Thursday, December 25, 2008

Gleðileg jól allir!

Kreppu hvað?

Það fer í taugarnar á mér þegar fullorðið fólk er að tala um fullorðinsmálefni þegar börn eru viðstödd. Það er álit mitt að það eigi bara alls ekki að tala til dæmis um kreppumál í eyru barna. Barnið skynjar þá umræðu um skort og fyllist ef til vill óöryggistilfinningu.

Ég vil að börnin mín viti að það er til nóg af öllu. Enda er til nóg af öllu! Meðan við erum heil á húfi og heil á líkama og sál, höfum ofan í okkur og á og höfum hús yfir höfuðið þá skortir okkur ekki neitt. Enda er nóg af því sem við þurfum þess fyrir utan; hamingju og kærleik.

Point being: Ég vildi að fólk myndi alfarið hætta að tala um neikvæða og leiðinlega hluti þegar börn eru viðstödd. Og gjörsamlega aldrei tala um skort í eyru barna. Það er trú mín að það hafi slæmar afleiðingar.

Tuesday, December 23, 2008

Jól


Mig langar svo í hvít jól.

Hvít!

Svo langar mig ofsalega mikið á skíði.

Skíði!

Monday, December 15, 2008

Almennt um græðgi


Græðgi er ein af höfuðsyndunum sjö.

Ég hef aldrei skilið gráðugt fólk. Það lætur eins og það að hafa nóg sé bara alls ekki nóg. Það verður að hafa meira. Og gefa ekki með sér.

Einhvern veginn fannst mér þetta endurspeglast ágætlega í þættinum Logi í beinni síðasta föstudagskvöld. Logi tók viðtal við tvær konur. Önnur þeirra, söngkona, var spurð að því hvort hún væri farin að græða á tónlistinni loksins. Hún svaraði eitthvað á þá leið að gróði væri ekki eitthvað sem hún sæktist eftir. Henni nægði blessunarlega að hafa nóg. Síðan kom önnur kona, af allt öðru meiði einhvern veginn. Sú virtist vera með dollaramerki í augunum og talaði um hvernig hún væri að markaðssetja sjálfa sig og kynþokka sinn. Ekki það að ég hafi neitt á móti þeirri manneskju. Hún er absolutely gorgeous!

En maður spyr sig: Hvor er hamingjusamari?

Svarið er svo augljóst og skein einhvern veginn í gegn í þættinum. Söngkonan geislaði af lífshamingju og tísti dúllulega (enda er hún algert krútt) en hin einhvern veginn virkaði hálf fake enda upptekin af ytra útliti dáldið mikið og..

peningum.

Sunday, December 14, 2008

Mér finnst svo skrýtið...

þegar fólk svarar ekki símanum eða sms-um eða e-mailum.

Því þá held ég að það sé eitthvað að, t.d. að viðkomandi sé slasaður eða hafi lent í slysi eða eitthvað.

Er eiginlega komin á það að fólk bara nenni ekki að tala við mig akkúrat núna frekar en að það sé eitthvað að símanum og tölvunni. Kannski er bara svona mikið að gera. Skil nú reyndar smá hvað hússtjórnarfólkið varðar að svara mér ekki. Get alveg verið pirrandi, ég veit það:p

En samt. Fólk á að svara!

Tuesday, December 9, 2008

Me wants job

Me needs job. Me can do job, yes.

Væri alveg til í að byrja vinna eftir jól og áramót. Alveg gjörsamlega tilbúin til þess bara. Er að spá í að skrá mig í fjarnám í bókhaldsnámskeið við Háskólann í Bifröst sem er á næstu önn, bara svona til öryggis ef ég skyldi ekki fá vinnu.

Ferlega óþægilegt að vita ekki hvað gerist í framtíðinni. Uppá hvort maður fái vinnu eða ekki..(Einmitt Svava. Mjööög djúp pæling..)

Karlinn þyrfti líka helst að komast í frí, ég sé það alveg á honum. Farinn að fá í bakið og svona, it's just meant to be..

So, where's my job then?

?

Monday, December 8, 2008

Auglýsingar

Hann elsku Máni er eins og Tryggvi bróðir var þegar hann var lítill.

Hann elskar auglýsingar!

Tryggvi bróðir hoppaði einu sinn upp úr buxunum sem verið var að klæða hann í til að horfa á auglýsingar. Máni starir dolfallinn á sjónvarpið þegar auglýsingar koma og ansar engu og er ekki samskiptahæfur fyrr en þær eru búnar.

;)

Þetta er nú bara eins og back in the day þegar ég VARÐ að sjá Beverly Hills 90210 (hee.. (vandræðalegt..))

Later.

Sunday, December 7, 2008

Tíhí




Það birtist afmælisgrein um mig í helgar DV! :)

Ég fíla mig fræga.


Not.

Wednesday, December 3, 2008

Garg!

Hvar á gott fólk að byrja? Fólk sem er t.d. með fimm ára háskólanám en litla starfsreynslu?

Það er stundum frústrerandi að skoða atvinnuauglýsingarnar. Ég sé mikið auglýst núna eftir sviðsstjórum, framkvæmdastjórum, fjármálastjórum og deildarstjórum. Eða þá fólki með bókhaldsþekkingu.

Garg.

Af hverju er ekki verið að auglýsa eftir millistjórnendum?

Ég er alveg handviss um að ég yrði fínn millistjórnandi.

Tuesday, December 2, 2008

Yoga


I heart yoga.

Ég vildi að ég væri í yogatíma núna.

Fyrir mig þá er þetta 'the ultimate sport'. Mér líður alltaf vel í marga daga á eftir þegar ég er búin að fara í "alvöru" yogatíma. Það er svo gott að geta hreinsað líkamann af stressi með þessum teygjuæfingum enda hef ég fulla trú á þeirri tækni sem er notuð í Asthanga yoga tímunum. (Mín fer í Yoga Shala). Tæknin felst í því að auka hið náttúrulega flæði líkamans með því að losa um "stíflur" með því að gera kröftugar teygjuæfingar. Maður geymir t.d. oft þreytu og streitu í mjöðmunum og með því að gera yoga losnar um þetta og þessu er andað út. (make fun all you want, I don't care)

Eini hugsanlegi gallinn sem ég finn á yoga er að ég er orðin frekar alvarlega háð þessu og verð "cranky" ef ég kemst ekki í tíma einu sinni í viku. Elsku Svanurinn minn veit víst allt um það:/

Monday, November 24, 2008

Bravó! Janis Joplin sýningin

Mikið ofboðslega er ég ánægð með að hafa farið á Janis Joplin sýninguna í Íslensku óperunni á laugardaginn! Við Siggú erum Janis aðdáendur og ég valdi miða á fremsta bekk eins og ævinlega svo maður fékk sýninguna beint í æð..

Bryndís Ásmundsdóttir slær algerlega í gegn í þessari sýningu. Þetta er ekkert smáræðislega geggjaðislega góð söngkona. Og hún náði Janis ALVEG. Ilmur var líka frábær. Að sjálfsögðu er ég búin að vera með Janis Joplin lög á heilanum síðan og tek heilu ballöðurnar fyrir Mána, sérstaklega Summertime og ... Oh-lord-won't-you-buy-me-a-Mercedes-Benz lagið sem ég veit ekki hvað heitir og bara alla helstu slagarana. Ég var líka mjög þakklát fyrir að það var ekki sýnt mjög vel þegar hún var að sprauta sig í æð með heróíni.

Sem sagt, frábært show. Mæli með þessari sýningu. Samt ekki fyrir ma+pa, þetta er of mikið sex, drugs & rockn´roll fyrir ykkur held ég.

Og pabbi, þú mátt algerlega og alveg kommenta ef þú vilt. Ég er komin yfir það stig þar sem mér finnst það uncool.

Later

Friday, November 21, 2008

Damn! My tattoo don't mach me alfit no more

Einhvern veginn fannst mér árið 1997 þegar ég fékk mér tattú nr. 2 að árið tvöþúsund og eitthvað (sem hljómaði svooho langt í burtu) hlyti að vera komin einhvers konar tækni til að þurrka tattú af á auðveldan og sársaukalausan máta. Well, I thought wrong. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti tattúum. Ég bara nenni ekki að hafa það lengur á handleggnum á mér! Sjáið mig t.d. hér í brúðkaupinu í Englandi í sumar: Þetta bara er ekki alveg að gera sig? Og hérna í skírninni hans Mána: Not very motherly huh? What to do? Wish it away? nah, that won't work.. Hey, en að tattú-a með húðlit yfir? Ætli það sé möguleiki? Að í staðinn fyrir svart þá sé húðlitaður litur í staðinn? Ætli einhver hafi spáð í þessu? Ætli ég spyrji of margra spurninga? Well, later

Tuesday, November 18, 2008

Nafnlaus ábending til Skjás eins

Hæ.

Sko, hérna..

Mér finnst ekkert gaman að í staðinn fyrir Dr. Phil kl. 17:45 sé komið Vörutorg. Hver horfir á Vörutorg?! Það er bara svo notalegt að hafa Dr. Phil í gangi á meðan maður er að elda og sjá um börnin og svona..

þið eruð samt frábær. Kannski best,

kveðja,

NAFNLAUS

Monday, November 17, 2008

Karitas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur


Ég er að lesa yndislega bók.

Af einhverjum ástæðum fíla ég vel bækur sem segja frá atburðum sem gerðust í gamla daga. Karitas bókin gerist á Íslandi (hingað til á Vestfjörðum og Akureyri og siglingarleiðinni þar á milli) á árunum 1915 - 1917.

Það kemur alltaf jafn mikið á óvart hversu miklar framfarir hafa orðið á einni mannsævi. Fyrir ekki einu sinni 100 árum síðan var fólk ennþá á sauðskinnsskóm (leðurskórnir voru reyndar að koma inn og þóttu mikið móðins) og var blautt í fæturnar fyrir vikið. Aðaláhyggjuefnið veturinn 1917 var að hita húsin upp því ekki voru til nóg kol. Vegna þess að það var ískalt og mikið frost veiktust margir og það var líka matarskortur.

En sagan er afar hugljúf og segir frá einni alþýðufjölskyldu. Ég er alveg komin inn í söguna og sé hana vel fyrir mér. Af einhverjum ástæðum elska ég þessa bók og fór meira að segja að gráta í gær þegar Karitas var að kveðja fjölskyldu sína af því að hún er fara til náms í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið Konunglegu listaakademíuna. Systir hennar Halldóra er fárveik heima.

Ok. Þegar ég græt yfir bók þá er bókin góð. Líka þegar ég hlæ yfir bók.

Thursday, November 13, 2008

Hrós dagsins fær...


Sólrún!

Hún er svo mikið hörkukvendi hún Sólrún að hún fór í fjallgöngu í gærkvöldi OG kvöldið áður. Með björgunarsveitinni. OG hún er í vinnu.

Í gærkvöldi labbaði hún með 12 kíló á bakinu upp á Esjuna (já og aftur niður..).

Þegar ég labbaði á Esjuna með ekkert á bakinu en með smá Mána í maganum þá "örmagnaðist" ég nokkrum sinnum og fór næstum því að grenja. Það var bara fyrir Svan að ég náði á toppinn.

Já, og kvöldið þar áður fór hún aðra fjallgöngu. Var ég búin að segja það?

Vá. Thumbs up girl.

Sunday, November 9, 2008

Kári

Be still my friend.

Saturday, November 8, 2008

Krakkamatur

Vek athygli á nýjum tengli á blogginu mínu hér til hliðar.

Þetta er bloggið hennar Kittý en hún veit heilmikið um glútenlaust fæði. Á þessu bloggi er að finna heilmikinn fróðleik um glútenlaust fæði fyrir börn og heilmikið af uppskriftum líka.

Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég sé heilmikinn mun á Óla mínum eftir að hann byrjaði á þessu fæði. Psoriasis-ið hefur minnkað til muna og hann er allur hinn sprækasti:)

Friday, November 7, 2008

Elsku Kári


(I'm talking to the weather here)

Yesterday was wonderful. Today is ok.

Could you just not blow?

Wednesday, November 5, 2008

Ever so proud

Það kom mynd af Mána í gær í Mogganum (nýjir borgarar) ásamt upplýsingum um hann:)

Stundum þarf lítið til að gleðja manns hjarta.

Barack Obama kosinn forseti

So there is a God.

Tuesday, November 4, 2008

Reykjavík

Þetta er svo yndislega lítið land.

Skrapp út að ná í Óla áðan og sá bæði Jóhönnu og Helga Seljan úr Kastljósinu, þó ekki á sama stað. Skrapp niðrí bæ um daginn og sá Björk. Þar á eftir þegar ég skrapp niðrí bæ sá ég voða frægan söngvara sem ég man ekki hvað heitir í svipinn,

þetta er dáldið dúllulegt allt saman finnst mér,

later

Sunday, November 2, 2008

Ja hérna

Ég er að horfa á Sjálfstætt fólk með Jón Ársæli og þar er ansi sérstakur sveitamaður sem hefur gaman af dúkkum og andar ótt og títt..

Ætti maður ekki bara að vera ánægður yfir fjölbreytileika mannlífsins?

Saturday, November 1, 2008

Svanur


Ég elska þig Svanur.

Friday, October 31, 2008

Confessions of a bored housewife


Einmitt.

Núna er kominn sá tími þar sem mestur glansinn er farinn af fæðingarorlofinu. Enda er það búið og ég ætti að vera farin að vinna eitthvað.. En vinnan lætur standa á sér og konunni er farið að leiðast smá..

En svona til að viðhalda geðheilsunni þá er ég alltaf með prógram fyrir hvern dag sem mér tekst yfirleitt alltaf að halda (jei me). Prógramið lítur einhvern veginn svona út (ég geri mér vel grein fyrir því að þetta býður upp á alls konar skot á mig en so be it..)

Mánudagur

Atvinnuleitardagur. Sæki um vinnu hér og þar og lately.. alls staðar.

Þriðjudagur

Sturtudagur. Ekki í venjulegum skilningi heldur í gera-upp-sturtu skilningi. I know this sounds pathetic en ég er kítta á milli flísanna í sturtunni því gamla kíttið er orðið sjúskað. Sumir myndu stinga upp á að endurflísaleggja en Svanur er að tala um að taka baðherbergið í gegn á næstunni þannig að það er ástæðan..

Miðvikudagur

Ditti að einhverju heima. Í gær málaði ég t.d. yfir bletti í forstofunni og milliveggnum inni í stofu. Fer kannski í Hreyfingu.

Fimmtudagur

Á fimmtudögum fer ég til ma+pa og þríf þar fyrir pening. Á góðum degi tekst mér að fara í yoga tíma líka.

Föstudagur

Bæjarferðardagur. Hitti Beggu oftast á kaffihúsi niðrí bæ (hún kemst reyndar ekki í dag). Stundum fer ég á Hans Petersen og læt framkalla myndir. Oftast af Mána. Kem oftast við í Bónus. Reyndar fer í Bónus næstum á hverjum degi þar sem aðeins takmarkað magn af vörum kemst fyrir undir vagninn..

Flesta virka daga horfi ég á East Enders á BBC prime áður en ég sæki Óla. Er þó alveg hætt að drífa mig heim svo ég missi ekki af því..

Laugardagur og sunnudagur

Fjölskyldudagar.

Jæja, hreinskilningslegar játningar komnar í netheima. Reyndar er Máni að fara byrja í ungbarnasundi á mánudaginn þannig að það brýtur mynstrið aðeins upp.. en endilega ef einhver er með hugmynd að afþreyingu fyrir mig (kannski eitthvað sem gefur af sér pening?) þá please let me know..

love,
S


Thursday, October 23, 2008

Um baðaðstöður

Sko.

Ég keypti mér kort í Hreyfingu í gær. Ekkert nema gott um það að segja. Mér finnst aðstaðan þarna æðisleg. Öll tæki virðast vera tipp topp og þetta lúkkar allt voða flott.

Það sem mér finnst flottast af öllu þarna er baðaðstaðan. Þetta er glimrandi flott baðaðstaða og er svipað eins og í Bláa lóninu, enda er þetta eitthvað tengt. Sturturnar eru rosa flottar, það er skilrúm á milli sturtna þannig að maður þarf ekki að vera í einhvers konar hópsturtu með fullt af konum. Pottarnir úti eru ÆÐI (náði að slappa alveg af, veit ekkert hvað ég var lengi þarna) og gufurnar eru líka ÆÐI. Ó, já. Svo er rosa flott aðstaða til að hafa sig til. Mörg snyrtiborð og alveg nóg af þeim, hvert með sér hárþurrku, bómullarhnoðrum og eyrnapinnum. Me loves it.

Svo fór ég að hugsa (einhvern tímann í nótt) hvað mér finnst ótrúlega plebbalegt að í World Class/Laugum eru tveir kvennaklefar og tveir karlaklefar. Annar klefinn er fyrir almenning og er plebbalegur en hinn er eins og fyrir þá sem virðast vera almenningi æðri (eða hefur allaveganna efni á flottri baðaðstöðu) og er lúxusklefi.

Mér finnst þetta glatað!!

Af hverju ekki að hafa þetta eins og í (nýju) Hreyfingu þar sem ALLIR fá að vera í lúxusklefanum?

?????

I mean we are all people here.

Right?

The big 30


Jæja,

þá eru allar stelpurnar í vinahópnum búnar að eiga afmæli og eru orðnar þrítugar, nema ég...

This is my scary age. Veit ekki alveg af hverju mér þykir svona mikið mál að verða þrítug. Kannski af því að þá er maður ekki tuttugu og eitthvað lengur heldur.. á FERTUGSALDRI.

GAAaaaarrrggg! Nooooo! OMG.

Allaveganna. Ég er ennþá tuttugu og eitthvað þangað til síðar á árinu svo það er engin ástæða til að panika alveg strax.

Elsku Siggú átti afmæli á laugardaginn og hélt einstaklega vel heppnaða afmælisveislu. Við fórum 12 saman út að borða á Tapas barinn niðrí bæ og þetta var einstaklega ljúft og skemmtilegt kvöld. Langt síðan ég hef sprungið úr hlátri:) Við pöntuðum okkur einhverja ævintýraferð á matseðlinum sem var einmitt mjög ævintýraleg. Þetta var fínasti matur og fínasti félagsskapur. Happy birtday darling:)

Ég fór í flotta dressinu sem ég keypti hjá Mæju í London í Arrogant Cat. Það fór nú reyndar ekki betur en svo að blessað dressið rifnaði smá akkúrat hjá geirvörtunni þegar ég var að brussast í hann (rosa flókið dress sko) en ég fór bara í brjóstahaldara innan undir (strapless) svo það reddaðist.. (af hverju ég er að deila þessu með netheimum veit ég ekki). Við Anna mín skelltum okkur svo á Airwaves og kíktum á nokkra tónleika. Við sáum Dikta á Nýlistasafninu (very nice), Steed Lord á Tunglinu (sáum og ekki sáum, dáldið stappað þarna) og Sprengjuhöllina í Iðnó (sem var dáldið fyndið þvi það voru frekar fáir þarna en ég og Anna vorum í tuddastuði meðan flestir stóðu bara. Munurinn á mér og Önnu var sá að hún kunni textana og gat sungið með en ég kunni þá ekki þó viljinn hafi sannarlega verið fyrir hendi af því ég fíla þetta band mjög vel. Það er eitthvað svo góður fílingur í þeim.. þó ég kunni ekki alveg lögin.

En Anna mín ætlar að leyfa mér að skrifa diskinn svo það rætist kannski úr því..

P.s. ég er dáldið skrýtin núna.. Ég fór með Mána í 5 mánaða skoðun áðan og algerlega fyrirvaralaust dró gellann upp helvítis nálina (ég er með sprautufóbíu dauðans) og sprautaði Mána og mér varð rosa óglatt en fékk svo frískt loft og kom hingað til ma+pa og bara pikka og pikka á tölvuna... en ætla að hætta núna og aðeins að jafna mig.

;)

Friday, October 17, 2008

Airwaves

Er ekki alveg að fíla mig eins og skyldi á Airwaves hátíðinni í ár. Enda eru aðstæður mínar öðruvísi núna heldur en síðast þegar ég fór.

Sakna líka bandanna sem ég sá síðast þegar ég fór á Airwaves. Þetta voru bönd eins og Mínus, Brain Police, Dimma og Sign. Við Anna fórum í gær og sáum Esjuna spila á Organ. Þeir voru nú ágætir en ég þekkti ekkert af lögunum og fannst þetta allt svona svipað eitthvað hjá þeim. Gaman að sjá kappana engu að síður.. Fórum síðan að sjá/heyra í Ghostdigital og það var nú bara svona lala, alltaf sama ruglið í gangi þar finnst mér. Bara svona einkaflipp eitthvað. Sáum svo eitthvað spænskt band á Nasa sem var nú bara svona la la líka.

Það er kannski að maður nái að sjá eitthvað djúsí annað kvöld. Aldrei að vita..

Thursday, October 16, 2008

Stolt

Ég er stolt móðir í dag.

Máni velti sér frá bakinu yfir á magann í gær! Ooohh, hann var alveg að rifna úr stolti sjálfur:)

Fyndið hvað svona lítið atvik skiptir mig (og mína) miklu máli á meðan einhverjum utanaðkomandi gæti ekki verið meira sama.

En svona er lífið. Þetta atvik gaf mér allaveganna mikla gleði ..

Tuesday, October 14, 2008

Ég nenni ekki að horfa á fréttir

Þetta ástand á þessari blessaðri eyju er orðið eins og slæmt trip eða downward spiral eða eitthvað álíka. Maður kveikir ekki á útvarpi eða sjónvarpi öðruvísi en að þurfa hlusta á kreppuvæl og mér finnst þetta orðið hálf niðurdrepandi.

En eftir situr það sem skiptir mestu málið. Fólkið og fjölskyldan. Það besta í lífinu er sannarlega ókeypis og það er meðal þess sem má læra af þessari kreppu. Ég ætla rétt að vona að eftirlitskerfi þess lands batni til muna eftir þessa dýfu í efnahagslífinu en það er auðvitað ótrúlegt hvernig hrun bankanna gat gerst. Hverjum datt í hug að einkavæða bankanna? Sumt á að vera heilagt og ekki í höndunum á ævintýramönnum og glönnum.

En núna eru konur komnar í bankanna til að þrífa upp allt messið eftir kallanna. Manni líður aðeins betur..

Passaðu brjóstin á þér!

Ég er svo heppin að hafa fylgdarmann. Þessi fylgdarmaður er átta ára gamall og á heima í blokkinni og er svo góður að vera samferða Óla mínum í skólann á morgnana sem kemur sér afar vel fyrir okkur.

Í morgun þegar hann kom að ná í Óla vorum við hálfsein, við Óli höfðum gleymt okkur í kúri og ég var nú bara í íþróttatopp, þröngum sem nær niður fyrir maga. Vininum var eitthvað umhugað um að það kæmi kalt á brjóstin mín og kvaddi mig með þessum skemmtilegu orðum:

"Passaðu brjóstin á þér!"

Pha, þessir snúllar:)

Wednesday, October 8, 2008

My darling Begga


Ég fór í einstaklega yndislegt kaffiboð á sunnudaginn var. Elsku Begga bauð okkur stelpunum upp á dýrindis veitingar í tilefni af þrítugs afmælinu:)

Btw, ég elska þegar maður fer í boð og það er eitthvað hollt á boðstólnum. Við erum svo heppnar að Berglind vinkona er með æði fyrir hráfæði og hollustu (enda í næringarfræði) og var búin að gera dýrindis hráfæðisköku sem var góð, flottan heitan rétt og mjög svo snyrtilegar muffins sem voru sumar með svona hollustudúbbi á.

Það sem ég elskaði mest við þetta allt saman er hvað þetta kaffiboð var lekkert og snyrtilegt. Og kósý. Elsku Begga var búin að klæða sig upp í tilefni dagsins og var eins og svona sixties húsfreyja með uppgert hár og alles.

Begga, þú ert æðisleg og ég elska þig.

Like a friend skiluru.

Monday, October 6, 2008

Mogginn

Halló! Það er grein eftir mig í blaðinu í gær (sunnudaginn 5. október). Ég hef nú reyndar ekki séð actual greinina í actual blaðinu en ég sá á netinu að hún birtist í gær:) Ég reyndar vona að það sé allt í lagi með hana af því að þegar ég sendi hana þá þurfti ég að klippa af henni alveg fullt og það var dáldið mikið vesen og kannski gert í smá fljótfærni.. En allaveganna, með greininni er photosjoppuð mynd af mér! Phaa!! Fór á passamyndir á Hlemmtorgi og þar bauð karlinn upp á "re-touch" og baugarnir undir augunum og hrukkurnar og bólurnar og vörturnar (djók) var allt tekið burt.. Eins og sést á meðfylgjandi mynd. Ok, nú má einhver sem á moggann frá því í gær tékka á gæðum greinarinnar og kommenta svo hérna að ég sé frábær. kiss, me (skrifað síðar) Whatever. Það þarf enginn að kommenta....

Thursday, October 2, 2008

Mér er óglatt


Sem sannri félagshyggjumanneskju er mér óglatt. Hvað vekur upp ógleði mína?

