Friday, June 25, 2021

Fimmti unglingurinn

Jæja,

mín yngsta er komin á gelgjuna. 8 ára gömul. Hún er farin að hanga með eldri stelpum (mjög góðar stelpur) og í nótt gisti hún hjá einni þeirra í annarri götu en samt í hverfinu. Mamman var að hringja og texta og athuga hvort allt væri ekki örugglega í lagi og fékk eftirfarandi svör:(skjáskot af sms samskiptum)


Gef mér að hún eigi eftir að hafa húmor fyrir þessu eftir nokkur ár svo ég birti þetta hér. Hún er farin að rúlla augunum mikið þegar ég tala við hana og er með almenna gelgjustæla, mér finnst það frekar sætt.

Að öðru: Á meðan vinkonur mínar dandalast með 27 ára gömlum karlmönnum líður mér frekar mikið miðaldra en finnst það vera bara allt í lagi. Á Instagraminu mínu birtast óumbeðið tillögur um að ég geri face yoga til að yngjast þið vitið og alls konar yngingar heillaráð er slægt til mín í gegnum auglýsingar. Það er víst algert must að ég noti sólarvörn á andlitið upp á hrukkulega skaðastjórnun. Skil ekki hvað ég hef like-að til að ýta undir þetta en endalaus myndbönd af hamingjusömum silfurgráhærðum konum birtast á Instagraminu mínu. 

Ætti náttúrulega að vera sem minnst á Instagram og líður best þegar dagarnir eru þannig að ég hef ekki tíma til að vera þar inni.

Æ, fer bara og geri face yoga, set á mig sólarvörn og evsa þetta bara (whatever.) 

Brann reyndar í gær, það var svo mikil sól hérna á Hellu. Urlaðist þegar frændi hans Svans setti allt í einu háværa bassatónlist á fullu blasti yfir allt svæðið. Þá urlaðist Svanur á móti og núna liggjum við brennd í fýlu. 

Það er svo gott að vita að allt er tímabundið. This too shall pass.

Friday, June 18, 2021

Vikan með Svövu

Set vikupóstinn í annað format en vanalega í þetta skiptið. Hef hann í svona hápunkti vikunnar og lágpunkti vikunnar.
Hápunktur vikunnar var tvímælalaust þegar fullorðinn karlmaður komst við á nuddbekknum hjá mér. Sagði svo að það væri af því að ég nuddaði eins og engill. Að hver stroka væri einstök og að það væri ljóst að mikil ástríða lægi á bakvið nuddið mitt. Svo jós hann fleiri hrósyrðum yfir mig. Okkar kona var mjög glöð.

Lágpunktur vikunnar var líklega í gær. Hann var nú samt ekkert sérstaklega lágur (lágur?) Ég bara misskildi veðrið! Hélt að það væri komið sumar og fór í sandölunum niðrí bæ á þjóðhátíðardaginn. Það var komin 17.júní pardon my french.. Var svo skítkalt á fótunum og sá að allir, ALLIR, voru í lokuðum skóm. Ein kona horfði mikið á tærnar mínar.

Annars hefur vikan verið annasöm en ágæt. Fór á læknavaktina af því að ég er búin að vera með mjög sérstakan verk í hægri kjálkanum. Hann heldur fyrir mér vöku á nóttunni nema ég sinni honum með verkjalyfjum, sýkladrepandi munnskoli og bólgueyðandi tanngeli. Er að fara í fyrsta skiptið á ævinni í röntgen vegna þessa á eftir. Áhyggjusvipurinn á lækninum panikaði mig í nokkra klukkutíma á eftir en var einmitt hjá heilara í vikunni sem sagði að taugakerfið mitt væri útþanið og það birtist í kjálkunum (!)

Svo héldum við sameiginlegt táningaafmæli fyrir Stefán með vinum hans og foreldrum í Skrímslinu hjá Perlunni. 

Já bara frekar viðburðarrík vika! Frekar góð og loksins líður manni eins og covid sé farið.

Jibbýkóla 🥳

Thursday, June 10, 2021

Upside down

Stundum þarf maður að taka einn dag í einu.

Þessi vika er búin að vera þannig. 

Því oft hendir lífið í mann alls konar óvæntum atburðum. Til dæmis að maki manns veikist skyndilega og er allt í einu á spítala. 

Þá þarf maður að endurskipuleggja dagana og ganga í nýjum takt.

Annars er það oft þannig hjá okkur að veikindi styrkja sambandið. Maður skilur út á hvað þetta gengur. Hjónaband. Að vera til staðar þegar skítur gerist.

Mér er búið að líða mjög miðaldra í þessari óvenjulegu viku. Við erum að leika haltur-leiðir-blindan leikinn þar sem skiptast á bólusetningar og eftirköst af þeim og svo almennur slappleiki og eitlabólga og hiti og alls konar. Tannlæknatímar og krankleikar.

Ég sé hvert stefnir. Við erum þegar byrjuð að eldast saman.

Wednesday, June 2, 2021

Þakklát

Er einlæglega þakklát. Gríðarlega þakklát reyndar. 

Þakklát fyrir Svan minn. Besta vin minn og maka. Lífsförunautinn. 

Hjónaband er ekki auðveld stofnun. Það skiptast á skin og skúrir og stundum, þegar húsmóðirin er að introvertast og vera ofur andleg og weird, botnar hún ekkert í hvernig það gerðist að hún er gift andstæðunni. 

En það er vegna yin og yang. Þau þurfa á hvort öðru að halda.

Eins og í dag, þegar ég er meiri introvert en vanalega og meika ekki stóran hóp af fólki vegna andlegrar þreytu, þá kemur extrovertinn (makinn minn) og fer á blessaðan vorhitting 7. bekkjar Hlíðaskóla. Bjargar mér frá því. 

Líka eins og í fyrradag þegar sumir göptu vanmáttugir á mánaðamótin þá kom riddarinn, ekki andlegi maðurinn heldur skynsami, og gat hent inn summu sem reddaði prinsessunni á bauninni fyrir horn.

Takk Svanur minn. Ég elska þig.