Ég er viðskiptavinur Landsbankans og hef verið alla mína tíð. Ég borga færslugjöld og vexti og bankinn hefur veitt mér lán í gegnum tíðina. Af hverju eiga allt í einu skuldir bankans að lenda á mér og restinni af íslensku þjóðinni? Ekki hefur þeim dottið hingað til í hug að fara borga mínar skuldir?
Ég segi nei.
Mér finnst þetta mál allt saman ekki koma mér við. Hvernig það getur gerst að flokkur sem er með u.þ.b. 5% fylgi á bakvið sig kemst í ríkisstjórn og fær embætti viðskiptaráðherra og lætur bankana í hendurnar á siðblindum mönnum finnst mér afar sorlegt í lýðræðisríki. Það er ekki lýðræði. Þetta er lýðræði: að ég geti farið á morgun og kosið eftir sannfæringu minni.
Fólk sem er með sömu menntun og ég kallar sig stjórnmálafræðinga. Ég vona að einhver af þeim hafi vit og getu til að hafa áhrif á staðnað og úrelt kosningakerfi sem gerir það að verkum að ofangreint geti gerst. Til fjandans með fjórflokkakerfið. Til fjandans með flokkakerfið. Til fjandans með stjórnmálaflokka! Það hlýtur að vera til annars konar lýðræði en flokksræði. Það er það sem ég trúi á: lýðræði en ekki flokkræði.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment