Þvílík forréttindi sem það eru að geta farið í sund áður en ég næ börnin og loka vinnudeginum þannig. Æði.
Píparinn kom. Ekki lengur ves inn á baði.
Wednesday, April 29, 2015
28/4 2015
Lífið gengur sinn vanagang. Allt er eins og það á að vera. Pípuvesen inn á baði. Ekki hægt að nota vaskinn. Smá ves.
Monday, April 27, 2015
27/4 2015
Góður dagur.
Fór í árlegt samstarfsviðtal við minn næsta yfirmann og hún er bara ánægð með mig og ég með hana. Allt jolly. Jibbýkóla.
Lærdómur dagsins: Maður setur ekki fullt af turmerik kryddi út í kjötsósu bara af því að þú last að túrmerik væri voða hollt og gott Svava. Bara nei.

Sunday, April 26, 2015
26/4 2015
Í dag er ég Pollýanna.
Nú fyrst að það er sirka 2ja stiga gaddur úti þó það sé komið sumar nú þá bara nýti ég þennan yndislega sunnudag til að affrysta ísskápinn. Set það sem er í frystinum á meðan þessu stendur auðvitað bara út á svalir!
Það þurfti einmitt svo mikið að affrysta blessaðan gripinn:)
Amen og hallelúja, allt er gott í Betlehem:)

Saturday, April 25, 2015
25/4 2015
Fer í dásamlegan yoga tíma hjá Tómasi í Yogashala. Oh, hann er svo mikið æði:)
Börnin eru alveg út um allt og upp um alla veggi heima og ég öfunda alla þá sem geta strokið um frjálst höfuð og gert það sem þeim sýnist. En þetta er samt einum deginum nær frelsinu sem hlýtur að koma einhvern tímann. Það virðist svo fjarlægt að geta bara dottið í hug að fara út á land og svo bara actually getað farið í guðs friði.
Er svo bara að vinna heima. Heilmikið í gangi í vinnunni og ég er bara alsæl með þessa frídaga-vikur. 4ra daga vinnuvika er eitthvað sem ég sé fyrir mér í fullkomnum heimi. Þá væru vonandi allir hamingjusamari.

24/4 2015
Það er voða mikið að gera í vinnunni þennan dag og mín er bara út um allt og voða þreytt eitthvað..
Thursday, April 23, 2015
23/4 2015
Sumardagurinn fyrsti. Frídagur. Svo góður dagur.
Þurfti þennan frídag til að átta mig. Búið að vera svo mikið í gangi undanfarna daga vegna nýrra verkefna og breytinga og kvartana...
Þurfti þennan dag til að anda. Fór í sund og það var bara æði. Svo gott að synda og fá gott nudd í pottinum:) Fór í Laugardagslaug í þetta skipti og skellti mér á 10 tíma kort þar sem ég sé fram á að vera dáldið mikið í sundi út af bakinu á næstunni. Það er eitthvað búið að bæta pott nr. 3, þennan 40 gráðu heitan. Nuddið í honum er alveg svaðalega gott núna. Svo eru komin svona handföng svo maður getur látið sig hanga í nuddinu. Alger snilld. Yndislegt:)

22/4 2015
Rosa buzy dagur.
Örvæntingafulla húsmóðirin okkar var þreytt þennan dag vegna veikinda dóttur einmitt þegar það var vinnudagur út úr borginni í vinnunni.
Svo ofboðslega gott að það er frí daginn eftir. Svo gott.
Við fórum í Kríunes á vinnudag og það var bara rosa nice:)

Tuesday, April 21, 2015
21/4 2015
Erfiður dagur.
Álag í vinnunni og álag heima. Hausverkur og paratabs. Úff.
Ekkert stórslys samt bara erfiður dagur.

Monday, April 20, 2015
20/4 2015
Skrýtinn mánudagur.
Guðrún Halla heima með mikið upp og mikið niður og ég er bæði heima og í vinnunni. Skrýtinn mánudagur.

Sunday, April 19, 2015
19/4 2015
Brjóstahaldaralaus sunnudagur.
Húsmóðurin afslöppuð og sultuslök. Búin að hætta við detox meðferðina hjá Jónínu Ben í Póllandi. Hef engan áhuga á að fasta á þessum tímapunkti í lífi mínu og langar ekkert sérstaklega í stólpípumeðferðina eða hvað sem þeir stinga upp í óæðri endann á manni til að skola öllu ullagúinu út. Gleymdi um rassameðferðina í gær en mundi það annað hvort rétt áður en ég sofnaði eða þegar ég vaknaði.
Er búin að semja við Svan svo að það er actually raunhæfur möguleiki að komast í burt frá öllu saman í byrjun árs 2016. Las mér meira til um það sem ég hef í raun mestan áhuga á en það er Empower woman retreatið í Bali. Sá að retreatið sjálft er 8 nætur svo að það er raunhæft og verðið er ekkert út úr kú. Svanur sagði já svo núna er bara að plögga dæmið:)
Svona þarf lítið til að sleikja fýluna úr manni. Í staðinn þarf ég auðvitað að vera með allan krakkaskarann núna og í allt sumar.
Og þá er bara að vona að þetta retreat verði í boðin í jan/feb/mar 2016. :):):)
Húsmóðirin er leynt og ljóst að undirbúa flutning. Er að decluttera og hreinsa úr öllum skápum og henda öllu því sem mögulega má henda. Það fer að koma að því mjög fljótlega að annað hvort verðum við að færa eldhúsið inn í stofu og búa til að svefnherbergi úr eldhúsinu eða flytja. Húsmóðirin er að taka til í síðustu skúffunni í yfirferð um alla íbúðina sem er nú bara hressandi. Sé að það verður að hefja aðra umferð fljótlega.

Saturday, April 18, 2015
18/4 2015
Þetta er sem sagt mynd af hótelinu hlýtur að vera þar sem detox meðferðir Jónínu Ben fara fram í Póllandi. Ég ætla að fara þangað í mars eða apríl 2016. Svona ef það verður í boði þá. Svanur verður með börnin þá svona í staðinn fyrir að ég er með þau öllum öðrum stundum.
:)
svo er bara að vona að ég drepi engan þegar ég kem til með að fasta í þessu prógrammi. Hef aldrei áður fastað á ævi minni og sé eflaust ekkert athugavert við það að bíta hausinn af einhverjum þegar ég verð nógu svöng.
Ég gat ekki einu þrjár máltíðir á dag dæmið í Paleo kúrnum. Ji minn eini, hvaða markmið var ég að setja mér? :/

17/4 2015
Ég er komin með nýtt markmið.
Komast í burtu í sirka viku í febrúar 2016.
Helst myndi ég vilja fara til Bali í svona Empower women retreat en ég hef á tilfinningunni að það verði ekki alveg strax. Kostar dáldið mikið, er dáldið langt í burtu og myndi kosta meiri fjarveru en frelsi mitt býður upp á.
Er að spá í svona Detox meðferð hjá Jónínu Ben í Póllandi. Það væri nú eitthvað.

16/4 2015
Mikið ofboðslega langar mig til að fara upp í flugvél og fljúga burt. Vantar frí frá meginþorranum af öllum þessum börnum.
Wednesday, April 15, 2015
15/4 2015
Miðvikudagar eru alltaf svona frekar busy dagar hjá örvæntingafullu húsmóðurinni okkar. Tveir fundir í húsi í vinnunni og svo brumm brumm út um allt. Brá mikið að sjá 10°C hita í bílnum. Á maður að þora að vona að vorið sé að koma? Usss..
14/4 2015
Skemmtilegur dagur.
Mikið stuð og mikið gaman í vinnunni. Glens með góðum vinnufélaga gleður þessa sál.

Monday, April 13, 2015
13/4 2015
Vinnuvikan fer rólega af stað af eigin áeggjan.
Maður þarf ekki að vera út um allt alls staðar. Ég meina til hvers?
Ha, alls staðar? Segir maður það? Ekki allsstaðar samt... what?

12/4 2015
Vigga viðutan hérna.
Fór í fermingarveislu og gleymdi að gefa gjöfina. Ætli það hafi einhvern tímann gerst fyrir einhvern einhverntíma áður? Mér er spurn.
Er því með gjöfina hér ofarlega á to-do listanum. Sem sagt að skila henni í réttar hendur.
Alveg. Ég er alveg.....

Saturday, April 11, 2015
11/4 2015
Shitturinn titturinn.
Maður hefði haldið að það væri lítið mál að kíkja í zumba tíma og dansa aðeins en nei, er bara illt í bakinu...:/
#kælipokinn

Friday, April 10, 2015
10/4 2015
Góður dagur.
Ég vann léttvínspottinn í vinnunni (aftur.) Var reyndar í 2. sæti og fékk 6 flöskur. Vinnufélagarnir voru hálf pirraðir á þessari lukku svo ég gaf flöskur fyrir knús og fékk svona 8 knús. Þar af nokkur mjög góð.
Góður dagur.
Glugg glugg, ralla la:)

9/4 2015
kvöld þessa dags horfði ég á The Mentalist. Mér þykja þetta virkilega góðir þættir nema í gær fór ég að vola og volaði mest allan þáttinn. Einn af liðsmönnum teymisins var drepinn og það var bara svo sorglegt. Úff..
Wednesday, April 8, 2015
8/4 2015
Æðislegur dagur.
Setti mér það markmið í morgun að sættast við vin minn en við lentum óvart í smá rifrildi um daginn. Það markmið tókst og þá losnaði þar með um mikla andlega stíflu sem er búin að hrjá mig undanfarna daga.
Lífið er orðið gott og auðvelt aftur og ég flýt hér um allt heimilið gerandi öll verk eins og ekkert sé. Svo gott.
Í morgun vaknaði ég með lagið með honum Frikka Dór á heilanum sem lenti í öðru sæti í Eurovision hérna heima. "O O Ó Ó ÓÓÓÓ seeeeeegðu mér that this isn't over and it wasn't wort it..... " Sá svo kappann sjálfan út í Samkaupum áðan, tíhí:)
Í gærmorgun vaknaði ég með lagið með Justin Timberlake á heilanum: "Cry me a river, ó... Cry me a river, cry me, cry me..."
Þetta minnir mig á Ally McBeal þættina en hún fékk einmitt oft svona lög á heilann eða þá að þegar hún var að labba var hún með ákveðin þema lög við sjálfa sig og skapið sem hún var í. Svo höfðu hinir leikararnir líka stundum lög eftir karakter... Gaman að þessu...
Good talk. Góður dagur. Allt gott.

Tuesday, April 7, 2015
6/4 2015
Dáldið svona pain-in-the-ass dagur.
Var ein með börnin þar sem Svanur var að vinna og það getur bara verið algert hell. Dreif mig með þau út eitthvað um kl. 14 þar sem ég bara gat ekki verið með þau inni lengur.
Mætti svo of snemma, aldrei þessu vant, í kaffi slash brúðkaupsafmæli hjá Svavari frænda og Öbbu. Bara fínasta kökuboð:)

5/4 2015
Páskadagur.
Fínn dagur og mér líður betur.
Það kom í ljós að pabbi var búinn að skipuleggja páskaeggjaleit í garðinum hjá þeim út á Álftanesi svo við fórum þangað og vorum svo í mat.
Mikið ofboðslega var þetta góður matur. mmMMMMmmm... svo einstaklega vel heppnaður grillmatur. Fyrsta grill "sumarsins" hvar sem það er...
Horfði svo á myndina Blóðberg sem var frumsýnd í sjónvarpinu þennan dag og hafði bara mikið gaman af. Fannst þetta bara mjög góð mynd og vel heppnuð.

Saturday, April 4, 2015
4/4 2015
Er verulega slöpp þennan dag.
Vaknaði um nóttina vegna þess að ég er á túr og á almennt mjög mikið bágt. Er mikið uppi í rúmi og hlakka til sumarsins og þess að vera búin á túr.

3/4 2015
Á voða bágt þennan dag.
Er á túr og er að glíma við blóðleysi, svima og almennt séð slappleika. Líður bara eins og það sé að líða yfir mig.
Fór þrátt fyrir það í 90 mín hot yoga tíma og leið reyndar eins og ég lýsti hér að ofan eftir tímann sem kom í ljós að var ákaflega krefjandi sem var miður af því að ég bara kann ekki að sleppa æfingum í þessum tímum. Geri allt það erfiðasta og fæ svo yfirliðstilfinningu. Skil ekki alveg af hverju ég er að gera mér þetta.
Það er alltaf þessi hérna æfing sem klárar mig:
Síðan kem ég úr þessari stöðu og finn sterka yfirliðstilfinningu og líður eins og ég komi til með að bara hrynja niður. Er með lágan blóðþrýsting og á bara ekkert að vera að þessu:/
Fór svo í fjölskylduboð um kvöldið þar sem þetta föstudagurinn langi. Þá hittumst við alltaf fólkið mitt og borðum fiskisúpuna hennar ömmu og spilum Trivial Pursuit. Leiðinlegt að vera svona rosalega þreytt. Hafði vaknað um nóttina vegna þess mánaðarlega.
Er samt rosalega fegin að vera í páskafríi því að það væri ofboðslega erfitt að vera í vinnunni í þessu ástandi.
Er á túr og er að glíma við blóðleysi, svima og almennt séð slappleika. Líður bara eins og það sé að líða yfir mig.
Fór þrátt fyrir það í 90 mín hot yoga tíma og leið reyndar eins og ég lýsti hér að ofan eftir tímann sem kom í ljós að var ákaflega krefjandi sem var miður af því að ég bara kann ekki að sleppa æfingum í þessum tímum. Geri allt það erfiðasta og fæ svo yfirliðstilfinningu. Skil ekki alveg af hverju ég er að gera mér þetta.
Það er alltaf þessi hérna æfing sem klárar mig:
Fór svo í fjölskylduboð um kvöldið þar sem þetta föstudagurinn langi. Þá hittumst við alltaf fólkið mitt og borðum fiskisúpuna hennar ömmu og spilum Trivial Pursuit. Leiðinlegt að vera svona rosalega þreytt. Hafði vaknað um nóttina vegna þess mánaðarlega.
Er samt rosalega fegin að vera í páskafríi því að það væri ofboðslega erfitt að vera í vinnunni í þessu ástandi.
Thursday, April 2, 2015
2/4 2015
Fór í hot yoga í Laugum hjá nýjum kennara sem heitir Kolbrá.
Bara frábær tími. Elska þegar kennarar eru með svona speki og sniðuga hluti sem þeir segja akkúrat þegar maður þarf að heyra þá eins og t.d. að maður eigi að skilja allt það sem maður hefur ekki not fyrir lengur eftir á dýnunni.
Það var svo á nógu að taka í tiltektinni heima....:/

Subscribe to:
Posts (Atom)