Tuesday, December 27, 2011

Er í stuði til að blóta og rífa kjaft.

Fór í Lánasjóð Íslenskra Námsmanna í dag til að athuga hvernig námslánin mín hafa það. Og það bar við um þessar mundir að þau hafa hækkað um helvítis þrjár milljónir!


Fari það norður og niður.

Monday, December 19, 2011

Finally

Loksins, loksins...

... veit ég hvað ég vil gera í lífinu.

Ég vil vera rík kona sem býr í einbýlishúsi og ferðast reglulega. Starf mitt myndi vera að vinna við góðgerðarstörf. Ég myndi styrkja verðug málefni sem hjálpar fullt af fólki og gerir líf þess auðugra og hamingjusamara. Ég væri líka til í að vinna að umhverfismálum sem hafa það markmið að minnka losun mengandi efna út í andrúmsloftið. Grænt og gefandi starf.

Vinnutíminn myndi vera eftir mínu höfði og ég gæti tekið frí þegar mér þegar ég vil.

Vá, þetta hljómar æðislega:)

og þá er bara að vinna í lottóinu!

Tuesday, December 13, 2011

Það er ekki nóg með að jörðin snúist. Hún hristist líka!

fann fyrir nettum pirringi þegar ég fann mjög greinilega fyrir jarðskjálfta um kl. 16:20 í dag upp á Bíldshöfða. Er ennþá verið að dæla vatni niður í jörðina á Hellisheiði eða þarna hjá Hveragerði? Hverjum fannst það vera góð hugmynd??!

Friday, October 28, 2011

Normal

What is normal?

Var í umferðinni í gærkvöldi og stoppaði eins og aðrir bílar á rauðu ljósi. Mér varð litið inn í bílana við hliðina á mér og fyrir aftan mig og það voru ALLIR að tala í gemsann sinn.

Hversu eðlilegt (og hættulegt) er það?

Nei, ég bara spyr!

Tuesday, October 25, 2011

Twin Peaks

Ég hvarf til ársins 1993 í gærkvöldi þegar Twin Peaks kom á skjáinn mér algerlega að óvörum.

Féll í nostalgíutrans og gat ekki hætt að horfa þótt þátturinn væri alltof seint á dagskrá og ég stjörf af þreytu. Minningarnar frá þessum árum flæddu notalega um mig þar sem ég lá og starði á skjáinn.

Allt er svo sérstakt við þessa þætti. Tónlistin, hvernig atriðin eru skotin, leikararnir og overall fílingurinn í þessum þáttum er svo æðislega epic, hvað sem það þýðir.

Ég man að skólinn minn, Hvassaleitisskóli, var undirlagður af umræðu um þessa þætti. Daginn eftir kvöldið sem þættirnir voru allir að tala um hvað hefði gerst í Twin Peaks kvöldið áður svo það var um að gera að missa ekki af einum einasta þætti. Oh, þetta var svo spennandi allt saman.

Ég veit ekki hvað David Lynch er að gera núna en man, o man, hvað hann var að gera góða hluti á þessum tíma.

Algerlega feel good moment sem ég átti þarna í gær þegar þetta rifjaðist allt saman upp fyrir mér. Hvað allt var gott á þessum tíma ...

Friday, October 21, 2011

My teenage angst















Þetta setti einn facebook vinur minn á vegginn sinn í dag og ég fékk flashback frá versta tímabili ævi minnar, helvítis gelgjunni.

En þetta var samt ástæðan fyrir öllum mínum pirringi og allri minni reiði á þeim tíma. Að maður hafi fæðst til þess að fylgja þessari leiðinlegu formúlu að lífi í stað þess að vera frjáls og gera það sem manni langar til fannst mér alveg ömurlegt.

Mér hefur alltaf fundist erfitt að finna út hvað það er sem mig langar til að vinna við en jafnvel þó ég væri með það á hreinu þá stendur maður líka frammi fyrir því að þurfa að finna vel launaða vinnu við það sem manni finnst skemmtilegt að gera. Það er erfitt.

Að standa frammi fyrir þeim þrýstingi að þurfa að finna einhvern til að giftast finnst mér hræðileg formúla að lífi. Sérstaklega þegar manni langar ekkert að giftast (búa með sama manninum alla ævi? Boring!) Að eignast börn er reyndar það besta sem hefur komið fyrir mig.

Allaveganna, ofangreind formúla er alveg öll ástæðan fyrir angist táningsáranna.

Sunday, October 9, 2011

Mínir elskulegu bræður















Mikið þykir mér nú vænt um þá þó þeir stríði mér mikið yfirleitt þegar ég hitti þá og þó þeir hringi aldrei í mig.

Mikið hefði lífið verið öðruvísi hefðu þeir fæðst kvenkyns...!

Friday, September 30, 2011

1967

Ég er svo rík að eiga nokkur tímarit ætluð húsmæðrum frá árinu 1967 þegar zetan var ennþá notuð og húsmæður voru til. Þvílík gullkista.

Í þessum tímaritum er að finna prjónauppskriftir frá þessum tíma og alls kyns uppskriftir eins og "steikt kálfslifur," "Hjartagúllas með gulrótum" og bökunaruppskriftina "munkar." Einnig er að finna reynslusögur húsmæðra. Ein lýsir því t.d. að henni hafi orðið illt í skapi þegar maðurinn hennar kom heim með viðskiptavini eða vinnufélaga í tíma og ótíma án þess að hringja á undan sér. Henni reyndist þá skiljanlega erfitt að vera tilbúin með óaðfinnanlegt heimili og kræsingar tilbúnar þar sem hún var að sauma á sig og börnin í hjáverkum á milli húsverka. (Eitthvað er ég er tengja)


Rakst á eina grein þar sem skammast er í húsmæðrum fyrir að fara illa með eplaúrgang:

"Það er oft grátlegt að sjá, hve sumar húsmæður fara illa með eplaúrgang, þ.e. hýði og kjarnhús." Svo er bent á góða uppskrift að eplasaft, sem er einmitt búin til úr eplaúrgangi.

Dásamlegt.

Ég þakka mínum sæla fyrir að vera ekki (einvörðungu) húsmóðir.

Wednesday, September 28, 2011

Pólitík er alger tík

Hér er ég, um mig, frá mér, til mín.

Eiginhagsmunir og eiginhagsmunaseggir. Hverjir? Stjórnmálamenn.

Á Alþingi ættu að sitja óháðir, andlitslausir embættismenn helst með hagfræði- eða lögfræðimenntun sem bera hag þjóðarinnar en ekki sjálfs síns fyrir brjósti.

Mér finnst að stjórnmálin þurfi algera uppstokkun þar sem flokkakerfið deyr út og pólitík fer í sögubækurnar.

Hver er ekki kominn með leið á að heyra fögur kosningaloforð sem eru svikin um leið og viðkomandi fær kosningu? Hver er ekki leiður á valdasjúkum pólitíkusum sem spá frekar í eigin stöðu en stöðu þjóðarinnar?

Það á ekki að vera þannig að þjóðfélagið sé eins og fyrirtæki þar sem vinnudýrin á botninum fá alla skelli og gera alla vinnuna á meðan forstjórarnir planleggja ferðalög og fyllerí.

Hlutlausa, óháða stjórnmálamenn takk.

Af hverju ekki að gefa þeim refsistig og taka af þeim vinnuna um leið og þeir gerast sekir um að vera hlutdrægir og háðir?

Friday, August 19, 2011

Confessions of a desperate housewife

Ji minn eini. Sá þessa spreydollu í Nóatúni í dag og O M G!! Af hverju datt mér þetta ekki í hug fyrr?!

Ég prófaði efnið á ofninn áðan og áratuga gömul kolsvört drulla bara lak í burt. Og botninn á ofninum er ekki svartur eins og ég hélt. Hann er silfurgrár! Eins og á myndinni á brúsanum!!

Mín innri húsfreyja er í sjöunda himni:)


Did everybody know about this?!?!?!!

Tuesday, August 16, 2011

um hvalveiðar og annan óskunda

Ímynd þjóðar út á við skiptir miklu máli í alþjóðlegum samskiptum. Ísland er þekkt sem hvalveiðiþjóð og virðist það jafnvel vera ástæða þess að sumir útlendingar sniðganga landið og líta það illu auga.

En af hverju eru hvalveiðar svona mikilvægar fyrir Íslendinga?



