... on the other side. Its greener where you water it.
Stundum horfi ég öfundaraugum á annarra manna garð. Oft eru þetta fráskildar vinkonur mínar sem eru með börnin sín aðra hverja viku. Mér finnst eins og þær fái tíma til að hlaða sig og næra á ýmsan máta og séu sáttari og hamingjusamari fyrir vikið. Frjálsari.
En ykkar kona hefur það ekkert svo slæmt. Í gær gat ég til dæmis unnið lengur en áætlað var og farið í hot yoga á eftir og ekki komið heim fyrr en 19:30. Þetta var allt í fína Bína vegna þess að ég á svo frábæra krakka. Þau elduðu bara pizzu upp á sitt einsdæmi.
Sko, fyrir nokkrum árum hefði þetta verið meira mál og kostað hernaðaraðgerð og fleiri símtöl en í gær.
Ef ég væri fráskilin og ein myndi ég líklegast vera fyrst mjög glöð en svo enda hágrátandi á ástarfíklafundi. Hrá spá.
Hvað á maður svo sem að gera við of mikið frelsi? Ég er ekki hrútur eða ljón eða vog. Ég er bogamaður. Veit ekkert hvert ég er að fara með þetta og get ekki útskýrt það betur en auðvitað er niðurlag þessa pistils vikunnar að ...
... ég sný ljósinu mínu og vatnskönnu tilbaka að mínum eigin garði. Fínstilli áburðinn og magn vatns og ljóss og flæði allri minni athygli á það sem þarf og á skilið alla mína ást og athygli.
Mér og mínum.
No comments:
Post a Comment