frekar erfið. Ég hætti á hormónauppbótameðferðinni úti á Tene þar sem ég hélt að ég væri að fá blóðtappa í fótinn. Núna er komin aftur ástæðan fyrir því að ég fór á þessa blessuðu meðferð til að byrja með; orkuleysi og slen. Depurð og framtaksleysi. Urg.
Hápunktur vikunnar var í fyrrinótt þegar ég náði loksins að sofa heila nótt án truflana. Krakkarnir eru í of löngu páskafríi að mínu mati og búnir að snúa sólarhringnum við.
Lágpunktur vikunnar var í gær þegar hormónasveiflurnar voru að leika mig grátt.
Markmið næstu daga er þá að minnka símanotkun.
Namaste.