Það stendur á svari. Ekki veit ég það. Ekki virðumst við vera að græða einhver ósköp á þessum veiðum annað en gremju dýraverndunarsinna og þeirra sem eru alfarið á móti hvalveiðum.

Ég er ekki að segja að ég sé alfarið á móti hvalveiðum en er ekki ferðamannaiðnaðurinn orðinn mikilvægari?

smá pæling á þessum sólríka þriðjudegi...

Friday, August 5, 2011

elsku Reykjadalur

Mikið þykir mér vænt um þennan yndislega dal fyrir ofan Hveragerði. Í ár fór ég með Ástu, kunningjavinkonu og það var æðislegt.

Það bara skipti ekki máli að það var hellirigning og að ég fékk hælsæri. Það er bara svo skrambi gott að komast út í náttúruna að allt svona vesen verður að engu. Mikið var líka gott að komast loksins í fjallgöngu! Það er svo gott að reyna svona á sig og púla smá út í guðs grænni náttúrunni.

Um leið og ég er komin áleiðis á þessari leið læðist vellíðunarbros fram á varirnar sem fer ekki fyrr en allaveganna daginn eftir...

Við Ásta fórum þessa leið ásamt fleiri vinum og kunningjum fyrir nokkrum árum. Sú ferð var alveg sérstök. Þá var ekki rigning heldur bara fínasta veður og það voru allir svo glaðir og aflslappaðir. Það bara losnaði um hömlur og svo fækkaði fólk flissandi fötum og fór í lækinn að baða sig og njóta þess að vera til.

Sjáumst að ári elsku dalur.

Love you.

Monday, August 1, 2011

Ég man þig

Feiki góð bók. Dulræn stigmagnandi spenna sem kitlaði taugarnar á síðustu blaðsíðunum. Þá kom margt í ljós og skýrðist. Mikið var ég hissa á framhjáhaldinu samt ...

En hvar er Garðar? Og hvað verður um Katrínu?!

Það hlýtur að koma framhald!

Er ánægð með Yrsu. Hún kom mér skemmtilega á óvart í seinni hluta bókarinnar sem skýrði það sem mér fannst barnalega skrifað í fyrri hlutanum. Eitthvað sem var svo ótrúlegt að myndi gerast..

Skrýtið hvernig maður heimfærir e-a persónu úr eigin lífi yfir á persónurnar í bókunum sem maður er að lesa. Ég meina ekki geta persónurnar verið andlitslausar í hugarfylgsnum manns...

Saturday, July 16, 2011

Árbæjarsafn

Athyglisvert safn og skemmtilegt mjög. Gaman hvernig það er eins og að ganga inn í fortíðina þegar gengið er inn um innganginn. Frábært að fara þarna með börnin sem geta hlaupið um úti og inni, svo eru dýr og allt!

En mikið er ég fegin að ég fæddist eftir gamla daga, pheww! Myndi ekki meika þessi þrengsli í húsunum og þessi litlu rúm og omg, fjölmennið inn á heimilunum og já, svo var ekkert rafmagn og þegar ég hugsa um það sá ég ekkert klósett inn í húsunum.. eeeuuuwww!!

Sem sagt, fegin. Mjög fegin:)

Thursday, July 14, 2011

Sumarfrí

Eftir að hafa eytt vikunni með sonum mínum (3ja ára og 9 ára) er ég farin að hlakka til að hitta annað fullorðið fólk.

Sem lætur ekki eins og börn.

Það er komin dagur nr. fjögur og ég er aðeins farin að hvæsa. Best að skella sér út í hjólreiðatúr eða einhvern andskotann.

Svo má alveg einhver bjóða mér í bíó eða eitthvert út af heimilinu,

HINT, HINT.

Wednesday, July 13, 2011

Um strætóskýli

Skil ekki alveg þessa stefnu hjá Strætó að vera með þessi gler-strætóskýli. Í fyrsta lagi þá eru þau ekkert brjálæðislega skjólgóð hérna á Íslandi og í öðru lagi eru þau kjörin gimp fyrir klikkað fólk að ráðast á og smalla og skemmileggja.

Það gerðist í fyrranótt. Um miðja nótt voru börn og gamalmenni í hverfinu (that being myself) vakin af værum blundi af brjálæðislegum látum þegar verið var að brjóta þessi gler. Og það er ekki eins og þetta sé í fyrsta skiptið! Þetta gerist aftur og aftur og aftur og aftur...

Pirruð? Ég?!

Bara smá.

Monday, July 11, 2011

Brúðubíllinn

Eins saklaus og hugljúfur og Brúðubíllinn hljómar fyrir mér þá á það sama ekki við um Stefán Mána son minn (3ja ára.) Eins spenntur og hann er búinn að vera að sjá Brúðubílinn þá guggnaði hann næstum því þegar að stóru stundinni kom. Við vorum búin að koma okkur þægilega fyrir þegar sýningin var að hefjast og Helga að kynna helstu leikendur þegar hann varð allt í einu órólegur og gerði usla við að sjá eina brúðuna. Litla hjartað sló ört þegar ég tók utan um hann. Hann náði nú samt að róast og njóta sýningarinnar:)

Litla krúsidúlla<3

Thursday, June 23, 2011

Það sem maður lætur hafa sig út í...

Þarna erum við Stefán Máni að planka út í guðs grænni náttúrunni á Vestfjörðum.

Það er sko keppni upp í vinnu sem ég hef hug á að vinna, tja, eða allaveganna taka þátt í;)

Wednesday, June 8, 2011

kalt

Ái.

Mér er kalt. Maður þarf stöðugt að minna sig á þessa dagana að það er júní en ekki janúar:/

Hefði haldið að það væri nóg að vera í bol, hnepptri gollu og gallajakka OG er með slæðu/trefil. En nei, ég held ég hafi forkalast! (ofkælst)

Og, nei, ég er ekki ber að neðan heldur í sokkabuxum og buxum og nærbuxum!

Jú, líka skóm...

Ái, hreinlega illt í hjartanu af kulda. Það er 8. júní for f$%&$&$ sake!

Monday, June 6, 2011

Um rétt og rangt

Ég sé ekki réttlætið í því að Landsdómur ákæri Geir H. Haarde.

Þetta var ekki honum að kenna!

Hrunið? Hvað með útrásarvíkingana? Eða þá sem studdu frjálshyggju svo mikið að þeir ákváðu að það væri sniðug hugmynd að láta Landsbankann í hendurnar á fjárglæframönnum? Ætli það sé ekki Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig? Hvað með Framsóknarflokkinn?

Af hverju Geir? Af hverju ekki Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sem formlega afhenti þeim bankann ef svo má að orði komast? Af hverju ekki Björgólfur Thor Björgólfsson og aðrir þáverandi stjórnendur Landsbankans? Af hverju ekki þáverandi stjórnendur Seðlabankans?

Af hverju? Af hverju þarf Geir að vera blóraböggull fyrir allt þetta aðeins af því að hann var forsætisráðherra akkúrat þegar allt fór til fjandans? Eins og þetta hefði allt saman gerst á hans vakt?

Þetta er rangt. Af hverju þarf þetta að enda svona í einhverjum sirkus, eyðandi tíma fjölmargra manna og réttarkerfisins í heild sinni? Til hvers að negla Geir? Hvað fáum við út úr því?

Why. Why?!

Sunday, June 5, 2011

Stefán Máni

Núna er litla ljósið mitt orðinn 3ja ára:)




















þessa mynd fékk ég senda frá leikskólanum sem mér finnst frábært. Fengum afmæliskveðju og myndir með, kjút!

Saturday, May 21, 2011

Its a crazy, crazy world

Skil ekki hvernig það er bara allt í lagi að keyra bíl á fullri ferð og tala í símann í leiðinni, jafnvel með barn í bílnum!

Ég má þakka mínum sæla fyrir að ökumaðurinn sem var að keyra Hamrahlíðina í vesturátt um kl. 12 í dag var með fullum fimm og með hugann við það sem hann var að gera. Stefán minn (2ja) ára klifraði út á gangstétt og hljóp beint út á götu og yfir hana.

Ég vil ekki til þess hugsa hvað hefði gerst hefði bílstjórinn verið með hugann við eitthvað annað, t.d. símtal.... phew!!

Wednesday, May 11, 2011

Jet Black Joe

Elska þá. Elska.

Jet Black Joe (the band) mun ávallt eiga samastað í sál minni og hjarta. Hlýt að kunna öll lögin þeirra og hef nú farið á þó nokkra tónleika!

En mikið er langt síðan síðast.

Sakna dáldið gömlu Svövu sem fór oft á tónleika...

I, you, we. We're still allright.

Wednesday, May 4, 2011

Formaður

þá er konan orðin formaður húsfélagins! Fullorðins eða hvað?!

Tuesday, May 3, 2011

Manager

Stelpan getur bara verið stolt af sér.

Með tvær háskólagráður í farteskinu og í stjórnunarstöðu með sirka 15 manns "undir" mér og með um 46 fyrirtæki. Ábyrgð, mannaforráð og hvaðeina,

og hana nú.

Sunday, May 1, 2011

Sagt er að líkaminn geymi allar minningar...

... og ég er lifandi sönnun þess!

Þegar ég var lítil, ekki nema 4ra ára gömul, réðist hundur á mig. Hann var stór, ég var lítil. Hann var grimmur, ég var hrædd.

Og þetta muna frumurnar í líkamanum mínum. Svo hvað get ég að því gert þó ég stífni upp og öskra smá og fer í varnarstellingar þegar hundur flaðrar upp um mig? Líkaminn man, líkaminn bregst við.

Ég er samt ekki hrædd við alla hunda. Ég veit um einn hund sem ég ekki hrædd við. Ég strýk honum meira að segja. En núna er ég hrædd við hund. Hvolp meira að segja! En þar sem þessi hundur heitir Tinna og er nýji og fyrsti hundur foreldra minna þá verð ég að taka mig saman í andlitinu og takast á við þessar grimmu minningar úr æsku minni.

gangi mér vel! Við Tinna verðum vonandi mestu mátar... eða ekki...

Thursday, April 28, 2011

sýklahrædd með meiru

Why? Why?!?

Barnið réttir mér lúku af poppi og ég get ekki fengið af mér að setja poppið upp í mig, hvað þá að tyggja og kyngja. Ég meina það er aldrei að vita hvar þessar lúkur hafa verið!

:/

Tuesday, April 19, 2011

um ökumenn

skil ekki alveg hvað menn sem eru að drífa sig í umferðinni fá út úr því að bruna aftan að manni - alveg aftan að manni- og hægja ekkert á sér. Bara keyra BEINT fyrir aftan mann á fullu spani.

Eins og maður fari að keyra eitthvað hraðar bara út af því!

Fífl.

Af hverju geta menn bara ekki verið rólegir? Held að fleiri ættu að fara í yoga og anda aðeins hægar. Rosa fart á sumu fólki!

Friday, April 8, 2011

ég segi nei við Icesave

Ég er viðskiptavinur Landsbankans og hef verið alla mína tíð. Ég borga færslugjöld og vexti og bankinn hefur veitt mér lán í gegnum tíðina. Af hverju eiga allt í einu skuldir bankans að lenda á mér og restinni af íslensku þjóðinni? Ekki hefur þeim dottið hingað til í hug að fara borga mínar skuldir?

Ég segi nei.

Mér finnst þetta mál allt saman ekki koma mér við. Hvernig það getur gerst að flokkur sem er með u.þ.b. 5% fylgi á bakvið sig kemst í ríkisstjórn og fær embætti viðskiptaráðherra og lætur bankana í hendurnar á siðblindum mönnum finnst mér afar sorlegt í lýðræðisríki. Það er ekki lýðræði. Þetta er lýðræði: að ég geti farið á morgun og kosið eftir sannfæringu minni.

Fólk sem er með sömu menntun og ég kallar sig stjórnmálafræðinga. Ég vona að einhver af þeim hafi vit og getu til að hafa áhrif á staðnað og úrelt kosningakerfi sem gerir það að verkum að ofangreint geti gerst. Til fjandans með fjórflokkakerfið. Til fjandans með flokkakerfið. Til fjandans með stjórnmálaflokka! Það hlýtur að vera til annars konar lýðræði en flokksræði. Það er það sem ég trúi á: lýðræði en ekki flokkræði.

Thursday, April 7, 2011

Ást

ég elska margt og marga. Þar á meðal pabba minn. Ég vona að hann viti það. Og hann má alveg kommenta hvenær sem hann vill!

Jibbý!

