Mig rak í rogastans þegar Jón Brynjar bróðir sendi mér sms um að Beverly hills 90210 unglingaþættir lífs míns væru komnir á Sjónvarp Símans.
Er í gegnum árin búin að leita að þessum þáttum alls staðar, á öllum streymisveitum með engum árangri. Loksins. Takk kærlega Sjónvarp Símans! Það er svo skrýtið að mér finnst eins og þessir þættir hafi gerst í gær. Elskaði þá svo mikið þegar ég var unglingur að það hálfa væri nóg. Fyrirgefðu elsku mamma fyrir að hafa æst mig þegar ég þú gleymdir í eitthvert skiptið að taka upp fyrir mig. Á videotækið þar sem hver þáttur var tekinn upp á eftir öðrum..
Það sem er verið að sýna núna eru alveg fyrstu þættirnir. Season 1. Er að rýna í bakgrunninn í sumum senum og já.. þetta er alveg fyrir svolitlu síðan. Hvernig fólk skreytti bakgrunninn þarna er næstum útí 80's. Þá er ég að tala bæði á heimili Kelly til dæmis og kaffihúsum og fleirum stöðum. Peach pit er samt alltaf flottur. Merkilegt miðað við að þættirnir gerðust í gær. Eða svoleiðis. Mér finnst þeir eldast vel. Eins og til dæmis Brenda klæðir sig er ennþá flott að mínu mati. Þættirnir voru teknir upp á árunum 1990 til 1995 fyrst. Svo aftur á árunum 1998 til 2000.
Er að reyna að muna ekki að Luke Perry, sem leikur Dylan er dáinn. Sömuleiðis Shannon Doherty sem lék Brendu. Elska að horfa á þessa þætti. Feels like home. Man eftir flestum af þeim og lifi mig alltaf jafn mikið inn í þá. Grét til dæmis í sófanum eitthvert kvöldið í vikunni þegar faðir Dylans dó með vofleglegum hætti. Beverly hills 90210 eru algerlega unglingsárin mín. Tíminn er svo skrýtinn, jú það eru sirka 33 ár síðan en damn hvað þeir eldast vel þættirnir.
Í síðasta þætti var Kelly að taka megrunarpillur til að vera grennri, Andrea var að reyna að ná viðtali við Dylan fyrir skólablaðið og Brandon var kominn með gambling problem. David var að reyna að meika það sem tónlistarmaður með misjöfnum árangri og Dylan langaði að drekka frá sér vandamálin. Sem betur fer fékk hann að vera hjá Walsh fjölskyldunni til að ná áttum. Kom í ljós að mamma hans var í leynilögreglunni (held ég) og pabbi hans líka.
Fyrir mér eru karakterarnir á undarlegan hátt vinir mínir. Unglingsárin mín. Æskan mín.
Ég fylgist með eftirlifendum á Instagram. Steve Sanders (Ian Ziering) virðist seigastur af þeim. Sá að hann var að keppa í Dancing with the stars um daginn. Kelly Taylor (Jennie Garth) líka. Donna Martin (Tori Spelling) virðist ekki vera á góðum stað án þess að ég hafi kafað djúpt í málefni hennar. Ef ég skil þetta rétt þá hefur hún tapað auðævum sínum til fyrrverandi mannsins síns sem virðist hafa spilað með hana. Hún er fjögurra barna móðir og lenti í bílslysi um daginn en það er allt í lagi með hana og börnin. Hún er dóttir framleiðanda þáttanna (faðir hennar var Aaron Spelling) og átti mikinn pening. Leiðinlegt að þá er hún dáldið eins og karakterinn sinn Donna í þáttunum sem trúir á það góða í öllum. Lendir svo í manni sem nýtir sér það.
Namaste.




No comments:
Post a Comment