Friday, May 20, 2022

Upside down vika

Merkilegt hvað maður er alltaf að læra eitthvað nýtt (komin á þennan aldur..) 

Trúarkerfi miðaldra konu varðandi mataræði féll til grunna með einni setningu frá lækni í vikunni.

Þessi vika er búin að vera skrýtin.

Sérstaklega af því að hún byrjaði á veikindum og vanlíðan. Það mikilli að ég fór á heilsugæsluna. Magnað að maður geti rölt í næstu götu, borgað 500 kall og hitt vakthafandi lækni. 

Allavega, kom í ljós að meltingin var í fokki og það var verkurinn sem ég var að glíma við. Hann mælti sterklega með að borða stærri máltíðir fyrr að deginum en alls ekki lítið og oft sem er nákvæmlega það sem ég hef gert undanfarin ár. 

Mind blown.

Sko. Ég er búin að vera gera intermediate fasting í dágóðan tíma núna. Ég meina Jennifer Aniston mælti með því! En þá borða ég ekki frá kl 20 til hádegis daginn eftir. Búin að gera svo sama nestið og alltaf og borða lítið og oft. Sem er sem sagt bara alls ekki málið!

Síminn minn er búinn að upplýsa mig um að það sé rigning í kortunum alla vikuna með þeim afleiðingum að ykkar kona er búin að lufsast um í regnjakka úr Hagkaup. Lenti samt aldrei í rigningu. Fimmta daginn, í dag föstudag, leit ég á símann og svo út um gluggann. Aftur spáði hann mikilli rigningu en ég fór í kjól og gallajakka niðrí bæ og ekki kom rigningin.

Allt-einhvern-veginn-öfugsnúið vika.

Er búin að vera með mataræðið á heilanum í kjölfarið á samræðunum við lækninn. 

Var með fulla viku í vinnunni og leit björtum augum á vikuna í byrjun hennar en svo afbókuðu flestir eða færðu tímann. 

Kom reyndar í ljós að ég hafði gott af því, nóg að gera í heimilislífinu og einkalífinu..

En mikið er sumarið ljúft. Byrjaði þennan föstudag eins og flesta aðra á að fara á uppáhalds staðinn minn niðrí bæ og knúsa fólk og berja trommu. Drakk kakóið góða og er öll uppveðruð eitthvað. 

Goodness. Kindness. Fluffyness. Aho!





No comments: