Æðislegur dagur.
Setti mér það markmið í morgun að sættast við vin minn en við lentum óvart í smá rifrildi um daginn. Það markmið tókst og þá losnaði þar með um mikla andlega stíflu sem er búin að hrjá mig undanfarna daga.
Lífið er orðið gott og auðvelt aftur og ég flýt hér um allt heimilið gerandi öll verk eins og ekkert sé. Svo gott.
Í morgun vaknaði ég með lagið með honum Frikka Dór á heilanum sem lenti í öðru sæti í Eurovision hérna heima. "O O Ó Ó ÓÓÓÓ seeeeeegðu mér that this isn't over and it wasn't wort it..... " Sá svo kappann sjálfan út í Samkaupum áðan, tíhí:)
Í gærmorgun vaknaði ég með lagið með Justin Timberlake á heilanum: "Cry me a river, ó... Cry me a river, cry me, cry me..."
Þetta minnir mig á Ally McBeal þættina en hún fékk einmitt oft svona lög á heilann eða þá að þegar hún var að labba var hún með ákveðin þema lög við sjálfa sig og skapið sem hún var í. Svo höfðu hinir leikararnir líka stundum lög eftir karakter... Gaman að þessu...
Good talk. Góður dagur. Allt gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment