Horfði lengi á þetta orð þegar ég skoðaði stundaskrána hjá Móum, súkkulaðisetri, fyrir einhverju síðan.
Ég hef líklegast spurt en auðvitað þýðir þetta að draga sig í hlé.
Þessi vika er búin að vera þannig.
Einhver innri viska sagði mér að draga mig í hlé. Ég var ekki að auglýsa lausa tíma og vildi eiginlega gera sem minnst. Furðuleg tilviljun að andleg besta vinkona mín gerði það sama. Hún sendi mér myndband þar sem ennþá andlegri kona er að spá í hvað málið sé.
Mercury is in retrogate. Eitthvað svoleiðis.
Var pirruð á miðvikudaginn. Vinkonan sagðist hafa lent í því sama í vikunni. (Engar áhyggjur, ég er löngu hætt að sýna svoleiðis útávið, það er bara stormur hið innra.) Tók þetta reyndar smá út á gaurnum sem ég leigi aðstöðuna með en vitið þið hvað þessi elska gerði?
Hann faðmaði mig.
Hversu mikill snillingur?! Við skildum sátt og ég bað um annað faðmlag sem ég og fékk.
Held að ein helsta ástæða þess að ég sæki andlega viðburði sé að þar fæ ég ást og faðmlög.
Sé strax á næstu viku að það verður lítið um hlédrag. Mikið um hittinga og guð minn góður introvertinn lendir í allavega tveimur viðburðum þar sem hann þarf að sósíalesara og hitta annað fólk.
Tek næstu daga í að peppa mig í þetta. Mér finnst one on one alltaf best, nuddarinn sem ég er.
Fór tvisvar í dalinn í vikunni og sjáið bara myndina:)
No comments:
Post a Comment