Bankamenn. Var að lesa e-a grein þar sem Lárus Welding, forstjóri Glitnis, er kallaður 300 milljóna maðurinn. Af hverju? Af því hann fékk borgaða 300 MILLJÓNIR bara fyrir það eitt að hefja störf hjá Glitni fyrir um ári síðan.

Mér er óglatt. Mér er óglatt af bilinu milli ríkra og fátækra og hvað gjáin þarna á milli er stór. Ég gæti ælt. Því það er alltaf fátæka fólkið sem verður fátækara og súpa seyðið af gjörningum hinna stóru og fjársterkari.

OJ.

Wednesday, October 1, 2008

Blonde, so blonde

Af hverju ég fæddist ekki ljóshærð veit ég ekki.

Í hádeginu tölti umhverfisvæna ég út í endurvinnslugám sem er hérna rétt hjá með fullt af gömlum blöðum sem ég hafði sett undir barnavagninn. Ég bara totally gleymdi að gera ráð fyrir því að það var smá rok úti og varð rosa hissa þegar blöðin fuku bara út um alla Hamrahlíð. Þau byrjuðu að fjúka þegar ég var úti á miðri götu...

Phaaa. Umhverfisverndin backfire-aði aldeilis þennan daginn:/

Monday, September 29, 2008

And the jobhaunt goes on..

Ja hérna.

Mér finnst svo skrýtið að í atvinnuauglýsingunum er annars vegar verið að auglýsa einhver risa störf eins og framkvæmdastjóri eða fjármálastjóri og hins vegar svona "nothing" störf eins og afgreiðsla í búð eða mötuneytisstörf.

Af hverju er ekki eitthvað þarna mitt á milli eins og einhvers konar middle management störf?

WHY?

Anyhows, er fremur sorgmædd yfir því að sjónvarpsstjarnan úr Melrose Place Heather Locklear var tekin undir stýri undir áhrifum lyfja. Mikið ofboðslega hlýtur að vera erfitt að vera frægur. Eða réttara sagt vera frægur og síðan eldast og fá engin hlutverk og vera ekki lengur eins frægur.. ég myndi persónulega vera fegin enda sækist ég ekki eftir því að vera fræg.

Ok, er farin að bulla eitthvað

Ást og kærleikur.

Wednesday, September 24, 2008

Litli sæti Óli minn

Hann Óli minn var nú dáldið svekktur í gær.

Ég kom og náði í hann og Loga vin hans í skólann (Logi kom í heimsókn) og þá kemur aðvífandi fréttakona og myndatökumaður frá mbl.is sem taka svo viðtal við strákana. Um kvöldið þegar við skoðum þetta á mbl.is kemur í ljós að aðeins vinurinn Logi birtist en ekki Óli.

Hvað getur maður sagt við barnið sitt til að hugga það í svona aðstæðum? Ég sagði bara að það væri nú bara óþægilegt að birtast í fréttum því þá væri maður í öllum tölvum. Þessi huggun virkaði nú ekki nema afar takmarkað og drengurinn snökti aðeins lengur..

Litla ást.

Monday, September 22, 2008

Núna fer maður að huxa sinn gang..

Jæja.

Þá er komið að því.. The big V-word.

Já, það er komið að því að huga að vinnu. Þó að mér sé enn ferskt í minni hvað það gekk brösulega síðast þegar ég var í atvinnuleit þá læt ég það ekkert á mig fá og helli mér út í serious jobhaunting í þessari viku. Best að byrja snemma.

Yes suree bob.

P.s. Máni fór í sína aðra klippingu um daginn og þá fékk nú flest hárið að fjúka. Ég er nú bara ennþá að venjast honum með þessa klippingu.. Læt inn myndir af honum innan bráðar..

Friday, September 19, 2008

The power of the media

Mikið ofboðslega fannst mér gott að lesa fyrirsögn á mbl.is áðan. Fyrirsögnin var "Allt á uppleið" og fjallaði um að gengi krónunnar hefði styrkst í dag.

Sálræn áhrif fjölmiðla held ég að séu stórlega vanmetin. Fólk á það til að trúa fjölmiðlum og ef þeir segja að það sé kreppa (ég hata þetta orð) þá á það til að fara í kreppufílingin.

Persónulega kýs ég að sleppa því að lesa neikvæðar fréttir um efnahaginn því mér finnst það hafa slæm áhrif. Að lesa jákvæðar fréttir um efnahaginn er mér hins vegar að skapi. Þess vegna óska ég að fjölmiðlar hætti þessu krepputali og fari frekar að tala um uppgang og ef þeir þurfa endilega að tala um "kreppu" að nota þá frekar orð eins og "tímabundin niðursveifla" eða eitthvað svoleiðis.

Þeir hafa nefnilega allt of mikil áhrif þessir fjölmiðlar..

Thursday, September 18, 2008

Parten my french..

.. en djöfull fer þetta rok í taugarnar á mér! Arg..

Þetta er svo skrýtið. Fyrir svona "viku" síðan var sumar hérna á fróni, svo skreppur maður burtu í nokkra daga og það er bara komið argasta haust og vetur hreinlega og maður þarf að fara huga að úlpu eða frakka og e-u hlýju því það er bara komin óveðurstíð hérna og allur andskotinn þar sem er ekki einu sinni svefnfriður fyrir látum í veðri. Helv..


Aaahh.. fínt að létta aðeins af sér og deila geðvonsku sinni með netheimum. ´
Mér líður smá betur.

Saturday, September 13, 2008

Airwaves 2008

I'm going to Airwaves baby!!!!

Sérstakar þakkir til Önnu Láru fyrir að láta undan þrýstingi og jánkast mér. Mér sem fer á þessa hátíð hot mama style. Sem í mínu tilfelli þýðir að ég get ekki verið úti lengur en til ... hva? 23:00.

Í mesta lagi.

Það er nú manneskja að nærast á manni og þá getur maður að sjálfsögðu ekki verið djammandi eins og ég veit ekki hvað:/ En sé allaveganna nokkur bönd..

Tuesday, September 9, 2008

Jæja..

Er með smá móral yfir að hafa ekki komið með almennilegar myndir úr skírninni en það voru jú teknar margar myndirnar á þessum yndislega sólríka degi.. Ég er með sérstakan móral yfir að það sást aðeins í hálft andlitið á Emilíu Sól Svansdóttur í síðustu myndafærslu þar sem voru tvær myndir úr skírninni svo ég ætla hér með að bæta úr því:














Hérna er ágætis hópmynd sem var tekin beint eftir skírnina. Hér eru samankomin foreldrar mínir, foreldrar Svans míns og börnin okkar:) Þessi mynd var tekin af Benna hennar Beggu en...














