Saturday, April 25, 2015

25/4 2015

Fer í dásamlegan yoga tíma hjá Tómasi í Yogashala. Oh, hann er svo mikið æði:)

Börnin eru alveg út um allt og upp um alla veggi heima og ég öfunda alla þá sem geta strokið um frjálst höfuð og gert það sem þeim sýnist. En þetta er samt einum deginum nær frelsinu sem hlýtur að koma einhvern tímann. Það virðist svo fjarlægt að geta bara dottið í hug að fara út á land og svo bara actually getað farið í guðs friði.

Er svo bara að vinna heima. Heilmikið í gangi í vinnunni og ég er bara alsæl með þessa frídaga-vikur. 4ra daga vinnuvika er eitthvað sem ég sé fyrir mér í fullkomnum heimi. Þá væru vonandi allir hamingjusamari.

No comments: