Fyndin það er ég.
Þegar ég tala um æsispennandi viku þá meina ég að ég var að bralla dáldið ein með sjálfri mér. Introvert much?
Þetta byrjaði á mánudaginn þegar ég safnaði alle mine penge og keypti flugmiða til Danmerkur fyrstu vikuna í júlí fyrir mig og Guðrúnu Höllu. Fimm daga ferð.
Flækjustigið er Legoland sem er í Billund sem ég veit núna að er bara frekar mikið langt frá Kaupmannahöfn. Hef því bókað þrjú hótel. Tvær nætur fyrst í Köben, förum í tivolíið, tvær nætur í Billund, förum í Legoland, ein nótt í Köben aftur og svo heim.
Aðalhöfuðverkurinn núna er hvernig við förum til og frá Billund en hey, ætla að vera
ligeglad með það.
Guðrún Halla (11 ára) er að læra dönsku á dualingo svo að þetta verður gaman. Hlakka til:)
Vikan var með besta móti.
Hápunktur vikunnar var þegar ég fékk kallið. Ömmukallið. Sonarsonur minn bleyjulaus í Kópavoginum á miðvikudagsmorgni kl 09. Sefaði ammviskubitið (já, það er orð) með að koma með bleyjur til strákanna minna. Seinna sama dag gaf ég gott nudd. Það gott að ég dansaði í bílnum á leiðinni heim (já, það er hægt) og konan (sem ég þekki) mælti með mér á samfélagsmiðlum og tveir nýjir aðilar bókuðu hjá mér í næstu viku.
Lágpunktur vikunnar var í gær þegar ég var að kenna í Mími og var búin að sýna svo mörg Youtube myndbönd að kona sofnaði. Karlmanni leiddist, kona spurði af hverju þau væru að sjá nokkur myndbönd af sama hlutnum og já, ég sofnaði næstum líka.
Á móti spyr ég. Hvernig getur maður eytt heilli kennslustund eða 60 mín í að vera með sýnikennslu í kennslustund sem heitir Búa um, þrífa og skipta á rúmum. Þetta er bara frekar basic og þau kunna þetta betur en ég og Youtube sem kom í ljós í einu myndbandinu þegar kona var að skipta um á rúmi með gínu í. Hún gerði eitt sem á alls ekki að gera og þau spottuðu það. Ánægð með þau. Þau hlógu, ég hló. Gaman.
Þetta er frábær hópur. Er rosa ánægð með hann. Elska við Afríkubúa að þeir eru alltaf glaðir. Taka lífinu ekki of alvarlega. Enda hlógum við mikið. Það voru nokkrir Tælendingar og nokkrir frá Filipseyjum. Ein frá Idónesíu og ein frá Litháen. Talaði mest við hana. Á íslensku auðvitað. Við Vesturlandabúar getum lært svo mikið af innflytjendum.
Verkefni vikunnar var að redda barnabílstól. Ammviskubit er orð sem ég bjó til yfir það hvernig mér líður að vera ekki komin með svona stól fyrir ömmugullið mitt. Besta leiðin er að fá hann lánaðan og er það er í bígerð en er ekki alveg komið ennþá.
Já og ég ætla ekki að tala um Bjarna teflonpönnu en hugsa mitt og er búin að setja nafnið mitt á undirskriftalistann.
Namaste.
P.s. þegar ég er með góðu fólki hugsa ég: Við erum öll eitt. En svo hugsa um einhverja karlpunga og veit ekki alveg..
P.p.s. ég eyddi 30.000 kr meira í flugmiða með Icelandair sem fer kl. 10:35 á sunnudegi frekar en að kaupa miða af Play. Þeir fara kl. 06:40 eða eitthvað. Þar með flækti ég hlutina samt af því að Icelandair flýgur ekki til Billund en Play gerir það. Samt. Þetta verður bara skemmtilegt roadtrip fyrir okkur mæðgur.