Þessi var tekin af Svavari frænda.

Ok, djók. Sumir voru grettnir á þessari mynd, set eina í viðbót

















Ást og kærleikur

Friday, September 5, 2008

Nýgift Siggú og nýskírður Stefán Máni:)

Vala!

Mér tókst að redda myndum úr brúðkaupinu og úr skírninni:) Ég ætla rétt að vona að hún Sigrún Mjöll fyrirgefi mér að birta þessar myndir (hlýtur að vera) en ég næ ekki í hana þar sem hún er í brúðkaupsferð á Ströndum (eða Veiðileysu..) þar sem er sambandslaust og ég vil heldur ekki trufla hana on her honeymoon.. Set flotta mynd so she can't say no/won't mind

Hérna er Siggú nýgift:


























Giftingin var í Garðakirkju og athöfnin var mjög falleg. Jóna Hrönn Bolladóttir gifti Siggú og Hjörvar og hún skírði líka strákinn minn daginn eftir:



























P.s. I don't like my hair in this picture (oj!!) and my ta(tt)oo don't match my alfit:/ Blimey. The sunshine (partly) explains our grin in this picture..

Wednesday, September 3, 2008

England 2008

Right! Thought it be fun to do a pictureblog from our trip to England last month and why not do it in the english language?

Aaahh, the great and mighty 6 day trip to England.. aayyee. Where to start?

Let's start at the beginning shall we? We woke up in the middle of night on the 19th of August (o4:00 am) and managed to get ourselves to the airport on time. There we met up with our fellow travellers; ma+pa, me brothers and aunt Binna and causin Jón Þór. All was well until about 6 hours after we landed on London Stansted airport. Then me and my family (Óli, Máni and Svanur) were in our rental car from Budget when our GPS thingie started aping at us sending us round and round in circles in the middle of an english forest leeding us, through extremely narrow countryroads surrounded by woodland, to the middle of nowhere and we were totally lost.

Soon it got ridiculously pitch dark. Quite scary actually. In the town of Totnes (in Devon, south-west England) we finally decided to buy a map which eventually got us to our destination: The Fingals hotel in Dittisham (a fine country resort). Aahh, how glad we were when we finally met up with the others:)

Unfortunatly Máni (3 months old) didn't sleep much the following night so it was a very tired miss Olafsdottir who "woke up" realising the pre-wedding party was in about three hours ... in another town nearby (Dartmouth). These three hours turned out to be extremely stressful since I had managed to "loose" (for a moment) our carkeys in my new but very enourmously big handbag. I was in bits thinking I had managed to mess this up for my whole party of ten seeing how we would be late because of me..

I was so glad to meet my nephew Fionn (the brother of the groom) who told me that the ferry does in fact go every five minutes (but not once a day or something as we thought..)

Anyhows, me done talking, here are some pictures!















This is the house where the pre wedding party was held. Quite adventurous! Cracy beautiful surroundings indeed.




















The bride and groom; my nephew Steppé and his (now) wife Kerensa:)




















A ceremony was held inside this magical house where Steppé and Kerensa said their vowes. Ahhh.. (I didn't actually hear them but ahhh all the same)




















:)





















The bride next to Máni

We spent three wonderful days in Dittisham (Devon) in the lovely country hotel Fingals. We explored the surrounding areas such as Torquay (I think I'm spelling it right..) Then we headed up to London. On the way we saw these crazy stones:















(yes I know:) They're called Stonehenge..

In London we stayed at The Abbey Court hotel in Notting Hill. All ok. I managed to meet my friend Mæja who works (and lives) in London. So nice to see her. (Suddenly switching over to icelandic now, don't ask..) Hún er nú algert yndi stelpan og hörkugella. Hún sér um hvorki meira né minna en 6 útibú tískubúðarinnar Arrogent Cat í London og er að fara til Hong Kong til að opna útibú þar. Við hittumst í búðinni á Kensington Church Street. Man.. You go girl!! Þarna er einstaklega flott stelpa á ferð..

Anyways, fórum svo í wedding partyið í Notting Hill eftir að hafa hitt Mæju. Þá höfðu Steppé frændi og Kerensa gift sig hjá sýslumanni eða svoleiðis og komu svo í partyið:




















Þarna var mikið stuð og húllum hæ. Allra þjóða kvikindi skemmtu sér vel saman:) Hérna er svo enn ein myndin af brúðhjónunum:















Og hérna er nýskírði strákurinn Stefán Máni með pabba (úps, sést bara í hálft andlitið á pabba en þetta er bara of góð mynd af Mána til að sleppa henni)





















Og hérna er svo hinn guttinn minn:)






Monday, September 1, 2008

Back to normal life..

Phaaaa...

Brúðkaup Siggúar og skírn Mána búin and it's back to normal life.

Aaayyyee, eins og írska konan sagði sem ég var að tala við í brúðkaupinu hjá "Steppé" frænda (sem heitir Stefán Magnússon).

Brúðkaupið hennar Sigrúnar heppnaðist mjög vel að mér fannst. Athöfnin í Garðakirkju var crazy beautiful og ég komst smá við bara.. Svo voru fín atriði í veislunni og við náðum að sýna gæsunarmyndbandið sem gerði mikla lukku held ég.. Við slepptum reyndar að sýna myndbandið með viðtölunum við vini og fjölskyldu en hún fær það að gjöf í staðinn..

Skírnin?

Ahh, what a glorious day:) Það eru nú ekki margir sem hafa haft tækifæri til að skíra utandyra í hinni guðs grænni en það er einmitt sem okkur tókst þar sem dagurinn í gær var einstaklega fallegur og sólríkur.

Takk elsku mamma og pabbi fyrir að fá að halda athöfnina hjá ykkur og veisluna. Ég þríf húsið í staðinn mamma! Það var líka flott að geta skírt á handverkinu hans Svans en hann var búinn að vinna í garðinum; helluleggja og því um líkt.

Hvað heitir snáðinn?

Stefán Máni Svansson

Nafnið hefur stóra merkingu fyrir mig þar sem afi minn heitinn sem ég aldrei sá hét Stefán. Báðir bræður mömmu hafa skírt strákana sína Stefán og systir ömmu skírði dóttur sína Stefaníu í höfuðið á honum. Nafnið er því ekki "heimilislaust" lengur, því fer fjarri. Mamma Svans sagði mér í gær að Stefáns nafnið sé líka í fjölskyldunni þeirra sem er auðvitað snilld. Sá Stefán dó reyndar líka af slysförum eins og afi minn heitinn..

Stefán Máni sefur núna í þeirri vöggu sem Stefán afi kom með til Íslands frá Bandaríkjunum fyrir um 50 árum og svo búum við líka í sömu götu og Stefán afi og amma Svava byggðu heimili sitt við (L - laga hús neðar í götunni) ásamt Binnu frænku og Jón Þór frænda.

Ég er afar sátt við nafnið en.. það er algjörlega bannað að gera grín að skammstöfuninni!

P.s. mömmu og pabba er alltaf velkomið að kommenta á bloggið mitt:)





Tuesday, August 26, 2008

Leiðist ekki..



Jæja, brúðkaup bestu vinkonunnar og skírn Mána næstu helgi, kvarta ekki yfir að hafa ekki neitt að gera:)

Hef í hyggju að gera myndasögu á blogginu um Englandsferðina miklu en það
kannski bíður þangað til eftir næstu helgi..

Og Tinna mín, í september skrifa ég þér bréf og þar verður innifalið boðskort í skírnina. Það verður auðvitað allt of seint þar sem skírnin verður búin þá en það hlýtur nú að vera í lagi, since you can't make it and all.. :D

Monday, August 25, 2008

Komin heim:)

Jæja, þá er maður komin heim eftir yndislega (yet stressful) ferð til Englands. Sé alls ekki eftir að hafa farið. Þetta var mikil upplifun.

Undir það síðasta var ég komin á að flytja bara þangað. En við erum ekki með vinnu þarna né íbúð þannig að myndi bara vera vesen.

Back home again then.. sounds a wee bit boring.. but nah, skólinn að byrja hjá Óla og svona. Bara gaman:)

Sunday, August 17, 2008

Gæsun!!

Phaha!!

Gæsunin hennar Siggúar heppnaðist einstaklega vel og bara gaman að sumt fór ekki alveg samkvæmt áætlun. Það eru svona hlutir sem gera daginn ógleymanlegan:)

Ég vona að Siggú sé sátt við okkur eftir daginn. Það sem mér finnst eftirminnilegast er þegar greyið Siggú stóð dansandi í pínupilsi í Hreyfingu með bundið fyrir augun og með músík í hæsta í eyrunum, ekki hafandi hugmynd um hvar hún var, öskrandi:

"Er ég í Kringlunni!!??"

"Þetta er mjög óþægilegt!!?? Má ég sitjast??!!"

Og svo batt Máni, uppáhalds þolfimikennarinn hennar, frá augunum hennar og man, hvað hún var hissa:)

pha!

Good times.

Tuesday, August 12, 2008

Plebbi

Hvurs lags PLEBBI gleymir afmælisdegi móður sinnar?

That would be me:/

Fyrirgefðu elsku mamma. Ég elska þig og innilega til hamingju með afmælið.

Ég næ vonandi að bæta þér þetta upp í náinni framtíð..

Austfirðir 2008

Jæja, þá er maður búinn að jafna sig eftir svaðilförina til Egilsstaða. Eða svona hér um bil..

Við vorum í yndælis bústað á Einarsstöðum, rétt hjá Egilsstöðum. Ég fékk bústaðinn á um 17.000 kall hjá starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, sem er nú bara ágætt:)

Þar sem við vorum með ÞRJÚ börn með okkur dugaði ekkert annað en Toyota Land Cruser jeppi undir liðið. Nýjasta gerð að mér skilst. Mér leið eins og drottningu í þessum bíl, tja, eða allaveganna prinsessu.. Við fengum jeppann að láni sem bjargaði ferðalaginu alveg því það dugar nú ekkert minna undir allt þetta lið.

Við urðum auðvitað að gista á leiðinni (báðar leiðir) þar sem þetta er svo svakalega löng leið að keyra, en mikið afskaplega er fallegt á Norðurlandi og Austfjörðum! Ég hafði aldrei komið þarna áður og mikið er ég fegin að ég fór:)

Við gistum fyrstu nóttina á Mývatni (crazy beautiful) og skoðuðum Dimmuborgir eftir það:











































Óli varð fyrir því óláni að detta og meiða sig í Dimmuborgum svo Svanur varð að halda á bæði honum og Emilíu.. Hetjan mín..

Á milli þess sem við vorum að chilla í bústaðnum fórum við að skoða:















Atlavík í Hallormsstaðaskógi,
















Skriðuklaustur,
















Dettifoss,




















Ásbyrgi,

Kárahnjúka, Dalatanga, Neskaupsstað, Seyðisfjörð, Mjóafjörð og eflaust eitthvað meira sem ég man ekki í svipinn. Fallegast af öllu fannst mér Ásbyrgi. Staðurinn er himnaríki! OMG. Þar er séns að finna frið og ró (eftir að maður er búinn að slátra öllum túristunum..)

Allaveganna, læt hér við sitja af photobloggi mínu af Austfjarðaferðinni.

Lifið heil

Saturday, August 9, 2008

I'm back..

Já, komin heim frá Austfjörðum! Wow, what a trip.. Er voða þreytt núna, vorum bara að koma.. Set inn myndir á næstu dögum...

Monday, July 28, 2008

Arnaldur Indriðason


Er dáldið svekkt yfir honum Arnaldi.

Venjulega nýt ég þess í botn að lesa bækurnar hans. Elskaði Harðskafa, Grafarþögn og Kleifarvatn..

.. En núna er ég að lesa Konungsbók og man o man.. Eitthvað vantar nú fúttið í þá bók.. Bókin fjallar hingað til um fornbókmenntir og eldgömul íslensk handrit og ég skil vel upp að vissu marki hversu heillandi þessir hlutir eru EN það er eitthvað fundamentally ósexy við þetta sem efnivið í heila bók.

En það er náttúrulega bara mín skoðun.

Hérna kemur sér einstaklega illa að vera þrjósk því ég vil ekki "gefast upp" á bókinni.. Ég vona svo sannarlega að eitthvað fútt fari að koma í hana (komin á bls. 40 og eitthvað..)

Am hanging in there..

Friday, July 25, 2008

WHY???!!!!!

Er með ofnæmi dauðans í dag.

Í augunum.

Ekki gott.

Hélt að ég væri kannski búin að "komast yfir" ofnæmið sem ég er með fyrir augnháralit.

En nei, svo er ekki:(

Thursday, July 24, 2008

Elsku Óli minn..


.. er í Legolandi með pabba sínum. Þeir eru í ferðalagi í Danmörku og Svíþjóð núna og voru þar áður á Egilsstöðum. Ég verð nú að segja að ég er farin að sakna hans Óla míns. En hann kemur til mín í næstu viku:)

Og þá fer hann í ferðalag með mér og Emilíu Sól og Mána og Svani. Já, og tengdó.

Wednesday, July 23, 2008

Ekki svo dönnuð í dag..


Jæja.

Í dag fer ég með boðskortin í skírnina í póst. Ég hafði vit á því að hafa viðskipti við prentsmiðju við þetta tilefni. Prentsmiðjan Think í Faxafeni varð fyrir valinu og ég lét útbúa frekar snyrtilegt boðskort sem ég var bara nokkuð sátt með.

Kallinn í búðinni spyr hvort ég vilji ekki endilega að boðskortin séu eitt og hið sama: umslag OG boðskort. Þetta eigi að vera voða sniðugt þar sem maður bara brýtur umslagið (boðskortið) saman á "voða þægilegan máta". Kviss, bamm, búmm, voða auðvelt og sneddý.

Well I got news for you mister "think" printer guy: Not so sneddy!!

Þar sem þetta er frekar þykkur pappi með voða spes áferð þá er bara alls ekki svo glatt og auðvelt að loka "umslaginu".

Svo ég brá á það ráð að loka hverju boðskorti með þremur ekki-svo-smekklegum kennaratyggjóklessum (sem reyndar voru smekklega smáar) og svo stórum rauðum hjartalímmiða...

Ekki svo dannað..

Jæja, þið sem fáið svona boðskort.. excuse moi

Wednesday, July 16, 2008

Fancy


Ég var fancy í gær og fannst það æðislega gaman!

Mér er neblilega boðið í TVÖ brúðkaup í sumar (bæði í ágúst). Og ég keypti mér dress í gær! Tvö dress!

Sat á Mokka kaffi (úti) og var bara að njóta lífsins og útsýnisins og lesa smá DV og svona; bara blaa þið vitið. Svo fatta ég að mig vantar dress fyrir brúðkaupin (ok, var reyndar búin að fatta það áður) og fatta á sama tíma að ég er búin að vera virða fyrir mér fancy svoleiðis búð sem er beint á móti (Boutique Bella).

Álpast svo þarna inn og varð um leið trapped. Þið vitið þegar maður er sá eini í búðinni og BÁÐAR konurnar eru að aðstoða mann. Ég bara varð að kaupa eitthvað.. En gerði nú reyndar kostakaup og er held ég bara mjög sátt við það sem ég keypti. Þetta er allaveganna fancy pancy og þannig er maður í brúðkaupi, yes?

Ég komst alveg í snobb fíling: "Ég er nefnilega að fara í tvö brúðkaup í ágúst. Eitt í nokkurs konar sveitakirkju hérna á Íslandi en annað í Englandi, svona sveitabrúðkaup í Bretlandi." Og þessar elskur sem vinna þarna snerust um mig eins og ég veit ekki hvað. Ég reyndar þoli ekki að máta föt. Af einhverjum ástæðum fer ég oft að svitna í mátunarklefum, sérstaklega þegar einhver er að bíða eftir að sjá mig í dressinu.. Og það var nú sérstaklega heitt í gær..

Anyhows, dresses for weddings:

SORTED

:)

Já svo fer nú að koma að því ég fari að skrá mig á Facebook.

Apparantly it's the latest thing

Daaahhh

(Af hverju er ég alltaf svona sein að gera svoleiðis hluti og geri þá yfirleitt þegar the trend has almost past?)

Why??

Monday, July 14, 2008

I had the weirdest dream last night...



Oftast man ég ekki drauma nema rétt þegar ég vakna, svo hverfa þeir. Þetta er víst algengt. En draumurinn sem mig dreymdi í nótt situr ennþá í mér, sem er svoo óvenjulegt.

Ok, here goes:

Ég var að flytja en það voru bara ég og Óli sem vorum að flytja (eins og þetta hafi verið á þeim tíma þegar við vorum bara tvö í familyunni). Við vorum að flytja í Vesturbæinn og ég var að gera við rakaskemmdir í loftinu í nýju íbúðinni (err.. hello!). Í íbúðinni var ultra cool eldhús. Það var rosa spacað með sixties þema eða diskóþema eða eitthvað. Það var eins konar neon fílingur í því og það var myrkvað (mjög spes) og skápahurðarnar voru svipaðar og amerískar ísskápshurðir, nema neonfjólubláar.

Anyways, svo er ég í strætó í nýja hverfinu og eru ekki Ingibjörg Sólrún og Steingrímur J. Sigfússon í strætó!! Og þau voru svooo kumpánleg og mestu mátar, alveg eins og síamstvíburar eða eitthvað. Þau voru MJÖG kát og glöð og voru að segja mér eitthvað, man ekki hvað.


Svo vakna ég við það að ég er í nýju íbúðinni og er að spá: "hey, þarf ég ekki að selja gömlu íbúðina til að hafa efni á þeirri nýju?...."

??!!

Hvað þýðir þetta? Ætli það sé að koma vinstri stjórn á Íslandi?? Þar sem umhverfismál verða í brennidepli?? Er ég að fara flytja? Hhhmmmm...

Wednesday, July 9, 2008

Börn

Er í stuði til að monta mig af börnunum mínum (og hvað þau eru falleg) :)




















Elsku Óli minn er hér með Kanga (eða Gúru).. Þessi elska




















Mitt elskulega litla Mánaskinið hennar mömmu sinnar

Now I'm on a roll..




















Verð nú að skella annarri mynd af nýjasta afkvæminu inn.. Við erum loksins byrjuð að bonda fullt og tala saman ég og Máni, það var þannig að hann brosti bara til pabba síns en núna er hann farinn að brosa til mín líka:-)




















Hérna er Svanur með dóttur sinni Emilíu Sól. Skottan var hjá okkur eina nótt núna um helgina. Það var nú bara yndislegt að hafa hana enda hef ég grun um að Sólin sé mikil pabbastelpa inn við beinið.. Hlökkum til að hafa hana með í ferðalagið okkar í ágúst:)

Nú er bara eftir að redda risastórum bíl fyrir allt liðið!

Chao bella!

P.s. mér tókst að jafna sólbrunann á hægri hendinni í gær með því að fá smá lit á vinstri handlegginn og brenna á afar afmörkuðu svæði aftan á hnéspót vinstri fótar:-)

Geri aðrir betur..