Sumardagurinn fyrsti. Frídagur. Svo góður dagur.
Þurfti þennan frídag til að átta mig. Búið að vera svo mikið í gangi undanfarna daga vegna nýrra verkefna og breytinga og kvartana...
Þurfti þennan dag til að anda. Fór í sund og það var bara æði. Svo gott að synda og fá gott nudd í pottinum:) Fór í Laugardagslaug í þetta skipti og skellti mér á 10 tíma kort þar sem ég sé fram á að vera dáldið mikið í sundi út af bakinu á næstunni. Það er eitthvað búið að bæta pott nr. 3, þennan 40 gráðu heitan. Nuddið í honum er alveg svaðalega gott núna. Svo eru komin svona handföng svo maður getur látið sig hanga í nuddinu. Alger snilld. Yndislegt:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment