Thursday, November 13, 2008

Hrós dagsins fær...


Sólrún!

Hún er svo mikið hörkukvendi hún Sólrún að hún fór í fjallgöngu í gærkvöldi OG kvöldið áður. Með björgunarsveitinni. OG hún er í vinnu.

Í gærkvöldi labbaði hún með 12 kíló á bakinu upp á Esjuna (já og aftur niður..).

Þegar ég labbaði á Esjuna með ekkert á bakinu en með smá Mána í maganum þá "örmagnaðist" ég nokkrum sinnum og fór næstum því að grenja. Það var bara fyrir Svan að ég náði á toppinn.

Já, og kvöldið þar áður fór hún aðra fjallgöngu. Var ég búin að segja það?

Vá. Thumbs up girl.

3 comments:

Anonymous said...

Hehe takk Svava mín;) enda eru hnén pínu stirð núna.

Tinnsi said...

Já, og það er miklu erfiðara að labba niður heldur en upp. Jennifer Ackerman segir frá prófessor við Harvard sem lét nemendur stíga upp á bekk 500 sinnum með hægri og niður með vinstri. Daginn eftir voru allir með rífandi harðsperrur í vinstri fætinum.

Svava said...

Athyglisvert. Maður hefði einmitt haldið að maður fengi meiri harðsperrur í hægri fótinn!