Sunday, August 17, 2008

Gæsun!!

Phaha!!

Gæsunin hennar Siggúar heppnaðist einstaklega vel og bara gaman að sumt fór ekki alveg samkvæmt áætlun. Það eru svona hlutir sem gera daginn ógleymanlegan:)

Ég vona að Siggú sé sátt við okkur eftir daginn. Það sem mér finnst eftirminnilegast er þegar greyið Siggú stóð dansandi í pínupilsi í Hreyfingu með bundið fyrir augun og með músík í hæsta í eyrunum, ekki hafandi hugmynd um hvar hún var, öskrandi:

"Er ég í Kringlunni!!??"

"Þetta er mjög óþægilegt!!?? Má ég sitjast??!!"

Og svo batt Máni, uppáhalds þolfimikennarinn hennar, frá augunum hennar og man, hvað hún var hissa:)

pha!

Good times.

No comments: