Friday, May 27, 2022

Elsku..

.. Stefán minn á afmæli í dag. 14 ára!
Ég er svo stolt af drengnum mínum. Hann stendur sig svo vel. Ekkert vesen á honum. Við þurfum ekki að spá í heimanáminu því hann sér um það sjálfur. 

Þegar ég hef mætt á foreldrafundi að hitta kennarann er bara ekkert að frétta. Hann stendur sig mjög vel. Næsti!

Við Stefán áttum fallegt móment í dag kl 15:37 en nákvæmlega þá fæddist hann fyrir 14 árum. Við biðum þangað til klukkan varð 15:37 og knúsuðumst þá. Ég passaði að muna að segja honum hvað hann stendur sig vel og hvað ég er stolt af honum. 

Skrýtið að við erum búin að ferma þrjú börn. Makes me feel old.

But hey, thats ok:)

Það er komin fín hefð í fjölskyldunni að við förum út að borða þegar krakkarnir eiga afmæli. Við förum því öll sex á Hamborgarafabrikkuna í kvöld. Vegan salatvefjan þar er svo ljúffeng.

Örvæntingarfulla húsmóðirin býður góða helgi.

Friday, May 20, 2022

Upside down vika

Merkilegt hvað maður er alltaf að læra eitthvað nýtt (komin á þennan aldur..) 

Trúarkerfi miðaldra konu varðandi mataræði féll til grunna með einni setningu frá lækni í vikunni.

Þessi vika er búin að vera skrýtin.

Sérstaklega af því að hún byrjaði á veikindum og vanlíðan. Það mikilli að ég fór á heilsugæsluna. Magnað að maður geti rölt í næstu götu, borgað 500 kall og hitt vakthafandi lækni. 

Allavega, kom í ljós að meltingin var í fokki og það var verkurinn sem ég var að glíma við. Hann mælti sterklega með að borða stærri máltíðir fyrr að deginum en alls ekki lítið og oft sem er nákvæmlega það sem ég hef gert undanfarin ár. 

Mind blown.

Sko. Ég er búin að vera gera intermediate fasting í dágóðan tíma núna. Ég meina Jennifer Aniston mælti með því! En þá borða ég ekki frá kl 20 til hádegis daginn eftir. Búin að gera svo sama nestið og alltaf og borða lítið og oft. Sem er sem sagt bara alls ekki málið!

Síminn minn er búinn að upplýsa mig um að það sé rigning í kortunum alla vikuna með þeim afleiðingum að ykkar kona er búin að lufsast um í regnjakka úr Hagkaup. Lenti samt aldrei í rigningu. Fimmta daginn, í dag föstudag, leit ég á símann og svo út um gluggann. Aftur spáði hann mikilli rigningu en ég fór í kjól og gallajakka niðrí bæ og ekki kom rigningin.

Allt-einhvern-veginn-öfugsnúið vika.

Er búin að vera með mataræðið á heilanum í kjölfarið á samræðunum við lækninn. 

Var með fulla viku í vinnunni og leit björtum augum á vikuna í byrjun hennar en svo afbókuðu flestir eða færðu tímann. 

Kom reyndar í ljós að ég hafði gott af því, nóg að gera í heimilislífinu og einkalífinu..

En mikið er sumarið ljúft. Byrjaði þennan föstudag eins og flesta aðra á að fara á uppáhalds staðinn minn niðrí bæ og knúsa fólk og berja trommu. Drakk kakóið góða og er öll uppveðruð eitthvað. 

Goodness. Kindness. Fluffyness. Aho!





Friday, May 13, 2022

Hlédrag

Horfði lengi á þetta orð þegar ég skoðaði stundaskrána hjá Móum, súkkulaðisetri, fyrir einhverju síðan. 

Ég hef líklegast spurt en auðvitað þýðir þetta að draga sig í hlé. 

Þessi vika er búin að vera þannig. 

Einhver innri viska sagði mér að draga mig í hlé. Ég var ekki að auglýsa lausa tíma og vildi eiginlega gera sem minnst. Furðuleg tilviljun að andleg besta vinkona mín gerði það sama. Hún sendi mér myndband þar sem ennþá andlegri kona er að spá í hvað málið sé. 

Mercury is in retrogate. Eitthvað svoleiðis. 

Var pirruð á miðvikudaginn. Vinkonan sagðist hafa lent í því sama í vikunni. (Engar áhyggjur, ég er löngu hætt að sýna svoleiðis útávið, það er bara stormur hið innra.) Tók þetta reyndar smá út á gaurnum sem ég leigi aðstöðuna með en vitið þið hvað þessi elska gerði? 

Hann faðmaði mig. 

Hversu mikill snillingur?! Við skildum sátt og ég bað um annað faðmlag sem ég og fékk.

Held að ein helsta ástæða þess að ég sæki andlega viðburði sé að þar fæ ég ást og faðmlög. 

Storminum hefur lægt og konan er orðin róleg og góð aftur.

Sé strax á næstu viku að það verður lítið um hlédrag. Mikið um hittinga og guð minn góður introvertinn lendir í allavega tveimur viðburðum þar sem hann þarf að sósíalesara og hitta annað fólk.

Tek næstu daga í að peppa mig í þetta. Mér finnst one on one alltaf best, nuddarinn sem ég er. 

Fór tvisvar í dalinn í vikunni og sjáið bara myndina:)



Friday, May 6, 2022

The grass is not greener...

... on the other side. Its greener where you water it

Stundum horfi ég öfundaraugum á annarra manna garð. Oft eru þetta fráskildar vinkonur mínar sem eru með börnin sín aðra hverja viku. Mér finnst eins og þær fái tíma til að hlaða sig og næra á ýmsan máta og séu sáttari og hamingjusamari fyrir vikið. Frjálsari.

En ykkar kona hefur það ekkert svo slæmt. Í gær gat ég til dæmis unnið lengur en áætlað var og farið í hot yoga á eftir og ekki komið heim fyrr en 19:30. Þetta var allt í fína Bína vegna þess að ég á svo frábæra krakka. Þau elduðu bara pizzu upp á sitt einsdæmi. 

Sko, fyrir nokkrum árum hefði þetta verið meira mál og kostað hernaðaraðgerð og fleiri símtöl en í gær. 

Ef ég væri fráskilin og ein myndi ég líklegast vera fyrst mjög glöð en svo enda hágrátandi á ástarfíklafundi. Hrá spá.

Hvað á maður svo sem að gera við of mikið frelsi? Ég er ekki hrútur eða ljón eða vog. Ég er bogamaður. Veit ekkert hvert ég er að fara með þetta og get ekki útskýrt það betur en auðvitað er niðurlag þessa pistils vikunnar að ...

... ég sný ljósinu mínu og vatnskönnu tilbaka að mínum eigin garði. Fínstilli áburðinn og magn vatns og ljóss og flæði allri minni athygli á það sem þarf og á skilið alla mína ást og athygli. 

Mér og mínum.