Ég get verið stolt af mér í dag. Vann ljótupeysukeppnina í vinnunni í morgun. Avúhú!! Vil þakka móður minni fyrir að hafa varðveitt fallega ljóta peysu sem var totally kúl árið 1985. Takk mamma. Þú mátt eiga medalíuna:)

Sunday, April 3, 2011

finally!!

Sun! Spring!

fórum út á land í dag. Mikið var það gott:) Elska frelsið sem felst í því að geta sest inn í áldollu með sinni fjölskyldu og skunda hvert á land sem er. Kíktum nú bara aðeins út á Þingvelli, svo gott að komast út úr borginni!!!

peace, peace, peace

Sunday, March 13, 2011

Stieg Larson

Núna er ég á síðustu bókinni í tríólógíunni hans Stiegs.

Loftkastalinn sem hrundi er frábær bók. Eins og hinar tvær er hún þykk og djúsí. Núna þegar ég á minna en helminginn eftir tími ég varla að klára hana. Er farin að elska Mikael Blomkvist. Hann er orðinn svo fyrirsjáanlegur. Núna er ég t.d. búinn að bíða í margar margar blaðsíður eftir að hann sængi hjá næstu konu sem tengist Salendermálinu (fyrir utan Ericu Berger.) Svo loksins fór hann í bólið með öryggislöggunni. Yndislegt!

En vá, hvað hann hefur verið klár hann Stieg. Þvílíkt hugmyndarflug!

himneskt

Endrum og eins koma dásamlegir dagar þar sem maður fyllist lotningu yfir fegurð sköpunarverksins. Gærdagurinn var einn af þessum dögum.

Við ákváðum að skella okkur upp í Bláfjöll á skíði. Því miður var myndavélin batteríslaus þegar ég ætlaði að taka myndir af útsýninu af toppinum. Annars hefði ég pottþétt látið þær slæða með þessu bloggi (þessa mynd fann ég á google en hún nær vel hvernig gærdagurinn var.) Get ekki alveg lýst hvernig samspil birtu og snjós gerði daginn svona fallegan en mikið er ég fegin að við fórum upp í Bláfjöll því þetta verður líklegast eini dagurinn sem við förum þennan veturinn.

Dásamleg tilfinning að skíða. Elska að vera með tónlist í eyrunum við þessa iðju og syngja smá með á leiðinni upp og niður. Tja, þ.e.a.s. ef maður lendir einn í lyftunni;)

Vildi að ég kæmist oftar á skíði. Væri alveg til í að skipta sólarlandaferð út fyrir skíðaferð erlendis.

Ó, já.

Monday, February 28, 2011

dansi dans

I wish.

Wishy wish...

Mér finnst svo leiðinlegt hvað ég er orðin "gömul" og "leiðinleg." Allt í einu, eftir að hafa hangið heima síðan Stefán Máni fæddist og ég missti áhugann á gjálífi er mig farið að langa út að dansa.

Kveikjan núna var að ég var að horfa á Brit Awards (af því að ég er með Skjá Einn;)) og var að horfa á tónlistaratriði þar. Þau í Arcade Fire kveiktu í mér. Mig langar að flippa á dansgólfinu with me mates og dansa, dansa, dansa!

En þannig líður mér oft á daginn og early evening. Eitthvað stuð lag kemur í útvarpinu og í hausnum mínum er ég að dansa með vinkonum mínum og fríka út á dansgólfinu - ógó gaman.

Í raunheimum er ég orðin syfjuð upp úr kl. 22:30 sem er meira að segja löngu áður en sjálft stuðið á dansgólfinu byrjar...

Oh, the joys of motherhood.

Monday, February 14, 2011

kæruleysi

jæja, ég sló þessu upp í kæruleysi áðan og gerðist áskrifandi að Skjá Einum!

Ógó gaman:) Þrátt fyrir fögur fyrirheit um sparnað þá verður maður bara að "live a little." Ég er bara þvílíkt spennt að vera EKKI að fara horfa á RUV í kvöld!

Jeij!!

Friday, February 11, 2011

stundum langar manni bara í froðu...

... Jæja, núna erum við búin að lifa (af) viku án Stöð 2. Þetta er nú ekkert svo slæmt, við lifum þetta svo sem af.

En eftir að hafa horft á RUV núna nokkur kvöld í röð þá er ég að vísu fróðari um ýmsa hluti. Sjónvarpstöðin er jú með ríka fræðslu- og menningarstefnu. En heimildamyndir og fræðsluefni kvöld eftir kvöld eftir kvöld ... er bara ekki málið að mínu viti. Stundum langar manni bara til að horfa á einhverja froðu, svona eins og stöð 2 er einmitt með (Two and a half man t.d. eða eitthvað álíka) eftir langan vinnudag.

Þegar enn ein heimildamyndin var að byrja í gærkvöldi eftir fréttir gat ég bara ekki meir. Stundum langar manni bara í froðu, það er bara þannig.

Það kemur væntanlega að því innan tíðar að ég gerist annað hvort áskrifandi að Skjá Einum eða ódýrari pakka hjá 365 en ég var með.

Alveg eins og ég byrja líklegast bráðum að lita á mér hárið ljóst aftur.

Damnit!

Monday, January 31, 2011

Lúxustár

Núna græt ég lúxustárum. Sem þýðir að ég er ekki að gráta bókstaflega heldur er á bömmer af því ég er búin að segja upp stöð 2.

Sparnaðarráð mitt nr. 2 (sparnaðarráð 1 var að hætta að lita á mér hárið.)

Svo er bara að sjá hvort við verðum á algerum bömmer að missa af þáttum eins og Greys Anotomy (ég), Fringe (Svanur) og Mannasiðir Gills (verð að viðurkenna að ég hef dáldið gaman af þessum þáttum;))

Í dag er síðasti dagurinn okkar með stöð 2 (í bili!)

og lúxustárin renna eitt af öðru niður kinnarnar.....

Thursday, January 20, 2011

Issues with hair

held ég megi til með að skrifa mig frá angist minni varðandi eigið hár.

Þannig er mál með vexti að frá tja, líklegast 14 ára aldri, hef ég verið að lita hárið á mér. Alveg í gríð og erg. Ég hef litað það svart (fékk á tímabili ofnæmi fyrir litnum), ég hef aflitað það, ég hef sett strípur í það og alltaf þegar rótin hefur farið að bögga mig þá hef ég litað hana.

Minn náttúrulegi músarskollitaði hárlitur hefur farið óendanlega í taugarnar á mér og ég hef bölvað í hljóði genasamsetningu hárlitsins míns allar götur frá því ég varð gelgja. Þá skildi ég ekki af hverju ég fæddist ekki eins og Kelly Taylor (Beverly Hills 90210) sem var með ótrúlega flott hár (að öllum líkindum litað í drasl og ekki náttúrulegt.)

En svo er þetta náttúrulega þessi músarskollitaði hárlitur sem er svo algengur á Íslandi. Núna hef ég ekki litað á mér hárið í nokkra mánuði og (geð)sveiflast á milli þess að finnast eigin náttúrlegi hárlitur bara ok og svo bara not. Það fer alveg eftir því í hvaða ljósi ég er.

Vil alls ekki vita hve miklum peningum ég hef eytt í hárið á mér í öll þessi ár. Veit að það er óforskömmuð upphæð sem að öllum líkindindum myndu duga langleiðina í afborgun af húsi (sem ég þrái svo mikið.) Þetta er allavegana mín leið til að spara fyrir afborgun af húsi. Mitt sparnaðarráð. Mín leið. Ég meina það er ekki eins og hárlitur sé ókeypis!

Það er nefnilega þannig með rauða hattinn. Ætli ég sé ekki komin á það þroskaskeið í lífi hverjar konu þegar ég átta mig fyrir alvöru á því að það skiptir ekki máli hvernig þú lítur út (samt ekki að líta út eins og skítug tuska) heldur skiptir innri líðan og almenn hamingja öllu meira máli. Allar konur ættu að "setja á sig rauða hattinn" og halda á vit drauma sinna í stað þess að fara ekki út því þær eru ekki nógu gorgeous eða vita ekki í hverju þær eiga að fara.

Jæja: skrifa mig frá angist minni varðandi eigið hár: check!

Tuesday, January 18, 2011

bómull

Mikið væri gott stundum að vefja þeim
sem manni þykir vænt um
og sjálfum sér inn í bómul.
Vagga sér þannig inn í aðra vídd,
annan heim þar sem allt er öruggt
og gott. Una sér þannig við lífsins gleðióm
og óttast ekkert fjarri heimsins glaum.